Norðurljósið - 01.01.1980, Síða 70

Norðurljósið - 01.01.1980, Síða 70
70 NORÐURLJÓSIÐ er komin í augun mín. Ég get aðeins gengið stuttar leiðir. Þú skilur, að mér er það ómögulegt: að fara til fjarlægra landa og predika fagnaðarerindið. Hefðir þú komið, þegar ég var ung, - en nú er það of seint. Ég get ekki verið lærisveinn hans.“ Kristniboðinn skýrði, fullur samúðar, merkingu orða frelsarans. Hann ræddi um fullkomna samúð hans og næma viðurkenning hans á öllu, sem á rót sína að rekja til kærleika til hans. Hann vissi um gjöf ekkjunnar og sagði um aðra konu, sem gat ekki þjónað honum mikið: „Hún hefur gjört það, sem í hennar valdi stóð. Hún hafði gjört það, sem hún gat.“ „Það, sem hún gat!“ Var þetta merking orðanna? Þá væri ekkert til fyrirstöðu. Gamla, kæra konan gat varla beðið næsta sunnudags eftir skím. Full af gleði, yfir þessum nýju forréttindum sínum, varð hún ein af bestu meðlimum litla safnaðarins. Um það bil er lauk dvöl Hsi í höfuðborginni, kom fyrir atvik, er bakaði honum mikla hugar-áreynslu, og fékk hryggileg endalok. Þegar dr. Schofield var að skoða sjúklinga dag nokkum, var komið til hans með unga konu í sjúkra- húsið. Hún þjáðist af því, sem maður hennar kallaði illan anda. Læknirinn skoðaði hana vandlega, en líkamlega skýringu á þessum erfiðu einkennum, gat hann enga fundið. Hún virtist alveg á valdi vonds afls. Köstin vom svo áköf, að líf hennar var í hættu. Læknirinn tiltók lyf, sem hann vonaðist til að gætu hjálpað henni. Aðrir sjúklingaar biðu skoðunar. En hann stakk upp á því, að Hsi firá P’ing-yang, sem þá var staddur í borginni, yrði boðið að heimsækja þau. Þakklátur fyrir einhvem vonargeisla fór maður hennar til Hsi og sárbað hann að koma og frelsa heimilið frá eymd. Hsi var þetta mjög sársaukafull skylda. Væri það nokkuð, sem hann að eðlisfari hörfaði frá, þá voru það ei.imitt slík tilfelli. Hann vissi, hve raunvemlegur og hræðilegur getur verið máttur illra anda og meðvit- undin um nálægð þeirra í slíkum tilfellum. Augnaráð þeirra, sem orðið hafa þeim að bráð, getur oft nægt til að koma manni til að skjálfa. Krampakenndar hreyf- ingar þeirra og hryllilegt orðbragð vekja skelfingu, sem naumast er unnt að tjá. En þótt þetta væri erfitt, þorði hann ekki að víkjast undan skyldu sinni. I hjarta sínu hrópaði hann til Guðs alla leiðina, meðan hann fylgdi á eftir unga manninum, er hraðaði sér heim með hann. Engum gat skjátlast um æsinguna og mglinginn, sem réði öllu, er þeir komu. Unga stúlkan var með eitt af þessum hræðilegu köstum sínum. Hálf tylft ná- granna héldu henni niðri, svo að hún skaðaði hvorki sjálfa sig né þá, sem voru í nánd við hana. Hsi kallaði íjölskylduna saman, útskýrði stuttlega, að hann eins og hún gæti ekkert gjört. En sá Guð, er hann dýrkaði, væri hinn lifandi Guð, er fullkomlega gæti læknað og frelsað. Fólkið hlýddi á með sýnilegum áhuga, meðan hann sagði söguna dásamlegu um kærleika frelsarans. Það var fúst til að taka niður skurðgoð sín, ef hann vildi einungis biðja fyrir því, að vandræði þess yrðu leyst og syndir þess fyrirgefnar. Er hann hafði beðið upphátt um blessun Guðs, var farið með Hsi inn í herbergið, sem ópin og ógangurinn heyrðust úr. Jafnskjótt og hann kom inn, kom logn. Stúlkan sá hann, hætti að brjótast um og á rólegan, virðingarfullan hátt bað hann að setjast niður. Undrandi hrópuðu áhorfendur strax, að andarnir væru farnir. „Nei,“ svaraði Hsi. Hann gat séð í augum hennar, að eitthvað var að, „hún er ekkert betri ennþá. Djöfullinn er að reyna að táldraga okkur.“ Stúlkan var ennþá vinsamleg og reyndi að segja þessi kurteislegu orð, sem venja er að nota, þegar ókunnugir eru ávarpaðir. En Hsi gekk til hennar lagði hendur sínar á höfuð henni, bað innilega í nafni Jesú og skipaði illu öndunum að fara undir eins út af henni. Skyndilega, meðan hann var enn að biðja, stökk hún á fætur. Með hræðilegu ópi þaut hún út í húsagarðinn, féll meðvitundarlaus til jarðar og sýndist vera að deyja. „Æ, hún er dáin, þú hefur drepið hana!“ hrópuðu skelkaðir vinir hennar. Hsi reisti hana hljóðlega á fætur. „Verið þið ekki hræddir,“ sagði hann. „Andamir em farnir. Hún nær sér bráðum." Eftir litla stund raknaði hún við, eins og úr djúpu yfirliði. Hún komst til meðvitundar og var brátt kom- in í eðlilegt ástand. Maður hennar var fullur af þakklæti, sótti guðs- þjónustur í kapellu kristniboðsins og með hálfvelgju játaði krisma trú. Þótt sorglegt sé að segja, var hon- um þetta ekki raunverulegt og engum í fjölskyldunni. Meðan Hsi dvaldi þar, fór hann öðm hvoru að finna hann. Tók hann þá með sér einhverja litla gjöf til að sýna honum, hve skuldbundinn hann væri honum og þakklátur. Svo var það morgun einn, að hann sneri heim úr slíkri heimsóknarferð. Var hann þá með sælgætis- pakka, sem hann hafði ætlað Hsi. „Hvers vegna ertu kominn aftur með gjöfina?“ kallaði kona hans, er hann kom inn í húsgarðinn. „Fræðimaðurinn er farinn úr borginni,“ svaraði hann, „og er á leiðinni heim í sitt fylki.“ Orðin höfðu varla verið töluð fyrr en vesalings stúlkan var komin aftur í sitt fyrra ástand. Mitt í hinum hræðilegustu krampaflogum, ásamt viðbjóðs- legu orðbragði og guðlöstunum, sem streymdu af vör-

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.