Norðurljósið - 01.01.1978, Qupperneq 58
58
NORÐURLJÖSIÐ
örbyrgð, þar sem klæðin eru tötrar og húsakynnin
aumustu hreysi.
Hvílíkt þakkar efni, að á hinni nýju jörð, á arfleifð
heilagra í ljósinu, þar verður allt, sem gleður augað og
örvar hjartað til þakkargerðar, sem það færir Guði
skapara sínum og Drottni Jesú Kristi endurlausnara
sínum.
Mörg eru boðorðin og áminningarnar, sem við fáum
í nýja testamentinu. Þrisvar sinnum býður það okkur
að þakka, gera þakkir í öllum hlutum. (Fil.4.6., 1 Þess.
5.18. og Efes.5.20.)
Sú spurning vaknar: Hvemig getum við þetta?
Hvernig getum við þakkað Guði fyrir vonbrigði og
mótlæti?
Það getum við með því að trúa og treysta Róm.8.28.:
„Allt samverkar þeim til góðs, sem elska Guð.“ Þetta
er stjarnan, sem blikar björt á himni kærleika Guðs,
þegar náttmyrkur vonbrigða, sorgar, harms og þjáning-
ar grúfir yfir götu okkar hér á jörðinni. S. G. J.
Hfamingluleiðin
Hefur þú hugleitt það, lesandi minn, að Guð sendi
son sinn Jesúm Krist í heiminn til þess að frelsa
okkur, synduga menn, með dauða sínum á krossinum
og upprisu?
Þegar Guð sendi son sinn í heiminn og lét hann
vera hér á meðal manna, voru margir, sem gengu
honum á hönd og fylgdu honum. Þó voru ennþá fleiri,
er settu sig upp á móti honum, fyrirlitu hann og
hæddu. Þeir handtóku hann að lokum, dæmdu hann
til dauða og hengdu hann á kross. Saklaus leið hann
allt þetta til lausnar þér og mér. Blóð hans hreinsar
oss af allri synd, segir í orði Guðs. Hvað verður þá
um syndabyrðina þína, lesandi minn?
Frá upphafi hefur Guð gefið okkur alfrjálsan vilja.
Hann leyfir okkur að álykta, ef við viljum, að Guð sé
alls ekki til. Gerir þú það, ef til vill? Biblíuna, orð
hans, getur þú haft að engu, sömuleiðis söfnuð hans
hér á jörðinni.
Þrátt fyrir þetta elskar Jesús þig samt og kallar þig
burtu frá syndinni. Þú átt kost á að koma til hans
með byrði allra synda þinna. Þú átt kost á að auð-
mýkja þig fyrir honum og biðja hann um fyrirgefningu
synda þinna. Þú getur valið svall, glaum og gleði
heimsins, sem varir aðeins um tíma. Eða varanlega
gleði Drottins og hamingju, sem varir nú og um eilífð.
Við getum aðeins farið tvær leiðir: að fylgja frels-
aranum eða fylgja honum alls ekki. Hvora leiðina
ætlar þú að velja, lesandi góður, ef þú hefur ekki enn
tekið ákvörðun?
Ég vil fylgja Jesú, því að hjá honum finn ég gleði,
frið og fögnuð. önnur leið er mér ekki fær.
Ég skrifa þessar Iínur vegna þess, að allt bendir
til þess, að endurkoma Jesú, sem hann gaf okkur fyrir-
heit um, sé í nánd. Spádómar biblíunnar eru nú að
rætast. Lestu 24. og 25. kafla guðspjalls Matteusar og
fylgstu með. Guð gefi þér náð til að gera köllun þína
og útvalningu vissa, áður en það verður of seint. „Guð
stendur gegn dramblátum, en auðmjúkum veitir hann
náð,“ (1 Pét.5.5. Jakobsbr.4.5.) Allir vilja vera ham-
ingjusamir. Vilt þú það ekki Hka? — Guð blessi þig
og alla, sem lesa þetta S. L. S.
Lausn á andlegum erfibleikum
Kæra frú J. (Hún átti í miklum andlegum erfiðleik-
um.)
Ég rakst áðan á bréfið þitt á borðinu hjá mér. Ég
man ekki, hvort ég er búinn að skrifa þér. Það berst
svo mikið að mér og svo mikið er að gera, að ég er
hræddur um, að sumt verði eitthvað útundan.
Þau orð, sem standa í Jóhannesar guðspjalli 6.37.,
eiga að nægja þér eins og þau hjálpuðu mér á myrk-
ustu stund ævi minnar. Þau eru: „Þann, sem til mín
kemur, mun ég alls ekki burt reka.“ Þetta er loforð
Drottins Jesú. Við komum til hans, játum honum synd-
ir okkar, hrasanir, yfirsjónir, segjum honum frá öllu,
sem amar að. Ef til vill finnum við enga breytingu.
En þá eigum við að trúa því, að Drottinn Jesús, sem
getur ekki logið, hafi tekið á móti okkur, hvað svo
sem menn, illir andar eða Satan sjálfur segja, eða
hvísla inn í huga okkar. Fyrr eða síðar lætur þetta þá
undan.
I bréf Pls postula til Filippímanna, 4. kafla, 6.--7.
grein ritar hann: „Verið ekld hugsjúkir um neitt,
heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði
með bæn og beiðni ásamt þakkargjörð. Og friður Guðs,
sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu
yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú.“ Besta leiðin út
úr þessum ógöngum þínum getur verið sú: að þakka
Guði fyrir þessa erfiðleika og lofa hann fyrir að senda
þér þá. Séu þessir erfiðleikar frá hinum vonda, gefst
hann fljótlega upp með árásir sínar, sé þeim mætt með
stöðugri Iofgerð og þakkargerð. Þetta er staðreynd, sem
fólk hefur fengið að þreifa á.
Svo eru þessi orð Drottins Jesú, sem má hafa upp
fyrir sér aftur og aftur: „Hjarta yðar skelfist ekki,
trúið á Guð og trúið á mig.“ Jóhannesar guðspjall 14.1.
Þetta má segja við sjálfan sig aftur og aftur og bæta
við: „Ég vil ekki vera hrædd(ur), af því að Drottinn
Jesús segir: „Hjarta yðar skelfist ekki, trúið á Guð og
trúið á mig.“ Orðið að trúa merkir að treysta. Við
eigum að treysta Drottni Jesú og Guði föðurnum á
himnum.
Ég læt hér með lítið rit: „Daglegur styrkur." Notaðu
það á degi hverjum, einn dag í einu, en farðu mörgum
sinnum yfir orðin og gerðu bænirnar að þínum bæn-
um. — Skrifaðu mér fljótlega aftur og láttu mig vita
árangurinn. — Kær kveðja.
Sæmundur G. Jóhannesson.