Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1978, Qupperneq 67

Norðurljósið - 01.01.1978, Qupperneq 67
NORÐURLJÓSIÐ 67 Sigurður Þórðarson frá Egg í Hegranesi MINNING Er mér barst andlátsfregn míns aldna vinar, Sig- urðar frá Egg, komu mér í hug þessi orð úr 2. Samúels- bók, sem Davíð sagði um Abner Nersson hershöfðingja: „Vitið þér ekki, að höfðingi og mikill maður er í dag fallinn í ísrael?“ Já, nú er vissulega fallinn höfðingi og mikill maður á íslandi, þar sem er trúbróðir minn Sigurður á Egg, eins og hann var jafnan kallaður í Skagafirði. Sannarlega var hann „höfðingi í lund og ekkert smátt af því, sem hann gerði,“ eins og sr. Þórir Stephen- sen segir um hann í minningargrein í Morgunblaðinu 24. jan. sl. En hann var líka höfðingi meðal bræðra sinna. Því að hvar, sem hann fór, tók hann virkan þátt í vitnisburðinum um Drottin sinn og frelsara af lífi og sál. Hann reyndi aldrei að fela trú sína, eða setja ljós sitt undir mæliker. Sigurður mun, þegar sem barn, hafa orðið fyrir trúarlegum áhrifum, enda átti hann trúaða móður, og frá henni mun margt frækomið hafa fallið í hinn bljúga og móttækilega bamshuga. „Bænir móður minnar hafa fylgt mér alla mína mörgu daga sem Ijósberi guðlegs kærleika," skrifaði Sigurður í handriti, sem ég hefi undir höndum. En svo fölskvaðist þetta ljós, er kom fram á unglingsárin, og heimurinn og syndin drógu hann burtu frá Guði. Þó leyndist alltaf þrá eftir Guði innra með honum, og aldrei var hann ánægður, eða leið vel í syndinni, sagði hann mér. Er enski trúboðinn Frederick Jones, sem lét byggja húsið á Sjónarhæð á Akureyri, var hér, kom Sigurður til Akureyrar og fór þá nokkram sinnum á samkomur hjá honum með Halldóri söðlasmið. Líkaði honum vel og varð fyrir miklum áhrifum, en tók þó ekki ákveðna afstöðu. Þessi glóð kulnaði þó er frá leið, en þó mun hún aldrei hafa dáið með öllu. Svo mun það hafa verið árið 1917 eða 1918, sem hann fór að kaupa Norðurljósið og hafa samband við Arthur Gook. Mun hann á þeim áram hafa eignast afturhvarf og lifandi trú. En skírn tók hann á Sjónar- hæð 28. marz 1926 og sonur hans, Þórður Skíðdal 13. maí sama ár, þá 18 ára. Ekki gekk hann þó í Sjónar- hæðarsöfnuð, en úr þjóðkirkjunni mun hann hafa gengið stuttu síðar. Það er rétt, er sr. Þórir Stephensen segir í áður áminnstri minningargrein: „Hann fann t. d. engan söfnuð hér á landi, sem hann felldi sig alveg við, og lét því, er hann sagði sig úr þjóðkirkjunni, skrá sig utan safnaða. Persóna Jesú Krists og Heilög ritning vora honum eitt og allt í trúarlegum efnum: „Þú ert Kristur, sonur hins lifandi Guðs“ og „Guðs orð er lifandi og kröftugt,“ eru ritningarstaðir, sem hann unni mjög.“ Þetta vora orð sr. Þóris. En þrátt fyrir þetta vildi hann eiga samfélag við alla trúaða, hvaða söfnuði, sem þeir tilheyrðu. Árið 1944 sendi hann, ásamt Jóni Þorbergssyni, bónda á Laxamýri, bréf til allra forstöðumanna, eða stjómenda kristilegs starfs á íslandi, með ósk um, að þeir hefji samstarf á grundvelli kross Drottins Jesú Krists. Stinga þeir upp á því, að ha’din verði sameigin- leg mót og samstarfið skipulagt á annan hátt. Þeir segj- ast líta svo á, að gagnvart Guði, hljóti þjóðin að skiptast aðeins í tvo flokka — trúaða og vantrúaða. Mig minnir, að Sigurður segði mér, að þeir hefðu aðeins fengið svar við þessu frá Arthur Goolc, sem var fús til þessa sam- starfs. En bréf þeirra og svar hans er birt í Norðurljós- inu 1944. Ég veit, að þessi málalok urðu þeim sár vonbrigði. Sigurður á Egg var skapstór og hélt fast á sínu máli, hver sem í hlut átti. Gerði hann þar engan mun á mönnum, hvort sem þeir voru kallaðir hátt eða lágt settir. En fyrir Guði sínum var hann auðmjúkur og sagði, að allt, sem hann var, væri aðeins af náð Drott- ins. Eins og áður er sagt elskaði hann orð Drottins og las það mikið, sérstaklega á síðari áram. Þó sagði hann, eftir að hann missti sjónina, að hann iðraði þess mest, að hann hefði ekki lesið það miklu meira, meðan hann
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.