Alþýðublaðið - 24.12.1962, Page 1

Alþýðublaðið - 24.12.1962, Page 1
„í UPPHAFI VAR ORÐIÐ .. OG ORÐIÐ VARÐ HOLD OG BJÖ MEÐ OSS“. (Jóh.1,1.14.). í. Kunningi minn sagði einu sinni við mig, að sjer fynd- ist miklu rökrænna að segja : í upphafi var hugsunin, — því að hugs- unin væri undanfari orðsins, sem talað er. Vera má, að hann hafi rjett fyrir sjer út frá nútímahugsunarhætti, en rithöfundar biblíunn- ar hugsa ekki þaunig. Þegar biblían talar um orð guðs, er átt við hugsun og búning liugsunarinnar sem eina heild, — hugsun guðs í formbundnu gerfi. Þeim augum litu hinir fornu hugsuðir á sköp- unina, sem í sjálfu sér var í því fólgin, að hugsun guðs hlaut sitt ákveðna form, er mennirnir gátu skynjað. Fornþjóðirnar hugsuðu myndrænt og táknrænt, er þær gerðu sér grein fyrir tilverunni. Þeim veittist auðvelt að hugsa sjer huglæg hugtök sem persónur, eins og vjer þekkjum úr skáldskap, — einkum skáldskap fyrri tíða. Þannig varð Speki guðs, Vizka guðs, að sjerstakri, guðlegri veru. Sumir skólar eða hreyfingar dulspek- inga nefndu þessa veru I, o g o s, Orðið, og trúðu því, að hún hefði I þjónustu sinni engla og meðalgangara, sem veittu mönnunum þekkingu á guði. Griskir heimspekingar (Stóumenn) hjeldu því fram, að maðurinn gæti öðlast þekkingu á guði, með skynsemi sinni og innsæi í tilveruna, því að hin guðlega vizka, guðlega skynsemi væri að baki öllu. Þessa grundvallarhugsun tilverunnar nefndu þeir einnig L o g o s , Orðið. Þegar Jóhannes guðspjallamaður segir: Orðið varð hold, þá á hann fyrst og fremst við, að hugsun guðs sje opinberuð í manni meðal manna. Hún sje ekki dulin bak við tilveruna, nje heldur eigi hún sæti í himinhæðum, fjarri jörðunni, heldur sje Jesús Kristur orð guðs, bugsun guðs, meðal jarðneskra manna. Hin guð- dómlega vizka býr í honum. Hann er Logos. II. Jóhannes segir einnig, að Logos, þ. e. Kristur, veiti oss mönnunum þekkingu á guði. Hjer á hann ekki við þekkingu í sama skilningi og t. d. vísindamennirnirm þekkja lögmál tilver- unnar, né heldur þá þekkingu, sem æðri verur kunna að flytja um guð, eins og heimspekingar og dulspekingar hugsuðu sjer. Þegar biblían talar um að þekkja guð, er yfirleitt átt við að þekkja hann á sama hátt og vjer þekkjum Iifandi mann eða persónu. Þú getur þekkt mann af orðspori, eða í sjón, en hjá Jóhannesi hefir þekk- ingin enn dýpri merkingu. Að þekkja mann er að hafa kynnzt hon- um, vera í kunningsskap við hann, vera í nánum, persónulegum tcngslum við hann. Þegar Jesús fæðist í heiminn, fær liugsun guðs mannlegt gerfi, og mennirnir kynnast guði við að kynnast Jesú. Þeir kynnast honunt sem kærleiksríkum skapara, er veitir jarðneska fæðu, — sem lækninum, er græðir sár sköpunarverksins, — sem miskunnsömum föður, er fyrirgefur syndir, — sem konungi lífs- ins, er reisir upp dauða. Þannig kynnast mennirnir guði persónulega við það, áð hugsun guðs til mannanna birtist í jarðncsku gerfi. III. En sngan er ekki öll sögð með þessu. Þegar Orðið verð- ur hold, merkir það ekki aöeins, að hugsun guðs kemur fram í Jesú, heldur einnig, að hugsun Jesú Krists kemst að í mönnunum, gagn-' tekur þá og holdgast í lífi þeirra. Áhrif hans segja til sín gegnum aldirnar. Þau berast til vor í trú og breytni liðinna kynslóða eins og vatnið dreifist frá uppsprettu sinni til fjarlægra staða. Þannig hefur hugsun guðs - hugsun Krists - holdgast í þeim, sem hafa á undan þjcr lifað, og við kynni þín af Kristi, — við það, að þú þekkir hann og átt hann að vini, — mun hugsun þín mótast af hugsun lians, svo að orð guðs vcrður einnig hold í þínu eigin lífi og starfi. Þegar Jólahugleiðing eftir síra Jakob Jónsson liugsun guðs verður ríkjandi í einkalífi þínu, — félagslífi, verzlun og stjórnmálum, athafnalífi og raunar hverju sem er, — þá er „Orðið” að verða „hold.” IV. Fyrir mörgum árum átti jeg tal við fólk, sem farið hafði til aftansöngs á jólanótt, og kom heim mjög vonsvikið yfir því, að presturinn hafði ekki lesið frásögnina af fæðingu Jesú í Lúkasarguð- spjalli, heldur aðeins jólaguðspjallið hjá Jóhannesi. Ástæðan til óá- nægjunnar er augljós. Lúkas bregður upp mynd, sem með sínum sterku og fögru dráttum orkar á hvert barn eins og guðdómlegt æfin- týri. En Jóhannes er guðfræðingurinn, sem notar vísindaleg orðtök sinnar tíðar, og ekki verður skilinn til fulls án útskýringar, sem verkar þurrt og fæðilega. En mun ekki Jóhannes þrátt fyryir allt hjálpa oss til að skilja Lúkas betur ? Og verður ekki Jóhannes auð- skildari, þegar vjer höfum það í huga, að Orðið, sem hann talar um, er litla barnið, sem fæddist í jötunni í Betlehem. Þar mætast þeir báðir, hinir ólíku guðspjallamenn, sem báðir voru jafn-snortnir af jólaboðskapnum, þótt þeir túlkuðu hann hvor á sinn hátt. Þetta finnur þú ef til vill betur, ef þú íhugar það, sem gerist á jólunum, þar sem þau eru haldin sem sannkristin hátíð. Jeg finn ofur vel, að jólahaldið hefir sína ágalla. Það er sagt, að allt kafni í verzlun og annriki, ytra tilhaldi og hjegóma. En þrátt fyrir allt lifir kjarni þeirra í hinum glit- miklu umbúðum. Og sá kjarni er í því fólginn, að vjer í anda tökum þátt í því, sem gerðist í Betlehem nóttina sem Orðið varð hold. Hugsun guðs nær tökum á oss, og situr þar eftir. Hún verður hold. Hún lætur hið góða koma fram í oss mönnunum. Hún vekur þrá til friðar og sátta, — löngun til kærleika, rjettlætis og miskunnsemi. Og hver er komimi til að segja, að sú hugsun guðs, sem helgar sál þína á jólanótt, eigi ekki eftir að „holdgast” að meira eða minna leiti í athöfnum þínum á komandi árum. Enn þann dag í dag spyrja mennirnir um speki Guðs, vizku þessa valds, sem ræður lögmálum tilverunnar. Enn eru vitr- ingar og visindamenn að spyrja um hina guðlegu skynsemi, og því lærðari sem þeir eru, og því næmari sem sál þeirra er fyrir hinu mikilfenglega í niðurröðun efnisheimsins, — þvl meiri verður Iotn- ing þeirra fyrir htigsun guðs, að því leiti, sem þeir ern færir um að skynja hana. Og enn í dag reyna dulúðgir menn að hlusta eftir boðskap frá æðri vcrum, sem koma úr himinsins dýrð til efnisheims- ins. — Hvort tveggja þetta er dásamlegt út af fyrir sig. En hvað er það hjá hinu, síl guðleg hugsun hefir orðið hold á þann hátt, að hvert barn gctur skilið jafn-innilega og vísindamaðurinn, og n.umið hana með hinum venjulegu skilningarvitum mannanna á jörðinni? Að þessu er svo háttað, finnum vjer á jólunum betur en endranær. Hugsaðu þjer, að þú sjert staddur á jólum í kirkju eða á læimili, þar sem hinn forn-helgi jólablær hefur náð tökum. Kona ejn lét nýlega í ljósi þá skoðun, að ef hún gæti ekki haldið stóra jplaveizlu, myndi sér ekki finnast nein jól. Hún hefði ánægju af um- stanginu, verzluninni, og vildi gera sjer og sínum rausnarlegan tylli- dag. Hún spurði: Hvað væru jólin, ef þetta skorti? En jeg hefi sjeð þrífættan stól með blettum eftir útbrunnin kerti. Þessi stóll var fyrsta jólatrjeð á efnalitlu verkamannaheimili hjer í Reykjavík fyrir all-mörgum árum. Þar voru. ekki tök á stórum veizlum nje mikilli ytri viðhöfn. En við bjarmann frá jólaljósunum á þrífætinum sáu nokkur lítil börn dýrðina frá upphæðum, og námu orðið frá guði, hugsun guðs, sem settist að í sjálfum þeim. Það er þetta, sem gerir jólin að jólum, að hugsun guðs er ekki köld skynsemi bak við náttúrufyrirbærin nje heldur fjarlæg speki ofar öllum himnum, heldur ástúð, sem endurgeislar í augun nokkurra barna kringum þrífættan stól. Þar er Logos. Gleðileg jól! ) JÓLABÓK ALÞÝÐUBLABSINS 1962 |

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.