Alþýðublaðið - 24.12.1962, Síða 47
Skuggsýnt er
þá, að þær séu ekki fleiri og muni hann
kominri vestur á heiðarbrún. Snýr því
undan veðrinu lítið eitt, og ætlar þar
niður, en finnur brátt að þar er svo
bratt, að það er ekki fær leið. Neytir
hann þá enn svipunnar, og sporar sig
upp aftur með hjálp hennar. Sér og þá
að þetta er snarbrött fjallshlíð, sem snjó
skefur fram af, en hengja var þar engin
í brúnum. Gengur liann þá til baka og
finnur enn vörður, og fylgir þeim á sama
hátt og áður. Minnir Jón að eftir það
fyndi hann fimm vörður eða svo. Gekk
hann þá enn um stund í sömu átt og
fann, að nú hallaði greinilega undan fæti,
svo sem færi hann niður atlíðandi fjalls-
hlíð. En það var þess háttar landslag,
sem hann hugði að vera ætti upp af
Snæfjöllum, vestan heiðar.
Um 1 stund eftir miðnætti, kemur Jón
að Heimabænum á Snæfjölium. Þá bjó
þar sá maður, er Ölafur hét, og var Pét-
ursson. Kom hann sjálfur fram, er Jón
kvaddi dyra. Jón sagði deili á sér og það,
sem títt var um hans ferð, livarf Sumar-
liða , er hann ætlaði að fallið hefði fýrir
björg í Núpnum. Jafnframt bað Jón
gistingar, þar sem hann var orðinn mjög
þreyttur og svangur. Bóndi kveðst ekki
geta hýst hann, og sagði honum að fara
sem skjótast til heimilis Sumarliða, í
Samúelshúsi, og segja þar frá tíðindum.
Jón sagði sem satt var, að hann væri
þarna bláókunnugur og rataði ekki þang-
að, fylgdarlaust. Bóndi kvað honum enga
þörf á fylgd, þetta væri skammur vegur
og auðratað, beint inn frá bænum. Eitt-
hvað fleira taldi hann og til merkja um
það, að Jón gæti einn komist leiðar sinn-
skammdegi
ar. Jón lætur það þá gott heita, og fer
við svo búið út í náttmyrkrið og hríðina
á ný, að leita að Samúelshúsi. Veður var
svipað og áður, og fór Jón því enn vill-
ur vegar, og veit nú eigi fyrr til, en hann
steypist fram af tveggja til þriggja mann-
hæða hárri snjóliengju. Er hann þá kom-
inn í þrönga snjókví, niður við sjó, en
í hvestunni miðri stendur lítið íbúðarhús
úr timbri. Jón sá þegar, að húsið mundi
vera í eyði, og reyndi því ekki að gera
þar vart við sig. Frétti hann síðar, að
þetta var svo nefnt Helgahús, sem notað
var fyrir barnaskóla á vetrum.
Gekk honum erfiðlega að komast upp
hengjuna aftur og burt úr snjókví þess-
ari, enda orðinn þreyttur mjög og slæpt-
ur, af langri áreynslu og sulti.
Þó tókst það eftir nokkra stund, og spor
aði liann sig enri upp með hjálp svip-
unnar. Fór honum nú ekki að lítast á
blikuna, ef hann ætti að hrekjast þar alla
nóttina, frá einu'húsi til annars, án þess
að fá hvíld eða húsaskjól. Hitnar lionum
svo í skapi við þétta, að hann heldur rak-
leitt aftur að Heimabænum á Snæfjöll-
um, og ber upp Ölaf bónda á nýjan leik.
Kemur bóndi til dyra á nærklæðunum,
sem í hið fyrra skiptið, og fagnar því lítt
að sjá Jón þan kominn í annað sinn.
Gerir Jón honum nú tvo kosti, að fylgja
sér inn að Samúelshúsi, eða hýsa sig
ella. Bóndi tók fyrri kostinn og fór inn
að klæða sig, en lét Jón bíða í bæjar-
dyrunum, að hufðarbaki, á meðan. Kalt
var þar í dyrunum og leiddist Jóni biðin,
þvi að fljótt setti að honum hroll, klök-
ugur eins og hann var og fannbarinn frá
hvirfli til ilja, en heitur af göngu og á-
tökum við hríð og veðurofsa. Eftir góða
stund kemur bóndi aftur, alklæddur og
dúðaður hlífarfötum. Fylgir hann nú
Jóni inn að Samúelshúsi, þar sem var
heimíli Sumarliða. Þar segir Jón sögu
sína enn á ný. Olli frásögn hans mikilli
skelfingu, sem vonlegt var, og vaknar
allt fullorðið fólk í húsinu. Að því loknu
var honum veittur lítilfjörlegur beini
(samanhellt grautarslembra og súrrugl í
skál, mjólkurlaust), enda fólk sárfátækt.
Rúm var honum fengið að sofa í, til fóta
hjá öðrum manni, það sem eftir lifði
nætur, en þá var klukkan um 3 eftir
miðnætti. Jón kveður sig ekki hafa fund-
ið til hræðslu, meðan hann svo að segja
stóð á þröskuldi dauðans, er samfylgdar-
maður hans var genginn fyrir björg, en
nú, þegar að því var komið að njóta
svefns og hvíldar, þá þyrmdi óttanum yf-
ir hann, svo að varla mátti hann blund
festa.
Ef honum rann í brjóst, þá var hann
óðar í draumi sínum aftur staddur í
veðurdyn heiðarinnar, ó efstu eggjum
Vébjarnarnúps, þar sem draugaleg
tunglsglætan glampaði á sjó, langt niðri,
.en honum skruppu fætur og hann hrap-
aði.
Þá hrökk hann upp með andfælum, og
mátti ekki sofa. Síðari hluta nætur var
safnað mönnum, af nærliggjandi bæjum,
í leit að Sumarliðá. Urðu þeir 18 saman,
og var Jón Kristjánsson einnig í þeirri
för. En það er önnur saga, sem eigi verð-
ur sögð hér. Þess má þó geta, að sú þjóð-
saga myndaðist, að einn leitarmanna, Guð-
mund Jósefsson, frá Sandeyri, hefði
dreymt Sumarliða um nóttina, og Sumar-
liði þá sagt honum hvar hann lægi dauður
undir hömrum Núpsins, skammt frá flæð-
armáli. Sennilega liefur slík saga orðið
til vegna þess, að Guðmundur fartn lík
Sumarliða þennan morgun, fyrstur
manna, þar sem það lá limlest í fjörunni,
undir Núpnum. Það er sögn annarra leit-
armanna, að Guðmundur hafi gengið hik-
— Hrósyrði er gjöf, sem mað-
ur má ekki kasta óhugsað frá sér, .
nema maður vilji særa þann, sem
gjöfina meðtekur. — E. H.
i
__ !
— Sjálfsmyndir eru næstuín því i
alltaf í litum. - H. C.
— Það er eftirtektarvert, hversu
manneskjurnar verða miklu betri,
þegar okkur fer að þykja vænt
um þær. — D. G.
laust og hvatlega þangað, sem líkið lá,
eins og hann vissi fyrirfram um staðinn,
þó að þetta virtist einkennilegt í augum
meðleitarmanna lians, og hafi átt aðal-
þáttinn í því, að fyrr nefnd sögn skapað-
ist, er ekkert dularfullt við það, þegar lít-
ið er til þess, sem Jón hefur að segja um
þetta efni. Hann kveður mann þann, ér
varð rekkjufélagi hans í Samúelshúsi,
liafa verið Guðmund Jósefsson, sem
spurði ítarlega að atburðum og einkum
því, er Sumarliði hvarf sjónum. Þegar
Jón segir livernig hann skreið upp fönn-
ina frá bjargbrúninni og kom að steinin-
um, sem hann leitaði skjóls undir um
stund, hefur Guðmundur orð á þvi, að
hann haldi sig þekkja þennan stein, og
ef það reynist svo, þá sé þar með vitað
hvar Sumarliði hafi gengið fram af brún-
inni, og sé hans þá að leita í fjörunnl
niður undan, eða skammt frá.
Af því, er síðar kom fram er fulUjóst,
að Guðmundur hefur getið rétt til um
stein þennan og stað hans á fjaUsbrún-
inni. Guðmundur var þaulkunnugur á
þessum slóðum, og eru því öll líkindi til,
að það sé staðþekking hans á umhverf-
inu, sem leiðir hann að líki Sumarliða,
en draumur enginn.
r^uiiiiHiiHirMMlH'MHniinim
.....iiiiiiiiiiiiiiii lll■l■■l■lllllllllll■llll■ll■llllllll■ll■l,lllllll■lllllllll■lllllllllllllllllll■lu■■•ll•lllllll■ll■llmll■lll■■■l■■l■llll■ll■llllrA'
ílasmiðjan h.f. Laugaveg 176
Framkvæmum alls konar
Bifreiðayfirbyggingar
BifreiðaklæSningar
BifreiSamáEningu
GLEÐILEG JÓL!
Gott og farsælt komandi ár.
i
Þökkum viðskiptin á liðnu ári. |
|
5
^IIIIHIIIMIIIIMIIIIIIIIIIIIUIHHnMmHUIIIUIUIlllllllHIIIHIIIIIHHIHUMIMHUMimillHIIIMIIIIIIIIIIIUMMIHIII •mMMHlM,,,,,,,,,,M,,,,,,,,,,,,,',,,,,,,,,m ...................................................................................................
lh/1
JÓLABÓK ALÞÝÖUBLAÐSINS 1M2 Jff