Norðurljósið - 01.01.1978, Blaðsíða 65

Norðurljósið - 01.01.1978, Blaðsíða 65
NORÐURLJÓSIÐ 65 Öryggi Eftir Jógvan Purkhús. Á hvað byggjum við okkar traust? „Akkeri sálarinnar.“ „Heilagi Drottinn, helga þú þennan vitnisburð, að hann megi færa þér vegsemd og hlustendum blessun." Segja má, að við búum í rótlausum, friðvana heimi. Víða er ótryggt í kring um olckur. öryggisleysið er mikið í heiminum. Kvíði og ótti er undir yfirborðinu, þótt mikið sé rætt og ritað um öryggismál og velferð þjóða og einstaklinga. öryggismálaráðstefnur eru víða haldnar. Þau mál eru ofarlega á dagskrá. öryggis- kend mannsins er ein af frumþörfum hans. Hver vill elcki búa öruggur með sínum nánustu? Hver vill ekki eiga sér griðastað? Þarf maðurinn eklci skjól og öryggi í stórviðrum lífsins? Þarf hann ekki kjölfestu á sigl- ingunni um lífsins haf? Vissulega, maðurinn er um- komulaus og oft lítils megnugur í andstreymi lífs- baráttunnar. I þessum stutta útvarpsþætti, langar mig að ræða um öryggi mannsins. Bæði hið ytra öryggi hans, en elcki síður hið innra öryggi mannsálarinnar, því að við mennirnir erum í svo mikilli þörf fyrir innra öryggi, innri frið í sál. Til eru margskonar tryggingar í heimi þessum, jafnvel líftryggingar, en þær ná ekki nema að visssu marlci. Milcið er gert til þess að gæta öryggis farþega og farartækja, bæði á sjó og í lofti, en við vitum, að slíkar mannlegar öryggisráðstafanir geta samt brugðist. Á hvað setjum við oklcar traust? Margir setja traust sitt á auð og auðlindir og margir binda vonir sínar við hagvöxtinn, en það öryggi er líka fallvalt og svíkur. Drottinn Jesús sagði: „Þótt einhver hafi allsnægtir, þá er líf hans elcki tryggt með eigum hans.“ Síðan sagði hann dæmisöguna um ríka bóndann, sem setti allt sitt traust á velgengni sína og eigur. Hann sagði við sjálfan sig: „Sál mín, þú hefur mikil auðæfi, geymd til margra ára, hvíl þig nú, et og drekk og ver glöð“. (Lúk.12.19.). Drottinn bendir á í þessu dæmi, að ríki maðurinn hafði eingöngu hugsað um hið ytra öryggi. Hann hafði byggt traust sitt á fölsku öryggi, bundið vonir sínar við það, er reyndist blekking. Hann hafði gleymt hinu eilífa öryggi sálarinnar, hann hafði gleymt þeim eilífa hag: að vera ríkur í Guði. Það er álit margra, að sá búi öruggur, er búi í skjóli valds, og er það að vissu leyti rétt. Mikið er lagt upp úr því, að í heiminum haldist valdajafnvægi. En það, að búa í skjóli hernaðarvalds, nægir hvorki þjóð né einstaklingi til lengdar. Hernaðarvald er ekki gott vald, það byggist á gagnkvæmum ótta. Slíkt öryggi er blekking. En barnið, sem býr í skjóli góðra foreldra, það býr við öryggi hins góða valds, er grundvallast á kærleika. Það dafnar í skjóli umhyggjusamrar móður, og treystir föðurvernd, það lýtur góðu valdi. Jesús sagði eitt sinn við lærisveina sína: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu.“ Hans valdi er gott að treysta. Hans valdi er gott að lúta. Drottinn Jesús talaði um að byggja á bjargi, og felst mikið í þeim orðum hans. Við þurfum að byggja á þeim grunni, er eigi lætur undan. Við þurfum að festa traust okkar á þvi, er aldrei bregðist né svíki. Þegar á reynir, þá er sá einn öruggur, óhultur, sem leitað hefur skjóls hjá Guði. „Blessaður er sá maður, sem reiðir sig á Drottin og lætur Drottin vera athvarf sitt.“ (Jerem. 17.7.) Við syngjum í einum olclcar sálmi: „Drottinn er slcjól. Drottinn mun geyma sína, Drottinn er öruggt eilífðarskjól, hann geymir sína.“ Davíð konungur var maður mikillar lífsreynslu og trúarreynslu. Hann segir í 26. sálminum: „Fótur minn stendur á sléttri grund.“ Davíð fann fótfestu í róstu- samri Iífsbaráttu, því að hann setti allt sitt traust á Drottin sinn. Hann margreyndi það öryggi, er trúin á Guð veitir þeim, er á hann treysta. Hann lýsir þessu guðdómlega öryggi svo í 18. sálminum: „Ég elslca þig, Drottinn, þú styrkur minn, Drottinn, bjarg mitt og vígi, athvarf mitt. Guð minn, hellubjarg mitt, þar sem ég leita hælis.“ Gott er að finna slíkt öryggi, slíka fót- festu í lífinu, eiga slík markmið og slíka framtíðarvon. í Biblíunni er talað um „akkeri sálarinnar", að sjálf- sögðu á líkingamáli. ! Heb.6.19. er sagt, að Guð láti þá, er trúa, „fá öruggt traust, til þess að höndla sælu- vonina, sem oss er geymd, sem vér höfum eins og alckeri sálarinnar, traust og öruggt.“ Skyldu sálfræð- ingar vorra tíma benda á þetta alckeri sálarinnar, sem er trúin á Drottin Jesúm Krist? Frelsarinn, Drottinn Jesús, lcorn í heiminn til þess að búa olckur eilíft öryggi. Hann fæddist sem maður. Þess minnumst við á jólum. Hann kom til þess að fullkomna hjálpræðisáform Guðs, okkur breyskum, syndugum mönnum til handa. Með lífi sínu gaf hann olckur fullkomna fyrirmynd, að við mættum feta í fótspor hans. Á krossi gaf hann líf sitt til lausnar- gjalds fyrir marga, eins og ritningin segir. Og nú megum við tala orð krossins, eins og útvarpsþáttur þessi heitir. Við megum boða hjálpræði Guðs, sem grundvallast á fyrirgefandi kærleika hans. Drottinn Jesús gerðist þannig frelsari heimsins, að við mættum verða hólpin, óhult, sæl, frelsuð í þeirri merkingu, að við tökum á móti honum í trú, sem okkar frelsara og Drottni. öryggi er að finna hjá honum. Hefur þú fest traust þitt á honum? Hefur þú leitað hans? „Hann er fullríkur fyrir alla þá, er ákalla hann.“ „Þú leiddir mig fram af móður’.ífi, lést mig liggja öruggan við brjóst móður mnnar.“ (Sálm. 22.10.) „Fær lcona gleymt brjóstbarni sínu? .... Og þó að þær gætu gleymt, gleymi ég þér samt eklci.“ (Jes. 49.15.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.