Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 45

Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 45
NORÐURLJÓSIÐ 45 „Vér fórum allir villir vega sem sauðiru Eftir dr. Kathy Rice. Þessi orð (hér að ofan) eru sannleikur, eiga við mann- kynið allt. En ég held, að giftar konur og ógiftar stúlk- ur megi taka þau mest til sín. Við hjónin eyðum talsvert miklum tíma í biðsölum flugskýla. Á vormánuðum er ég þar þó oftast ein, er á leið til kvennafunda, kvenna-ráðstefna, o.s.frv. Nýlega beið ég lengi í O. Hare flugstöðinni í Chicago. Ég fann salinn, þar sem ég átti að vera, kom mér fyrir til að bíða farkostsins. Ekki leið á löngu, þangað til ung stúlka kom skeið- andi inn í biðsalinn. Þótt við værum aðeins fá í þess- um stóra sal, ákvað hún, er hún hafði litast um, að setjast hjá mér. Óróleg var hún og eirðarlaus og leit alltaf í áttina til mín. Loksins mælti hún: „Hvert ert þú að fara?“ Ég sagði henni, að ég væri á leið heim til mín, skammt frá Nashville, Tennessee. Ég spurði hana, á hvaða leið hún væri. Hún hvaðst vera á leið til Tampa, í Florida. Hún vonaðist til að fá þar vinnu við að syngja. Hún var sí-spyrjandi. Það gladdi mig að geta sagt henni eitthvað um sjálfa mig. Það gaf mér tækifæri til að spyrja hana um sjálfa sig. Hún kvaðst vera sautján ára gömul. Hún var orðin þreytt á ráðríki móður sinnar. Hún ákvað að fara að heiman. Foreldrar hennar gáfu henni peninga til að komast til Chicago. Hún taldi öruggt, að hún gæti unnið fyrir sér með söng. Veitingastúlka varð hún að lokum. Atvinnan féll henni alls ekki í geð. En hún gat nurlað saman, svo að hún gat keypt farseðil til Tampa. Maður nokkur hafði sagt henni, að þar gæti hann útvegað henni góða atvinnu við að syngja. „Er þetta ekki ofurlítið háskalegt - sautján ára stúlka alein á þönum um landið? Hefur ekki fólkið þitt áhyggjur út af þér?“ spurði ég. Hún var fljót að fræða mig um það, að hún gæti sjálf litið eftir sér, og að ég talaði alveg eins og mamma hennar. Unga stúlkan var klædd að hætti margra unglinga nútímans. Hún var í óhreinum, bættum buxum, er féllu fast að beini, í óhreinni, rifirmi karlmanns- skyrtu blárri og í óhreinum kögruðum jakka. Hárið var flókið og óhreint. Þar sem þessi unga stúlka hafði spurt mig svo margra spurninga, ákvað ég að spyrja hana einnar spurningar: „Hvers vegna klæðir þú þig svona?“ Hún svaraði: „Af því að ég vil vera ólík öðrum. Mömmu fínnst, að ég ætti að vera klædd eins og ann- að fólk. Ég vil vera frjáls og klæða mig eins og mér sýnist.“ Þá kom mér bragð í hug, því að ég vissi, að hún var ekki öðru vísi en aðrir. „Þú heldur, að þú sért ólík öðrum í kvenþjóðinni?“ spurði ég. „Við skulum telja konumar og ungu stúlkurnar, sem fara gegnum bið- salinn á næstu mínútum. Við skulum rita hjá okkur, hvernig þær eru klæddar." Á naœtu fáum mínútum höfðum við talið þrjátíu og tvær konur. Aðeins fímm af þessum þrjátíu og tveim- ur voru í pilsi. (Ég varð undrandi sjálf, þótt ég vissi, að flestar konur ferðast í buxum.) „Ber þinni tölu saman við mína? Ég taldi þrjátíu og tvær konin- í buxum?“ Hennar tala var hin sama. „Tókstu eftir því,“ spurði ég hana, „að 17 af þess- um kvenpersónum - og sumar voru ekki mjög ungar, klæddu sig alveg eins og þú?“ Hún hafði veitt því eftirtekt, að margar voru búnar eins og hún, en taldi þær ekki nákvæmlega. „Það lítur út fyrir, að þú sért sauðurinn, en ekki ég.“ Hún vildi undir eins fá að vita, hvað ég ætti við með þessu, svo að ég lauk upp biblíu minni og las fyrir henni Jesaja 53.6.: „Vér fórum allir villir vega sem sauðir.“ Með feimnislegu glotti laut hún niður og sam- sinnti, að hún væri lík heimskri sauðkind. „Ég vildi, að ég hefði hitt þig fyrir löngu. Ég hef verið eitthvað svo óviss um sjálfa mig. Ég ætla að skrifa mömmu og segja henni frá þér.“ Nú var kominn tíminn, að flugvélin mín kæmi. Ég átti svo margt ósagt enn við þessa ungu stúlku. Ég var með flugrit með mér um dvalarbúðir daufdumbra, smárit, sem við gefum þeim með áletruðu nafni mannsins míns og heimilisfangi. Éggafhenni þettaog sagði henni, að ég bæri það fyrir brjósti, að hún frels- aðist. Ég bað hana að skrifa mér, er hún væri búin að koma sér fyrir í Tampa, því að mig langaði til að hjálpa henni. Ég bið um það, að hún láti til sín heyra. Ég held nú fremur, að ég fái það. Þegar ég flaug heim, kom þessi stúlka hvað eftir annað mér í hug. Ég hélt áfram að velta fyrir mér: „Hvers vegna geta konur ekki gert það, sem Drott- inn býður, í stað þess að vera eins og sauðkindur? Hví geta konur ekki skrýtt sig sæmilegum búningi.“ (1. Tím. 2. 9.) (Þýtt úr: „The Princess Scrapbook“ og birt með leyfi útgefanda.) Dýrðar kórónu dýra Drottinn mér gefur þá, réttlætis skrúðann skíra skal ég og, einnig fá upprisudeginum á, hæstum heiðri tilreiddur, af heilögum englum leiddur í sælu þeim sjálfum hjá. H.P.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.