Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 27

Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 27
NORÐURLJÓSIÐ 27 Gídeons-reyflð Úrdráttur úr ræðu eftir síra Charles H. Simeon Þá sagði Gídeon við Guð: „Ef þú ætlar að frelsa Israel fyrir mínar hendur, eins og þú hefur sagt, sjá, þá legg ég ullarreyfí út á láfann. Ef dögg er þá á reyfinu einu, en jörð öll er þurr, þá veit ég, að þú munt frelsa Israel fyrir mínar hendur, eins og þú hefur sagt.“ Og það varð svo. Morguninn eftir reis hann árla og kreisti reifíð, og vatt hann þá dögg úr reyfinu, fulla skál af vatni. En Gídeon sagði við Guð: „Lát eigi reiði þína upptendrast gegn mér, þó að ég tali enn aðeins í þetta sinn. Eg ætla aðeins einu sinni enn að gera tilraun með reyfið. Skal nú reyfið þurrt eitt vera, en jörð öll vot af dögg.“ Og Guð gjörði svo á þeirri nóttu. Var reyfið eitt þurrt, en jörð var þll vot af dögg. Huggunarríkt er að vita það, að engin réttlát ástæða er til örvæntingar, hve vonlaust sem ástand okkar er í þessum heimi. Guð vantar aldrei þau verkfæri, sem hann getur notað til að leysa okkur með úr erfiðleik- um, hversu veik og ófullkomin, sem verkfærin eru, sem hann notar til þess. Naumast mun hægt að ímynda sér vonlausara ástand en það, sem Israelsþjóðin var komin í af völdum Midíans, Amaleks og Austurbyggja. Þessir óvinir Israels „fóru norður þangað með kvikfénað sinn og tjöld sín. Kom slíkur aragrúi af þeim, sem engisprettur væru. Varð engri tölu komið á þá né úlfalda þeirra, og brutust þeir inn í landið til að eyða það.“ Gjörðu ísraelsmenn sér þá fylgsni á íjöllum uppi, hella og vígi fyrir Midían. En þeir gátu með engu móti staðist fyrir innrásarmönnunum. En, er þeir voru í þessum nauðum, þóknaðist Guði að vitja þeirra með miskunn sinni. Vakti hann þeim þá upp hjálparmann, Gídeon, er hann var að þreskja hveiti í vínþröng til að bjarga því undan Midían. Þá kom engill Drottins til hans og fól honum að frelsa Israel. En er hann var farinn, var það, sem Gídeon bað um táknin með ullarreyfinu. Hvaða sannindi sjáum við speglast í þessu? 1. Veikleika mannsins. Gídeon gat ekki trúað til fulls orðum Guðs. Drottinn hafði sagt við hann: „Þú munt frelsa ísrael úr höndum Midíans. Það er ég, sem sendi þig.“ Er Gídeon lét í ljós efa sinn um, að Guð gæti notað svo lélegt verkfæri sem sig, þá gaf Drottinn honum þetta fyrirheit: „Eg mun vera með þér, og þú munt sigra Midían sem einn maður væri. Þrátt fyrir þetta vildi Gídeon fá táknin með reyfið. Sýnir þetta atvik okkur ekki greinilega: 1. Veikleika mannsins. Er þetta ekki spegilmynd af veikleika allra manna? Abraham greip tvisvar til ósanninda, af því að hann gat ekki treyst Guði til að varðveita sig. Sara, þótt hún fái hrós fyrir trú sína, gat samt ekki treyst því, að hún mundi á svo háum aldri ala son. Móse var falið að leiða ísrael út af Egiptalandi. Hann varð að fá þrjú tákn í röð, áður en hann sannfærðist. Asaf varð að segja: „Þetta er kvöl mín: að hægri hönd hins Hæsta hefur breytt sér.“ Lærisveinar Jesú efuðust, þegar stormur- inn skall á þá, er þeir voru á leið yfir Galíleuvatnið. Þó var Drottinn sjálfur með þeim í bátnum. Þegar Pétur gekk á vatninu, varð hann hræddur og tók að sökkva, er hann sá vindinn og ölduganginn. Þannig er þetta á reynslustundunum. Við eigum svo fjarska erfitt með að bera slíkt traust til Guðs, að það losi okkur við allan ótta, svo að við getum falið Guði málefni okkar, án þess að við berum kvíða fyrir endalokunum. Við þekkjum ekki mikið eigin hjörtu, ef við höfum ekki uppgötvað, að í okkur er vont vantrú- arhjarta. Og að bera fullkomið traust til Guðs er hæsta markið og fullkomnun, sem við getum náð. Eins og Job sagði: „Þótt hann deyði mig, vil ég halda áfram að treysta á hann,“ (ensk þýð.). Þessi veikleiki Gídeons varð til að leiða í ljós: 2. Lítillæti Guðs. Guð, í stað þess að gremjast við þjón sinn, veitti honum beiðnir hans. Fyrirheitin voru gefin í fyllstu alvöru. Venjulegur maður hefði móðgast af því, er sannsögli hans var dregin svo í efa. Tvisvar sinnum sagði Gídeon við Guð: „Ef þú ætlar að frelsa Israel fyrir mínar hendur, eins og þú hefur sagt,“ og þá gerði Gídeon tvær tilraunir með reyfið. Hvílíka furðu vekur það, að Guð móðgast ekki, heldur uppfyllir óskir efagjarna þjóns- ins síns. Lítillæti, svipað þessu, sjáum við, að Jesús sýndi efagjarna lærisveininum sínum, honum Tómasi. Lærisveinarnir allir höíðu séð hann, nema Tómas. Allir vitnuðu þeir, að þeir höfðu séð Drottin vorn. En Tómas vildi ekki trúa. Sameinaður vimisburður bræðranna var gagnslaus. Ekki vildi hann heldur trúa eigin augum. Ef hann sæi Drottin, ætlaði hannekki að trúa, nema hann gæti lagt fingur sinn í naglaförin á höndum hans og lagt hönd sína í síðu hans. Réttlátt hefði verið, að hann hefði goldið vantrúar sinnar. En Drottinn birtist honum líka og gefur honum þá sönnun, sem hann krafðist. Við getum líka vænst þess, að lítillætið sama verði okkur sýnt. Satt er það, okkur er ekki gefið vald til að setja nokkra skilmála, hvernig guðlegum vitnisburði verði hagað, né að krefjast sýnilegra tákna, er staðfesti orð Guðs. Við skiljum, að Guð er hinn sami
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.