Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 33

Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 33
NORÐURLJÓSIÐ 33 Jósúa - táknmynd af Kristi Eftir C. H. Simeon “Þú munt ekki komast yfir hana Jórdan. En skipa þú Jósúa foringja og tel hug í hann og gjör hann öruggan, því að hann skal fara yfir um fyrir þessu fólki, og hann skal skipta meðal þeirra landinu, sem þú sér.“ Þegar vér lesum frásagnirnar af því, hvernig Guð breytti gagnvart Gyðingum (og Israel, þýð.) getum við stundum freistast til að draga hann fyrir dómstól mannlegrar skynsemi og telja, að hann hafi komið harkalega fram við þá. En dómar hennar, þeir munu verða heimskulegir og það í mesta máta. Dómgreind vor getur ekki dæmt um það, sem liggur utan við vits- muna svið hennar. Hæfileikar vorir eru smávaxnir. Guð breytir rétt, þó pð oss finnist hið gagnstæða. Sýnishorn af þessu má telja það, að Móse var ekki leyft að fara inn í fyrirheitna landið. Leitt hafði hann Israelsmenn burt úr Egiftalandi. I fjörutíu ár hafði hann umborið þrjósku þeirra. Hógværð hans átti hvergi sinn líka. Aðeins einu sinni hafði honum orðið á, er hann óhlýðnaðist Guði. Vegna þeirrar óhlýðni varð hann að afhenda Jósúa foringjastarf sitt, valdið og heiðurinn af því: að leiða lýðinn inn í landið fyrir- heitna. Honum var jafnvel bannað, að hann bæði um leyfi til að fara inn í fyrirheitna landið. Vér getum skilið, hvemig stóð á þessu. Móse var fulltrúi og táknmynd lögmálsins. Jósúa, sem eftir- maður hans, var sérstæð táknmynd Krists. Skal það nú rakið nánar hér. 1. Nafnið Jósúa. Það táknaði starf hans og stöðu. Hann hét fyrst Hósea, en Móse breytti nafni hans í Jósúa. Vafalaust var það að Guðs ráði. Með því varð ennþá greinilegra, að hann væri fyrirmynd af Jesú. Guðlegur frelsari merkir nafnið. Það var sérkenni starfsins, sem hann átti að leysa af hendi. Jósúa og Jesús eru eins á grísku. En engillinn, sem tjáði Jósef, hvað sonur Maríu skyldi heita, bauð að kalla nafn hans „Jesús“, „því að hann mun frelsa lýð sinn frá syndum þeirra.“ (Matt. 1.21.) Hann átti að verða „höfundur eilífs hjálpræðis öllum þeim, er honum hlýða." (Hebr. 5.9.) 2. Staða Jósúa. Hlutverk hans var, að hann leiddi Israelsmenn inn í landið fyrirheitna. Þetta var Móse ekki leyft að gjöra. Hann gat leitt lýðinn um eyðimörk- ina, en ekki inn í landið. Ein hrösun hindraði það. Lögmálið getur aldrei gjört fólk svo fullkomið, að það frelsist vegna verka sinna. Ein hrösun, ein synd, úti- lokar það. Þú verður að minnast þess, að þú getur ekki barist í eigin krafti. Þú verður að „styrkjast í Drottni og í krafti máttar hans,“ ef þú ætlar að vinna sigur á andlegum óvinum þínum. Undir forystu Jósúa vann ísrael sigur á óvinum sínum, Midíanítum. Og undir forustu Drottins Jesú getur þú unnið sigur á andlegum óvinum þínum. Undir forustu Jósúa unnu síðan Israelsmenn Kanaan- land. Enginn af óvinum þeirra gat staðist fyrir þeim. 3. Við þá, sem enn hafa ekki frelsast, vil ég segja: Allir óvinir ísraelsmanna féllu fyrir þeim, nema ein ^jóð, sem bjó í Gíbeu. Þeir gáfu sig friðsamlega á vald Israel og gjörðu við Jósúa sáttmála, að þeir skyldu ekki týna lífinu. Við þá, sem eignast vilja fyrirheitna landið, hryggir mig að segja: Margir, sem þrá þetta góða land, komast aldrei inn í það. I fyrsta lagi er það vegna þess, að þeir leita þess ekki með nógu mikilli alvöru, og í öðru lagi er það af því, að þeir ganga ekki þann veg, sem Guð hefur ætlað þeim að fara. Um fyrra atriðið er það að segja, að hinn blessaði Drottinn vor segir: „Kostið kapps um að komast inn um þröngu dyrnar, því að margir, segi ég yður, munu leitast við að komast inn og ekki §eta.“ Um þá segir postulinn Páll, um meginþorra alls Israels, hann „sóttist eftir lögmáli, er veitt gæti rétt- læti, en náði ekki slíku lögmáli. Hvers vegna? Af því að þeir ætluðu sér að réttlætast ekki af trú, heldur með verkum .... Kristur hefur bundið enda á lögmálið, svo að nú réttlætist sérhver sá, sem trúir.“ I stað þess að trúa á Krist, hneyksluðust þeir á honum. Þannig varð hann þeim ásteytingarsteinn og hrösunarhella. Þetta varð ísrael til tortýningar, en heiðingjunum til eilífs hjálpræðis, öllum þeim, sem trúað hafa á hann. Bræður mínir, ég get aldrei nógu alvarlega brýnt það fyrir yður, hve nauðsynlegt það er, að þér yfirgefið lögmál Móse sem grundvöll til að byggja von sína á, heldur að trysta á Drottin Jesúm Krist einan sér til hjálpræðis. Ef Móse sjálfum var ekki leyft að leiða fólk sitt inn í hið jarðneska Kanaanland, né að koma þangað sjálfur, hversu miklu síður getur hann þá leitt ykkur inn í hið himnneska Kanaanland? sem leiðtogi gegnum eyðimörkina er hann ágætur. En sem frelsari er hann gagnslaus. Jósúa einn getur látið þig taka fyrirheitna landið til eignar. Það er aðeins Jesús einn, sem getur veitt þér fullkomið hjálpræði. Við þá, sem enn eru óvinir Drottins Jesú vil ég segja: Þið vitið, að endalok ófriðarins, baráttunnar gegn Jósúa, var sá, að þrjátíu og einn konungur féll fyrir honum. En ég vil benda ykkur á Gíbeoníta sem fyrirmynd. Þeir vissu, að þeir gátu ekki sigrað Jósúa. Þess vegna sendu þeir menn á fund hans, er létust vera komnir af fjarlægu landi og vildu gera sáttmála við hann. Þeir fengu þessu framgengt og var því ekki tor- tímt ásamt öðrum landsbúum, sem heldur kusu að berjast. Ef þú vilt fara að dæmi Gíbeu-manna, þá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.