Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 55

Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 55
NORÐURLJÓSIÐ 55 óhæfur til að þjóna ykkur, hve mikils sem ég gæti metið þessi forréttindi?" „Það er einkamál samviskunnar,“ svöruðu ná- grannar hans feimnislega, „og þarf ekki að dragast inn í þessar umræður.“ „Þið hljótið að hafa gefíð því gaum, heiðruðu herr- ar, að yngri bróðir ykkar er stöðugt önnum kafínn í málefnum kirkju Jesú Krists. Hvorki dag né nótt fæ ég tómstund til venjulegra viðskiptastarfa. Ekki er held- ur nokkur löngun eftir hjá mér til að skipta mér af málefnum þessa heims, hve tiginn sem staðan er.“ En neitanir máttu sín einskis. Hann var kjörinn í einu hljóði. Honum var tilkynnt, að þetta væri stað- reynd. „Ef þér viljið í raun og veru, að ég takist þetta starf á hendur, virðulegu feður, þá verð ég að setja tvö skilyrði.“ „Gefðu skipanir,“ andmæltu þeir. „Það skulu vera lög, sem þú segir.“ „Herrar mínir, þið eruð of kurteisir. Fyrra skilyrði mitt er þetta: Eg get með engu móti komið nálægt fórnum, er varða tilbeiðslu skurðgoðanna eða árs- hátíðir í hofínu. Ég skal ávallt á öllum tímum biðja hinn lifandi Guð, að hann blessi þorpið og að upp- skeran verði ríkuleg. En ég get ekkert gert, sem bendli nafn hans við þetta.“ Hsi til undrunar var þegar gengið að þessu skil- yrði. Öldungar þorpsins höfðu þá þegar búist við þessu og samþykkt þetta. Það hafði ekki farið framhjá þeim, að bænir Hsi í Jesú nafni höfðu markverð áhrif. Þeir voru alveg fúsir til þess, að hann skyldi af þeirra hálfu leita hylli Guðs síns. Skilyrðið síðara var mjög óvænt. „Heiðruðu feður,“ hélt hann áfram, „hlustið á lokaorð mín. Taki ég við þessu starfi, mun ég engar fórnir færa skurðgoðunum sjálfur, og ég verð að krefj- ast þess, að þið breytið eins. Ef þið viljið loka hofinu alveg og heita því, að engin opinber skurðgoðadýrkun fari fram allt árið, þá og með þessu móti einu get ég samþykkt að þjóna ykkur.“ Áhyggjufullir og aistir gengu þá fundarmenn á brott og hrópuðu: „Æ, þetta skilyrði er ógerlegt að samþykkja! Það kemur ekki til mála. Við getum ekki samþykkt það.“ „Herrar mínir,“ svaraði Hsi, „þá get ég ekki held- ur samþykkt uppástungu ykkar.“ Um tíma voru úrslit óráðin. En þegar Hsi var kall- aður na»st að koma til fundar við nágranna sína, komst hann að því, að þeir vildu samþykkja skilmála hans og gengu að þessu. Þetta voru einkennileg venjubrigði, en allt fór vel. Hsi gerði hið besta, sem hann gat, og var mjög bæn- rækinn. Við árslokin kom í ljós, að málefnum þorps- ins hafði aldrei verið betur borgið, og hann var endur- kjörinn með sömu skilmálum. Aftur tók hann starfið að sér sem væri það fyrir Drottin. Uppskerumar urðu góðar, fjármálunum var vel borgið, friður og ánægja ríktu. Eðlilega var hann kjörinn hið þriðja sinn með háværu samþykki. Ekki var minnst á nokkra breytingu, og Hsi samþykkti að þjóna þeim. í þrjú heil ár var hofíð lokað. Ekki voru haldnar nokkrar hátíðir til heiðurs guðunum. Samt dafnaði allt hjá þorpsbúum. Er þriðja árinu lauk, var Hsi ennþá endurkosinn í einu hljóði. En nú hafði starf hans vegna fagnaðar- erindisins vaxið svo ásamt öðmm störfum, að hann gat með engu móti sinnt þörfum þorpsins nægilega vel. Kurteislega, en ákveðið, neitaði hann að halda starf- inu áfram. Þegar honum var árnað heilla vegna þeirrar þjónustu, sem hann hafði leyst af hendi, svaraði hann brosandi, að ef til vill hefðu þorpinu verið spöruð óþörf útgjöld og bætti við: „Eftir þennan tíma hljóta skurðgoðin að vera dauð úr hungri. Hlífið ykkur nú við allri áreynslu í þá átt: að lífga þau við!“ Þetta var verkleg kennsla, sem ekki var létt að gleyma. 6. KAFLI Undirhirðar - vandamál. Þetta var sannarlegt vandamál. Hvemig svo sem þau ráðfærðu sig hvort við annað, Hsi og konan hans, gátu þau ekki séð lausn á því. Starfíð, sem vaxið hafði upp umhverfis þau, varð æ flóknara. Þeir, sem tekið höfðu trú á Krist í þorpun- um kringum þau, væntu hjálpar og fræðslu frá þeim. Kristniboðsstöðin í borginni var meira en 16 km. í burtu. Þótt yngri menn gengju þangað á sunnudög- um til að vera þar á samkomum og kæmust þannig í samband við kristniboðana, þá var það gamla fólkið, sömuleiðis konur og böm, sem fann, að svo löng ferð var þeim ofraun. Af þesu leiddi, að eftirlitið með þessu fólki varð að vera nær. Oft þarfnaðist líkaminn hjálp- ar eins og sálin. Því að fólkið, er snúist hafði til trúar, var ekki ein- göngu fátækt, það var oft ofsótt. Margur var sá maður- inn, er hafði getað séð vel fyrir fjölskyldu sinni. En þegar hann varð kristinn, var hann sviptur allt í einu þeim möguleikum: að geta séð fyrir sér og fjölskyldu sinni. Atvinnurekandi heiðinn eða ættingjar ráku hann. Verk, sem hann fékk að vinna, gat verið þess eðlis, að hann væri neyddur til að hætta við það. Aðrir voru kúgaðir eða haft af þeim með svikum, stundum reknir frá húsi og heimili. Ópíums ræktun varð að hætta, sem gaf svo mikið í aðra hönd. Heiðarlegri við-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.