Norðurljósið - 01.01.1978, Side 62
62
NORÐURLJÓSIÐ
Kall Drottins
Eftir Guðvin Gunnlaugsson.
I dag skulum við hugleiða kali Drottins til okkar
mannanna, leit hans að okkur týndum og glötuðum
mönnum. Fyrst skulum við lesa úr 50. sálmi, 1.-7.
grein: „Alvaldur Guð, Drottinn talar og kallar á jörð-
ina í frá upprás sólar til niðurgöngu hennar. Frá
Zíon, ímynd fegurðarinnar, birtist Guð í geisladýrð.
Guð vor kemur og þegir ekki. Eyðandi eldur fer fyrir
honum, og í kringum hann geisar stormurinn. Hann
kallar á himininn uppi og á jörðina, til þess að dæma
lýð sinn: „Safnið saman dýrkendum mínum, þeim er
gjört hafa sáttmála við mig með fórnum." Þá kunn-
gjörðu himnarnir réttlæti hans, því að Guð er sá, sem
dæmir. „Heyr, þjóð mín, og lát mig tala, fsrael, og lát
mig áminna þig, ég er Drottinn, Guð þinn.“
Drottinn talar. Drottinn kallar á mennina, frá sólar-
uppkomu til sólarlags. Allt frá því að hann kallaði á
Adam í Eden-garði, er samband hans við Guð hafði
rofnað, vegna syndar hans og óhlýðni, hefur Guð
ekki látið af að kalla á hina fráviiltu, föllnu og synd-
ugu menn. „Hvar ertu?“ sagði hann við Adam, sem
í fávisku sinni var að reyna að fela sig, flýja burtu frá
Guði. „Hvar ertu?“ kallar hann enn í dag.
„Hvar ertu? Hvar ertu?“ Ó, hve mikið felst í þessum
tveimur orðum! Mikil elska, mikil þrá, mikil löngun,
að við mennirnir höfum samband við hann, komum til
hans og sættumst við hann og öðlumst fyrirgefningu
og frið fyrir Jesú blóð.-
Það er Guð, sem kallar til mannsins, sem hefur
villst burtu og er að reyna að fela sig fyrir Drottni
sínum og skapara. Þessi saga hefur endurtekið sig,
ár eftir ár, öld eftir öld. Það er Drottinn, sem kallar,
það er Drottinn, sem leitar hins fallna og villuráfandi
manns. Það er hann, Drottinn, sem á alltaf frumkvæð-
ið - - ekki maðurinn. Og í allar þessar mörgu aldir,
hefur maðurinn ekki breytst. Mannleg heimska, mann-
leg einfeldni er eins og hjá hinum fyrsta manni, sem
reyndi að fela sig fyrir Drottni.
Þrátt fyrir allar framfarir og tækni, geimferðir og
uppfyndingar eru menn 20. aldarinnar svo heimskir,
að þeir halda, að þeir geti falið sig fyrir Guði. Þeir
hrópa upp í fáfræði sinni: „Enginn Guð!“ eða „Ég
sé ekki Guð!“ En Guð sér öll mannanna böm, og hann
er að leita, hann er að kalla. „Hvar ertu? Hvað hefir
þú gert?“ Því að hann vill fá mennina til að játa syndir
sínar og iðrast. Hann stendur við dyrnar og knýr á. Ef
einhver heyrir og lýkur upp dyrunum, mun hann koma
inn til hans með náðargjafir sínar, fyrirgefningu og
frið sinn. Því að orð Guðs segir: „öllum þeim, sem
tóku við honum, Jesú, gaf hann rétt til að verða Guðs
börn.
Er það ekki dásamlegt, að við, þessi fávísu, syndugu
og óhlýðnu mannanna börn, megum koma til Drottins
og kallast hans böm, ef við aðeins játum syndir okkar
og Iátum af þeim. Hversu margar, miklar og hræðileg-
ar, sem syndir okkar hafa verið, eru þær allar þurrk-
aðar út. — Þeirra er ekki framar minnst, ef við aðeins
hlýðum kalli Drottins og komum til hans, heyrum, þeg-
ar hann kallar, ljúkum upp fyrir honum og leyfum
honum að koma inn í hjörtu okkar og hreinsa þau og
helga, svo einfalt er þetta.
Þess vegna eigum við að hlusta, þegar Drottinn
kallar: „Hvar ertu?“ Þetta kall er einnig til okkar,
sem lifum á þessum tímum. Þetta kall er til þín, og
þetta kall er til mín. Heyrum við, þegar hann kallar?
„Hvar ertu?“ Ef ti! vill hefur þú einhverntíma
heyrt kall Drottins og komið til hans, en síðar hefur
þú villst frá honum aftur, út í synd og óhlýðni, því að
það eru fleiri en Drottinn, sem kalla á okkur. Heimur-
inn kallar, okkar gamli maður kallar og Satan kallar
og reynir að tæla okkur burtu frá hlýðninni og ein-
lægninni við Drottin.
Þess vegna er okkur nauðsynlegt, ef við höfum feng-
ið að þekkja náð Guðs — hina fyrirgefandi náð Guðs
í Jesú Kristi að halda okkur við Orð Guðs, lesa það
og biðja Drottin um nýjan kraft á hverjum degi. Einn
þjónn Drottins hefur sagt: „Annaðhvort heldur þessi
bók — Biblían — þér frá syndinni, eða syndin mun
halda þér frá þessari bók,“ Biblíunni. Ef þú hefur
fengið þá náð að vera Guðs barn, notaðu þá Biblíuna,
hún er kölluð „sverð Andans“. Drottinn kallar einnig
til þín, sem eitt sinn svaraðir kalli hans, sem eitt sinn
fékkst að þekkja náð Guðs í sannleika, en villtist svo
frá: „Hvar ertu? Hvar ertu?“ hljómar til þín frá Orði
Drottins í dag. „Heyr þjóð mín, lát mig áminna þig.“
„Komið, vér skulum hverfa aftur til Drottins, því
að hann hefur sundurrifið og mun lækna oss, hann
hefur lostið og mun binda um sár vor, hann mun lífga
oss og reisa oss upp, til þess að vér lifum fyrir hans
augliti. Vér viljum og þekkja kosta kapps um að þekkja
Drottin. Hann mun eins áreiðanlega koma eins og
morgunroðinn rennur upp, svo að hann komi yfir oss
eins og regnskúr, eins og vorregn, sem vökvar jörðina.“
IHósea 6. 1.-3. Þetta segir einn hinna fornu spámanna
ísraels. Það er eins satt nú á okkar dögum, eins og
þegar hann sagði það. Guð talar og lcallar á menn-
ina: „Hvar ertu, mitt lcæra, blóðkeypta barn? Komdu,
því að ég elska þig. Ég sendi minn eiginn son í heiminn
til að leita að bér og frelsa big, til þess að þú glatist
ekki, heldur eignist eilíft líf í himninum með mér.“
Guð talar til okkar allra. Látum hann áminna okkur.
Látum okkur muna, að við erum kölluð til samfélags
sonar hans. Segjum öll: „Hér er ég, Drottinn, ég vil
koma til þín. Ég vil opna dyr hjarta míns fyrir þér
og bjóða þig velkominn, til að gefa mér nýtt og fagurt
og sæluríkt líf.“