Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 20
20
NORÐURLJÓSIÐ
hreinsa sálina. „Hvað fær syndir hreinsað brott?“
„Ekkert nema blóðið Jesú.“
Guð hefur tvennt, sem hreinsar á brott þá svörtu
flekki, sem óhlýðnin gerir. Hið fyrra finnst í 1. bréfí
Jóhannesar, 1. kafla, 7. grein: „Blóð Jesú, sonar hans,
hreinsar oss af allri synd.“ Hitt er að fínna í 119.
Sálmi, 9. grein: „Með hverju getur ungur maður
haldið vegi sínum hreinum? (Hreinsað veg sinn. Ensk.
þýð.) með því að gefa gaum að honum samkvæmt orði
þínu.“ (Ensk þýð.) Blóð Krists hreinsar burtu hina
innri bletti en orð Guðs gerir lífemið hreint. Þetta eru
hreinsunarefnin, sem Guð notar.
Sápan eyðist við notkunina og hverfur að lokum í
vatninu. Hvorki dýrmæta blóðið né Orðiðóviðjafnan-
lega hafa breytst um aldaraðir. Gildi þeirra og kraftur
er hinn sami sem í upphafi. Aldirnar hafa hvorki
breytt þeim né veiklað. Krafturinn er hinn sami enn í
blóðinu og kraftaverkamáttur í Orðinu.
Börnunum geðjast ekki að sápu. Biðja verður þau,
hvetja eða knýja til að nota hana. Hversu oft hefur hún
mamma sagt: „Notaðir þú sápu á þig?“ Ef útlitið bar
ekki svarinu vitni, þá lyktaði mamma af andlitinu.
Bamið vex. Ef til vill kemur ástin til sögunnar. Þá
verður sápan dagleg nauðsyn. Fyrr en lokið er
unglings aldri hefur hreinlætis-löngun, og þráin að
líta vel út, aukið notkun sápu til mikilla muna.
Þessu er líka þann veg farið með læknislyf Guðs við
synd - blóðinu og biblíunni Þegar vér verðum oss
þess meðvitandi, að blettir syndar séu á sálinni, sem
Guði eru eins augljósir og mönnunum, þá knýr þetta
okkur til að hagnýta okkur það, sem Guð hefur lagt
fram.
Með auglýsingum alls konar er sápan kunngjörð og
fræg gerð fjær og nær. Framleiðendur hafa vonað og
heppnast, að framleiðsla þeirra yrði hagnýtt af öllum
stéttum og þjóðernum.
Þannig hefur líka Guð vor farið að. Fjær og nær
hefur hann kunngjört með prentuðu máli eða munn-
lega, með útvarpi og sjónvarpi, með auglýsinga
nýjungum, með penna og málningu, að „blóð Jesú
Krists, sonar hans, hreinsar oss af allri synd“. Líka
hann langar til, að sérhver maður í sérhverri stétt
þjóðfélagsins hjá sérhverri þjóð skuli trúa auglýsingu
hans og meðtaki hreinsun syndanna, sem er veitt af
náð.
Alla sápu verður að kaupa. Hún vex ekki á trjám eða
runnum. Hún finnst hvorki í sænum né í jarðvegin-
um. Tæknilist mannanna verður að framleiða hana.
Guðdómlega lyfið við synd er ekki framleitt úr neinu í
ríki náttúrunnar. Það kemur frá höndum Guðs, og er
framleiðsla himinsins. Það er ÓKEYPIS. Enginn fær
það keypt, og enginn getur einangrað það. Enginn
söfnuður né nokkur maður hefur það til sölu. Kristur
einn ræður yfir því. Heilagur Andi heimfærir það.
Sérhver syndari, hvar sem hann er, má veita því við-
töku.
Gakktu alveg úr skugga um það, vinur minn, að þú
sért hreinsaður í blóði Lambsins (Jesú Krists), svo að
þú megir ganga inn í nálægð Guðs.
„Ef það kemur nú fram ... ? “
Eftir C.H. Simeon, að miklu leyti.
Israelsmenn höfðu yfirgefið Drottin og voru enn í
miklum nauðum. Filistar drottnuðu yfir þeim. Þá var
uppi maður nokkur, sem Manóa hét. Kona hans var
óbyrja, hafði aldrei alið bam. Þótti slíkt smán fyrir
hana.
Þá bar svo til einn dag, að engill Drottins birtist
konu Manóa. Flutti hann henni þann boðskap, að hún
mundi verða þunguð, ala son, og að hann mundi byrja
að frelsa ísrael undan valdi Filista.
Konan fór og flutti manni sínum þessar góðu frétt-
ir. Erfitt átti hann með að trúa þeim. Sem svar við
bæn hans til Drottins, kom engill Guðs til konunnar í
annað sinn. Sannfærðist þá Manóa um að þau höfðu
séð engil Drottins, þaðer: Jahve, Guð ísraels. Segir þá
Manóa við konu sína:
„Vissulega munum við deyja, því að við höfum séð
Guð!“ En kona hans svaraði honum: „Ef Drottinn
hefði viljað deyða okkur, þá hefði hann eigi þegið
brennifóm og matfórn af okkur, né látið okkur sjá allt
þetta, og þá hefði hann eigi látið okkur heyra slíka
hluti.“ (Dómarab. 8.22.23.)
Er nokkrir dómarar hafa verið nefndir, sem ritning-
in segir lítið frá, er athygli okkar vakin til íhugunar á
fæðingu og ævi manns, sem verðskuldar sérstaka
íhugun. Foreldrum hans er gefin opinberun, sem
varðar hann. Sömuleiðis skulum við íhuga áhrifin,
sem opinberun þessi hafði á huga þeirra. Skulum vér
þá gefa því gaum:
1. Opinberun þeirri, sem þeirn er gefin.
Ranglætis síns vegna voru Israelsmenn komnir
undir vald Filista, sem kúguðu þá harðlega og um
langan tíma. Af eigin miskunn sinni og náð vakti Guð
þeim upp mann, sem frelsaði þá. Aðrir, sem höfðu
frelsað þá, höfðu komið þegar fram á sjónarsviðið, er
frelsun fólksins átti að verða. Hér var þessi lausnar-
maður ekki enn getinn í móðurlífi, er fyrirheitið um
hann var gefið. Hann átti að fæðast af óbyrju eins og
þeir Isak og Jakob höfðu fæðst.
Þessi drengur átti að vera helgaður Guði frá móður-
lífi. Hann átti að verða Nasírei. Um þá menn voru lög