Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 37

Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 37
NORÐURLJÓSIÐ 37 A grundvelli bænarinnar. Eftir Frank Mangs. ,,Hann tók þá Pétur, Jákob ogjóhennes með sér og fór upp á fjallið til að biðjast fyrir. Og er hann var að biðjast fyrir, varð útlit ásjónu hans annað, og klceði hans urðu Ijómandi hvít. “ (Lúk. 9. 28.-29.) Hann fór upp á fjallið til að biðjast fyrir. Það var ekki aðeins í þetta skipti, sem Drottinn Jesús gerði það. Hann tók sig oft út úr mannfjöldanum og fór á afvikna staði til að biðja. Stundum tók hann nánustu lærisveina síns með sér. I þetta sinn tók hann aðeins þrjá lærisveina með sér, og oft var hann aleinn á slíkum stundum. Guðspjallamaðurinn Markús segir frá því, að kvöld nokkurt, eftir að sól var sest, kom fólkið með marga, sem sjúkir voru og þjáðir af illum öndum og hann læknaði þá. En snemma morguninn eftir, meðan enn þá var dimmt, fór hann burtu á óbyggðan stað til að biðja. Aður en sólargeislarnir höfðu varpað litadýrð sinni á austurloftið, og áður en hinn vængjaði kór skógarins hóf upp morgunlofgjörð sína, hafði Jesús fallið fram fyrir ásjónu Föður síns í bæn og tilbeiðslu. Hann vissi, að hann þurfti nýjan kraft, fyrir hinar mörgu þarfír hins nýja dags, og þess vegna vildi hann mæta þeim á knjánum við heilaga orkulind bænarinnar. I annað skipti lesum við, „að mikill fólksfjöldi þrengdist að honum til að hlusta á hann og fá lækningu á sjúkdómum sínum. - En hann dró sig út úr til óbyggðra staða og var þar á bæn.“ Hann dró sig út úr. Getur þú skilið það? - Hann var þó kominn til að leita að hinum týndu og hjálpa hinum voluðu. Hann hafði sagt þeim, sem bera þungar byrðar, að koma til sín og fá frið fyrir sínar þreyttu sálir. Og þegar þeir komu dró hann sig út úr. Hann yfírgaf hina sjúku og þá, sem haldnir voru af illum öndum, og þá, sem höfðu þráð að ná fundi hans, og fór burt til að biðja. Fyrir Jesú var eitt, sem var enn þá mikilvægara en að predika, lækna sjúka og reka út illa anda, og það var að biðja. Hann var svo óaðskiljanlegur sínum himneska Föður, að hann sagði þessi orð: „Sonurinn getur ekkert gjört af sjálfum sér, nema það, sem hann sér Föðurinn gera.“----Enginn gat slitið hið lifandi samband, sem var milli hans og Föðurins. Þegar hann fann, að starfíð og verkefnin ætluðu að þrengja sér milli hans og miðstöðvar hinna himnesku krafta, dró hann sig út úr til að biðja. Það, sem hann gerði alla tíma, var: að hans himneski Faðir gæti orðið dýrlegur í honum. Og alltaf, er hann kom aftur frá þessum ótrufluðu bænamótum með Guði, gerðist eitthvað. Kraftur Drottins var yfír honum til að lækna hina sjúku. Illir andar flýðu burtu og syndarar skulfu fyrir gegnum- þrengjandi boðskapnum. En takið nú eftir:-----------Fyrst Guðs sonur þurfti að taka svo mikinn tíma til bæna, hvernig getur það þá átt sér stað, að lærisveinar hans láti sér nægja að biðja svo lítið? Einhver mesta hætta fyrir Guðs fólk á okkar tímum er, að við tökum allt of lítinn tíma til bæna. Þú, sem ert húsmóðir, veist svo vel, að oft byrjar þú starf þitt snemma á morgnana, og án þess að fá hvíld eða ró heldur þú áfram langt fram á kvöld. Engan þarf að undra, að þitt andlega líf þurrkist svo að segja út. Öll lífsbaráttan þín verður þung og erfíð, þegar þú færð ekki kraft frá hæðum gegnum leiðslu bænarinnar. Og þú, bróðir minn, sem ert kaupsýslumaður, þú trúir á Guð, en oft hefur þú vaknað á morgnana, með hjartað og höfuðið fullt af viðskiptahugsunum. Þú hefur reynt að biðja við morgunverðarborðið, en það var fremur formsatriði, en að það kæmi frá hjartanu. Hugur þinn fylgdi ekki með. Allan daginn varstu að fást við kvartanir og reikninga, sem þú varðst að sinna, þegar þú að lokum hafðir lokið dagsverkinu og varst lagstur til hvíldar, varstu svo þreyttur, að þú gast varla sent örstutt bænarandvarp til himins. Bróðir minn, þú mátt ekki álíta, að í þessum orðum felist dómur. En ég vil aðeins hrópa aðvörun til þín í Jesú nafni: Gáðu að þér. Gættu þess, að fyrirtæki þitt verði ekki eins og slagbrandur milli þín og Guðs. Við stöndum einnig frammi fyrir sömu hættu í andlega starfínu. Ört vaxandi mannlegt skipulag hefur orsakað andlegan dauða fleiri en eins predikara. Fyrir 20 árum var predikarinn brennandi í Andanum og bað mikið. En nú þarf hann að sjá um svo mörg mót og samkomur, svo mörg þjóðfélags áhugamál, svo margar sjúkraheimsóknir, og svo mikil skrifstofustörf, að hann fær svo að segja, engan tíma til bæna. Það er ljóst, að skipulag er gott, ef það er undir leiðsögn heilags Anda og fær að vera verkfæri kraftar hans. En ef skipulagið sjálft (hið mannlega skipulag) nær yfírhöndinni, eins og það hefur í mörgum tilfellum gert, þá sannarlega megum við biðja: Guð frelsaðu okkur frá öllu þessu vélræna. Það er hægt að vera svo upptekinn í beinu starfí fyrir frelsi sálna, að það gleymist að hugsa um sitt andlega líf. Maður getur unnið af svo miklum ákafa í vakningar- og uppbyggingarmótum, að ekki fáist tími til að eiga hljóðar stundir með Guði. Og það skaltu vita, bróðir minn, að þá erum við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.