Norðurljósið - 01.01.1978, Page 60
60
NORÐURLJÓSIÐ
listin hafa skapað marga gimsteina á sviðum menn-
ingar. Vissulega getur maðurinn með hæfileikum sín-
um skapað mikil verðmæti. Fyrir þessi efnislegu, per-
sónulegu, félagslegu og menningarlegu verðmæti get-
um við verið þakklát.
En nú komum við að því, sem er kjami málsins
í þessari dæmisögu Jesú. Hann er sú staðreynd, að
andlegu verðmætin era svo miklu, miklu æðri og dýr-
mætari en hin tímanlegu, af því að þau hafa eilíft
gildi. Og þá getum við spurt: Hvað er þá fólgið í þess-
um mikla andlega fjársjóði, sem nefndur er í líking-
unni?
Svarið felst í upphafsorðum dæmisögunnar „Líkt er
himnaríki fjársjóði..Himnaríki, guðsríki, ríki Krists
er það ríki, er hann kom til að stofna í þessum heimi.
Hann kom með þekkinguna á Guði. Hann kom með
hjálpræði Guðs. Trúin á Guð, orð Guðs og sannindi
þess, er slíkur fjársjóður.
Það að eignast frið í sál, að eignast samband við
Guð, að eignast forréttindi bænarinnar. Það að öðlast
samfélag kristirna manna, að öðlast and'ega, trúar-
lega reynslu, aö öolast ný markmið og ný verkefni í
samræmi við vilja Guðs. Þetta eru verðmæti, sem
standast alveg til fulls samanburð við nokkurn jarð-
neskan fjársjóð. Þennan guðdómlega fjársjóð er hægt
að höndla, með því að taka á móti Drottni Jesú í trú
sem persónulegum frelsara og Drottni.
I Biblíunni kemur víða fram ákveðinn mælikvarði,
er sýnir, hvað er dýrmætt eða verðmætt fyrir Guði.
Hann kemur, t.d., fram í orðum Jesú, hve sál manns-
ins er dýrmæt í augum Guðs. „Hvað mun það stoða
manninn, þótt hann eignist allan heiminn, en fyrirgjöri
sálu sinni?“ Matt. 16.26. Hér höfum við mælikvarða
Guðs á verðmætum.
Sæll er sá maður, sem hefir eignast fjársjóð trúar-
innar. Sæli er sá, sem er orðinn ríkur hjá Guði.
Drottinn segir fyrir munn Jesaja þessi athyglisverðu
orð: „Heyrið, allir þér, sem þyrstir eruð, komið hingað
til vatnsins, og þér, sem ekkert silfur eigið; komið,
kaupið korn og etið! Komið, kaupið korn án silfurs
og endurgjaldslaust bæði vín og mjólk! Hví reiðið þér
silfur fyrir það, sem ekki er brauð, og gróða yðar fyrir
það, sem ekki er til saðnings. Hlýðið á mig, þá skuluð
þér fá gott að eta og sálir yðar gæða sér á feiti. Hneigið
eyru yðar og komið til mín, heyrið, svo að sálir yðar
megi lifna við!... Leitið Drottins, meðan hann er að
finna, kallið á hann, meðan hann er nálægur! (Jes.
55.1.-4.,6.)
Þannig er það, því miður, að menn láta gróða sinn
fyrir það, sem ekki er til saðnings, sem ekki veitir
fulinægju, sem ekki veitir eilífa, varandi hamingju og
biessun. En Jesús benti mönnunum á hina réttu leið:
„Leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, og þá mun allt
þetta veitast yður að auki.“ Matt.6.33.
HIN ANDLEGU VERÐMÆTI.
Þekkingin á Guði.
Trúin á Guð.
Orð Guðs. Sannindi þess.
Samfélag trúaðra.
Forréttindi bænarinnar. Að eiga Guð að.
Frið í sál og samvisku.
Að geta öðlast andlega reynslu.
Verkefni, sem eru í samræmi við vilja Guðs.
Ekki er hægt að kaupa hjálpræði Guðs, en í ritn. er
í vissum skilningi talað um að kaupa andleg verðmæti.
Op.3.18.
„Yður sem trúið, er hann dýrmætur.“ 1 Pét.2.7.
„Þennan fjársjóð höfum vér í Ieirkerum.“ 2 Kor. 4.7.
„Þar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta
Matt. 6.21.
„1 Kristi eru allir fjársjóðir spekinnar og þekkingar-
innar fólgnir.“ Kól. 2.3.
Maðurinn
í öndvegi
Eftir Guðvin Gunnlaugsson.
! dag ætla ég að tala um efnið: Maðurinn í öndvegi.
Fyrst skulum við heyra nokkur orð úr spádómsbók
Jeremía 6. kap. 10. v. „Við hvern á ég að tala, og
hvem á ég að gera varan við, svo að þeir heyri? Sjá,
eyra þeirra er óumskorið, svo að þeir geta ekki tekið
eftir. Já, orð Drottins er orðið þeim að háði, þeir hafa
engar mætur á því.“ 16.-19. vers „Svo mælti Drottinn":
„Nemið staðar við vegina og litist um og spyrjið um
gömlu göturnar, hver sé hamingjuleiðin og farið hana,
svo að þér finnið sálum yðar hvíld.“ En þeir sögðu:
„Vér viljum ekki fara hana.“ Þá setti ég varðmenn
gegn yður: „Takið eftir lúðurhljóminum." En þeir
sögðu: „Vér viljum elcki taka eftir honum.“ „Heyrið
því þjóðir, og sjá þú söfnuður, hvað í þeim býr. Heyr
það, jörð: Sjá, ég Ieiði ógæfu yfir þessa þjóð, ávöxt-
inn af ráðabraggi þeirra. Því að orðum mínum hafa
þeir engan gaum gefið og leiðbeining minni hafa þeir
hafnað."
Hér er það maðurinn, sem er í öndvegi. Hér er ekki
spurt um Guð eða vilja hans. Lesum líka Rómverja-
bréfið 1. kap.18.-23. v. „Því að reiði Guðs opinberast
af himni yfir sérhverjum óguðleik og rangsleitni þeirra
manna, er drepa niður sannleikanum með rangsleitni.
Með því að það, er vitað verður um Guð, er augljóst
á meðal þeirra, því að Guð hefur birt þeim það. Því