Norðurljósið - 01.01.1980, Síða 32

Norðurljósið - 01.01.1980, Síða 32
NORÐURLJÓSIÐ 32 „Þetta er einkennileg mynd! Ég býst við, að þeir séu mjög fátækir,“ sagði hann við kristniboðann, sem var túlkur þeirra og leiðsögumaður hópsins. „Já,“ var svarað hljóðlátlega. Þetta er Chi Noui fjölskyldan. Þegar kirkjan var byggð, vildu þeir fúslega leggja eitthvað af mörkum. En peninga átti hún ekki til. Eini uxinn var því seldur og peningarnir gefnir kirkjunni. Þetta vor draga þeir plóginn sjálfir." Lögfræðingurinn og kaupsýslumaðurinn þögðu svolitla stund. Kaupsýslumaðurinn sagði þá: „Þetta hlýtur að hafa verið virkileg fóm.“ „Ekki nefndi hún þetta því nafni. Þeir litu þannig á, að þeir höfðu verið lánsamir að eiga uxa til að selja.“ Lögfræðingurinn og kaupsýslumaðurinn gátu lítið sagt. En er þeir komu heim, fór lögfræðingurinn með myndina til safnaðarhirðisins og sagði honum söguna. „Mig langar til að tvöfalda það, sem ég gef til safnaðarþarfa, og gjörðu svo vel að gefa mér einhverja plæginga-vinnu. Aldrei hef ég áður skilið, hvað orðið fórn vegna kirkjunnar merkti. Maður, er snúist hafði frá heiðni, kenndi mér það. Ég blygðast mín fyrir að segja, að ég hef aldrei gefíð nokkuð til safnaðar-þarfa, sem kostaði mig eitthvað.“ Venjulegur nútímamaður, hve miklu fómar hann vegna safnaðar síns? Hvað eru þeir margir, sem kalla sig kristna, sem hafa selt uxann sinn og síðan dregið plóginn sjálfír? (Þýtt úr „The Sword of the Lord“ - Sverði Drottins - og tekið þar upp úr blaðinu „The Evangelist” - Fagnaðarboðinn.) Sérhver þörf uppfyllt. „Guð minn mun uppfylla sérhverja þörf yðar.“ (Filippíbréfíð 4. 19.) Náið hefur postulinn Páll þekkt Guð, er hann dirfðist að gefa þetta fyrirheit af hálfu Guðs! Gefíð gaum að fullvissunni í orðinu ,mun‘, víðfeðmi þess ,sérhverja‘ - ,þörf - ekki löngun, og ótakmarkaðri auðlegð himneska bankans: „eftir auðlegð dýrðar sinnar í Kristi Jesú.“ (Ensk þýð.) A því sviði, þar sem starfað er fyrir Guð, er oft vitnað til þessa fyrirheits. En í huga vorum er það oftast tengt við menn, íjármuni og efniskennd þægindi. Vér gleymum því oft, að þessir hlutir allir em undir höndum hans og að hann ráðstafar þeim. Það er ekkert erfítt fyrir hann að gefa oss það, sem hann vill, hvernig og hvenær sem hann vill gefa þá. En vér höfum líka þarfír, sem Guð bíður með að uppfylla, gjafír, sem hann eðli sínu samkvæmt, getur ekki þröngvað okkur til að þiggja, þarfír anda okkar. Hann getur krafíst að fá að fást við hrokann í okkur, þegar við rannsökum starf okkar fyrir Guð, eða ef við lítum öfundaraugum góðan árangur hjá öðrum, eða óþolinmæði vegna galla þeirra, sem við vinnum með. Hvert af okkur verður aldrei óþolinmótt, er við bíðum eftir Guði? Við erum lík bömum, sem aldrei geta beðið, er við viljum fá kröfum okkar fullnægt þegar í stað. Allt þetta og margt annað, sem hjartað þarfnast, getum við fengið vegna ótakmörkuðu birgðanna, sem geymdar eru í auðæfum Krists. Guð gefí þá, að við séum svo í samstarfi við hann, að allar okkar þarfír, tímanlegar og andlegar, augljósar eða huldar, verði okkur sýndar og uppfylltar í honum. (Bænasamfélags smáritið, júní 1978, frá Scripture GiftMission (Ritninga-gjafa félaginu (ScriptureGift Mission, Radstock House, 3 Eccleston Street, London SWIW 9LZ, Englandi.) ,yA stopulum stundum.“ í síðasta árgangi Norðurljóssins gat ég þess, að í ráði væri að gefa út ljóðasafn mitt: „A stopulum stundum.“ Verðið var 1500 kr. í kápu, en 2500 kr. í bandi. Við nánari athugun kom í ljós, að þessi verð- ákvörðun gat ekki staðist. Offset-prentun hækkaði geysimikið, sömuleiðis hækkaði líka prentunar kostnaður. Ut úr þessum erfíðleikum sá ég aðeins eina færa leið. Hún var sú: að vélrita öll ljóðin sjálfur. Var það framkvæmt, og þá ýmislegt fært til betri vegar en áður var. En því miður er ég ekki nákvæmur vélritari. í meira en fjórðung aldar ætlaði Mr. Gook að veita mér sérstök verðlaun, ef ég ritaði 3 villulaus bréf í röð. Óþarft mun að geta þess, að til verðlaunanna vann ég aldrei. Þetta kom fram við vélritun ljóðanna og yfír sáust mér villur, þótt margar væru leiðréttar. En gildi sjálfrar bókarinnar breytist ekki þar með. Gert var ráð fyrir, að gefín yrðu út 100 eintök. Af þeim eru nú farin frá mér 92, þegar þetta er ritað. Langi einhvern, sem les þetta, til að eignast bókina, þá er verðið með póstgjaldi og söluskatti 6000 kr. En borgun sé látin fylgja pöntun. Um bókina ritar svo kona, er var mér samtíða í Kennaraskólanum, á þessa leið: „Kæri gamli skólabróðir. Ég þakka þér innilega fyrir bók þína. „Á stopulum stundum.“ Eg samgleðst þér, hve mikill afkastamaður þú ert, hvað ritsnilld og andagift snertir. Það, sem ég hef lesið í bókinni, fínn ég bæði skemmtilegt að lesa og hefur bætandi áhrif á lesarann.“ Guðs er dýrðin fyrir allt það, sem vel er gert, og þær ánægju stundir, sem þú getur haft af bókinni, ef þú eignast hana. - S.G.J.

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.