Norðurljósið - 01.01.1980, Page 67

Norðurljósið - 01.01.1980, Page 67
NORÐURLJÓSIÐ 67 Það kom brátt í ljós, að þessi maður var alveg vakn- aður. „Þú varst einu sinni jafnmikill ópíums-reyk- ingamaður og ég. Hvemig fékkstu lausn? Er nokkur von um mig?“ Glaður og þakklátur sagði Liu honum frá Jesú og fór með hann í Hælið í Fan-ts’uen. Þar var hann lækn- aður af ópíums nautn og unninn til trúar á Krist. Kominn heim til So-pu var hann einnig fylltur brenn- andi löngun til að leiða aðra til frelsarans. Gestasalur stór var í húsi hans. Hann lét opna hann, svo að reglu- bundnar samkomur yrðu haldnar þar. Þetta var ein- mitt það, sem Liu og konu hans hafði langað til. Mjög uppörvuð af þessu hófu þau þar reglubundnar sam- komur. Seinna kom svo Hsi þangað og stofnaði Hæli þar í þorpinu handa ópíums-reykjendum. Mikil þörf var á því þar. Liu-hjónin vom látin sjá um það. Blessun Guðs hvíldi brátt yfír starfi þeirra. Voru þau virt sem trúfastir starfsmenn á þó nokkrum mikilvægum svið- um. Liu var í mörg ár djákni safnaðarins, elskaður og virtur að verðleikum og líka einn af dýrmætustu hjálp- armönnum, sem Hsi hafði. (Hér má geta má geta þess, að kristniboðarnir í Shani-si voru hræðilega ofsóttir árið 1900, þegar hin svonefnda Boxara-uppreisn var gerð. Var markmið hennar að reka alla erlenda kristniboða úr landi, en þó helst að drepa þá. Liu hætti lífi sínu hvað eftir annað til að hjálpa þeim að flýja og fylgdi þeim yfir fjöllin, en það var 45 daga ferð. Síðar voru skaðabætur greiddar þeim, sem urðu fyrir eignatjóni. Taldi Liu sig ekki rétt meðfarinn í þeim málum, yfirgaf kristniboðið og gekk í rómversk-kaþólsku kirkjuna.) Er aldur færðist yfir konu hans Liu, varð hún sjúk af asma og fleiru. Ekki vildi hún heyra, að hann væri heima hennar vegna. „Þó að ég sé veikburða, vil ég heldur vera alein heima mánuðum saman en hindra hann í starfi." Er hún varð of öldruð og lasburða til að komast út úr herbergi sínu, safnaði hún samt fáeinum konum úr þorpinu til sín, kenndi þeim að lesa og biðja, og fúslega sá hún um mat og drykk handa predikurum, sem komu þangað til að halda guðsþjónustur í þorpinu. Nú er hún farin, sæti hennar autt. Milds og kær- leiksríks anda hennar er saknað í So-pu. Þar hefur engin ennþá tekið við starfi hennar. Slíkra kristinna manna er mikil þörf í Kína. Sjálfir hafa þeir frelsast úr heiðindómi. Þeir búa í kínversk- um heimilum, skilja hjörtu Kínverja og brenna af kær- leika til sálna, sem frelsarinn dó fjrir. Þeir eru meðal bestu kristniboða og ná bestum árangri. Einn árangurinn af því starfi, sem Hsi vann að nú, ef til vill aðalárangurinn, var þroski slíkra karla og kvenna. 9. KAFLI Höfuöborgin heimsótt Aðeins fimm ár voru liðin, síðan hafið var fast kristni- boðsstarf í Shan-si. Var það við endalok hræðilegrar hungursneyðar. Vorið 1878 komu þeir David Hill og félagar hans í héraðið. Þar var enginn kristinn maður úr hópi Mót- mælenda. Varla var þar heldur nokkur leitandi sann- leikans meðal allra milljónanna. Sumarið 1883, fjórða árið eftir afturhvarf hans Hsi, voru komnar tvær mikilvægar stöðvar. Tveir litlir söfnuðir höfðu verið stofnaðir. Voru í þeim nokkrir tugir manna. Margir biðu eftir inntöku í þá. I norðurborginni T’ai-yuan, höfuðborg fylkisins, var öflug lækninga-miðstöð. Sóttu þangað sjúklingar, sem heima áttu iiman 320 km. frá borginni. Nokkur þúsund manns fengu lækn- ishjálp árlega. Viðurkenndur dugnaður útlenda læknisins, sem hét Harold Schoufield, vann starfinu vini fjær og nær. í P’ing-yang sunnar - þangað var viku ferðalag - hafði áhugi og guðrækni trúskiptinga útbreitt fagnaðarboðskapinn svo víða, að kristnir menn fyrirftmdust í þorpum, sem lágu 64 km. hvert frá öðru. Kristniboðarnir höfðu starfað rækilega og náð langt. Fylkinu höfðu þeir skipt á milli sín, heimsótt þar meira en áttatíu stjórnandi borgir - allar borgirnar - predikað mikið á strætum úti og í tesölu-stofum. Selt höfðu þeir mikið af köflum úr Ritningunni, gengið hús úr húsi og gefið smárit. Stóð á þeim, hvar væri hægt að fá meiri fræðslu. Þessir þöglu sendiboðar höfðu borist til þorpa og sveitabýla. Sums staðar höfðu þau fundið góðan jarðveg - eins og hjá Fan. Þetta voru tímar þróunar og framfara í kristniboðs- starfi í Kína Upplöndum. Sjö árum áður hafði Chefoo-samningurinn verið undirritaður. Þar með opnuðust öll Upplöndin fyrir fagnaðarboðskapnum. Félagsmenn í Kína Upplanda kristniboðinu biðu til- búnir þessa tækifæris. Þeir fóru þegar í stað til Upp- landanna. Á þremur árum höfðu þeir ferðast 48.000 km. í brautryðjenda ferðalögum. Þeir boðuðu Krist í fyrsta skipti á stöðum, sem fjarlægir voru og erfitt að komast til. Blessun hafði hvílt yfir starfi þeirra, eins og í Shan-si. Kristniboðsstöðvar voru famar að rísa upp. Litlir söfnuðir höfðu verið stofnaðir í fylkjum þar, sem fagnaðarerindið hafði aldrei verið boðað áður. I þessari nýju og mjög nauðsynlegu hreyfingu voru ekki karlmenn einir frumherjar. Líka voru þar konur, giftar eða ógiftar, og höfðu tekið hetjulegan þátt í starfinu, - allt frá hvíthærðu konunni, sem aðeins hafði eina stúlku til fylgdar og innfædda, kristna menn, er fór langt í norðvesturátt - og til brúðarinnar,

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.