Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 24.11.1968, Qupperneq 19

Verkamaðurinn - 24.11.1968, Qupperneq 19
FLETT BLÖÐUM — þeir óhjákvœmilega verða að kaupa vinnu af, án þess að vinnuseljendur hafi þar nokkuð atkvœði um.-------“ Urræðið. „Oflugur félagsskap skapur myndi geta bjargað ykk- ur. Myndið liann og styðjið.“ 3. janúar er skrifað: „Mikil gœðablóð eru þeir útgerðar- menn okkar hérna á Akureyri. Mér hefur verið sagt, að þeir cetli að gefa okkur hásetum helm ing af fiskafla skipa sinna á kom andi vori, gefa okkur helming- inn blátt áfram, því hvað cetli okkur dragi um það, þó að við eigum að fœða okkur sjálfir, borga helming af beitu, olíu og salti, eða með öðrum orðum að gera skipin út að hálfu leyti á móti þeim. Um eldiviðinn er ekki talað, en mér finnst sjálf- sagt, að við leggjum hann til líka. Það er ekki nema eðlilegt að við sjóðum okkar eigin mat við eldivið frá sjálfum okkur, þar sem það líka gœti verið trygging fyrir því, að einhver eldiviður vœri til í skipunum að sjóða við. Eg gœti vel vitað það fyrir blessaða kokkana okkar, að þeir þyrftu ekki að vera í öðr um eins vandrœðum og síðast- liðið vor. Okkar skaði verður a. m. k. ekki meiri en síðastliðið vor, þegar þeir gáfu okkur 25 aura fyrir pundið af fullsöltuðum fiski en fengu 31Y‘Z tU 35 aura fyrir pundið, hafi það annars ekki verið meira.“ 31. maí er farið að tala við síldarsjómennina, og þykja ekki álitleg kjörin, sem þeim eru boð in. Þar segir: „Eins og kunnugt er hefur verkakaup við dag- launavinnu hækkað um 1/6 frá 1. júní að telja. Einnig hafa út- gerðarmenn og bœndur boðið sæmilegt kaup við landvinnu, bœði konum og körlum, en hvaða kjör standa sjómönnum til boða við síldveiðar á nœsta sumri? Utgerðarmenn hafa orð- ið: Við megum borga 210 krón- ur á mánuði, 5 aura premíu af hverri tunnu síldar, 100 krónur á mánuði og 10 aura premíu af tunnu eða þá ef menn vilja 22 aura af hverri tunnu, sjómenn leggja sér til fœði sjálfir. í hinum nýauglýsta kaup- taxta verkamanna er lágmark mánaðarkaups 230 krónur sé um skemmri tíma að rœða en tvo mánuði. Fyrir minna en þetta mega þeir ekki vinna á neinum tíma árs, og það verða menn að lœra að skilja, að þetta er lágmark fyrir álla þá verka- menn, sem í félagsskapnum eru og verkfœrir kallast. Taxti út- gerðarmanna aftur á móti er hámark.“ Það er rætt um, hve ótrygg þessi premía sé, en „máski menn haldi, að 5 aurarnir geri feikna upphœð. Lítum á aflaskýrslur mótorskipanna þrjú síðastliðin ár. Þar verður meðaltal ca 800 tunnur. Haldið þið það sé ekki álitleg uppbót, piltar, 20 krónur á mánuði, þegar aukavinna í landi er borguð með allt að 1.50 á klukkustund. En menn eiga kost á að velja um, geta fengið 22 aura á tunnu, og það er girnilegt. En reynsla undan- farinna ára hefur þegar sýnt, að það er engin meining í því fyrir sjómenn að ráða sig fyrir tóma premíu á norðlenzku mótorskip- in, þó nokkur þeirra hafi allgóð skilyrði til að fiska, þá eru hin miklu fleiri, sem hafa það ekki. Og hvernig geta menn œtlast til þess að sjómennirnir eyði sumr- um án þess að hafa einhverja tryggingu fyrir því að hafa eitt- hvað í aðra hönd. En hvað mœtti þá telja við- unanlegt kaup yfir síldveiðitím- ann: 300 krónur á mánuði og frítt fæði, eða 200 krónur á mánuði og 10 aura af tunnu og frítt fœði mœtti kalla sæmilega borgun. En ég býst við, að mörgum kunni að þykja boginn spenntur nokkuð hátt.“ Þá hafa danskir sjómenn stað ið í verkföllum, þegar kemur fram í ágúst og fengið veruleg- ar kjarabætur og launahækkan- ir. Og Verkamaðurinn hefur fylgzt með því. Það segir um dönsku verkföllin: „Af þessum kaupkröfuim fengu dönsku verka mennirnir þessu framgengt. 1) Kaupið fyrir háseta var hækkað úr 175 krónum upp í 270 krón- ur á mánuði. Vinnutími er nú á öllum dönskum skipum 8 stund- ir. Ef lengur þarf að vinna, er það eftirvinna, sem borguð er með 1.25 um tímann fyrir klukk an 9 að kvöldi, en 1,80 um tím- ann eftir það. Þetta mun nú eiga frekar við fragtskip en fiski- skip.“ Fumvarp til vökulaga. Frá Alþingi berast athuga- verðar fréttir. Athugaverðar að- farir heitir greinin, 11. sept. 1919: „Eins og skýrt var frá í blaðinu hér fyrir skömmu, felldi Neðri deild Alþingis lagafrum- varp, sem 1. þingm. Reykjavík- ur, Jörundur Brynjólfsson, bar fram, er veitti hásetum á íslenzk- um togurum rétt til átta stunda hvíldar á hverjum sólarhring, er togararnir eru að veiðum. Voru 8 deildarmenn með frumvarp- inu, en 14 í móti. Hefur þetta mál verið talsvert rœtt í íslenzk- um blöðum og hefur sinn veg sýnzt hverjum, þó svo virðist, sem flestir ættu að vera sam- mála um það, að ekki bœri að ofbjóða vinnuþoli manna, hvort sem þeir eru hásetar á togurum eða stunda aðra vinnu.“ Þessi afgreiðsla mála er for- dæmd. Síðan eru taldir upp þeir þingmenn, sem voru með frum- varpinu: „Hákon í Haga, Jón Magnússon forsœtisráðherra, Jörundur Brynjólfsson, Pétur Þórðarson, Sveinn Ólafsson, Þorleifur Jónsson, Þorsteinn M. Jónsson. Einnig greiddi Bjarni frá Vogi atkvœði með frumvarpinu, en hafði þó talað eindregið á móti því. Verður sú framkoma að teljast afar lík Bjarna.“ Þannig lauk þessu máli á þingi. Merkisberar auð- valdsins báru sigur úr býtum í þetta sinn. Þegar kemur fram í septem- ber er skrifað til athugunar: „Síldarútgerðin er úti. Fólkið streymir heim úr verunum fyr en vanlega er. Sumt með meðalsum arkaup, sumir sjómennirnir með nœr því tóma vasa. Dýrtíðin vex þrátt fyrir friðinn, óhindraðar siglingar og frjálsa verzlun á flestum vörutegundum. Haust- vinna verður með minnsta móti.“ „Hvað á að gera“, er spurt seinna, ,.það er spurning, sem margur mun glíma við að svara á viðeigandi hátt“. Mjólkurverðið. Málefni bænda og verkamanna fara mikið saman á þessum tíma. Bændur krefjast hækkunar á mjólk og kjöti, en mjólkur- framleiðsla nokkur er í bænum og munu bændur hafa reynt að ná samvinnu við eigendur um hækkun mjólkur almennt. Stend ur 25. september: „Mun það œtlun þessara manna að koma mjólkinni upp í 75 aura líter- inn. Hvaða knýjandi nauðsyn rekur til þessarar hækkunar verður ekki séð í fljótu bragði. Heyskapur hefur orðið sœmileg ur hér um slóðir í sumar, og hey því ekki dýrari en síðastliðið ár. Bœndur selja ekki mjólk til bœj- árins nema það, sem þeir hafa framyfir það, sem þeir þurfa til heimanotkunar. að þekkjum við bezt bœjarbúar og höfum þrá- sinnis orðið að sætta okkur við að sitja uppi mjólkurlausir, máski á miðjum samningstíma og fyrirvaralaust.“ Síðar er minnzt á, að kjöt- vörur séu það dýrar, að verka- menn geti ekki keypt þær, og það þykir hart að fá þá ekki heldur neytt mjólkurinnar. Notkun bifreiða. Og það er komin bifreiðatíð, og það hafa verið sett lög um notkun bifreiða: „Af því að almenningi mun ekki kunnugt um það, hvernig ber að haga sér gagnvart bif- reiðum, þegar þœr eru á ferð og nýskeð hefur slys hlotizt af að hestur fœldist, er bifreið fór framhjá honum, leyfir Verka- maðurinn sér að birta hér nokkrar greinar úr lögum um bifreiðar, þœr er almenning varðar mestu: 6. grein: Ökuluaðann skal ávallt tempra svo, að komizt verði hjá slysum og ekki sé trufluð umferðin. í kaupstöð- um, kauptúnum og álíka þétt- býli má ökuhraðinn aldrei vera meiri en 15 kílómetrar á klukkustund, nema stjórnarráð- ið hafi leyft meiri ökuhraða eftir tillögum hlutaðeigandi bæjar- eða sveitarstjórnar. Ut- an þessara staða má hraðinn vera meiri, ef nœg útsýn er yfir veginn og ökumaðurinn samt sem áður getur fullnægt öllum skyldum sínum, þó aldrei meiri en 35 kílómetrar á klukkustund. I dimmu má hraðinn aldrei vera meiri en 15 kílómetrar á klukku- stund. Þar sem ökumaður sér eigi langt fram á veginn, í kröppum beygjum við vegamót eða gatna mót þar sem vegurinn er steyptur og þar sem mikil umferð er, má ekki aka hraðar en svo, að stöðva megi vagninn þegar í stað. Sé for á veginum skal aka svo gætilega, að ekki slettist á aðra vegfarendur. Ef bifreið mœtir vegfarend- um skal hún halda sig vinstra megin á veginum. Bifreiðin skal þegar nema staðar, ef sá, er hún mœtir, gefur merki eða öku- maður sér að hestur hræðist eða verður órór. I 8. grein er tekið fram, að ökumaður skuli gefa merki með liorni sínu í tœka tíð, þegar hœtt er við árekstri. Og í 14. grein: Eigandi bif- reiðar ber ábyrgð á henni og er skaðabótaskyldur samkvæmt 13. grein. Noti maður bifreið ann- ars manns í heimildarleysi, fœr- ist skaðabótaskylda eigandans yfir á notandann.“ Við upphaf annars starfsárs blaðsins í nóvember 1919 stend- ur til að kjósa þingmenn fyrir kjördæmið. Blaðinu lýzt miður vel á Björn Líndal og Sigurð Einarsson dýralækni, hallast fremur að Magnúsi Kristjáns- syni og Einari á Eyrarlandi og Stefáni í Fagraskógi. Við höfum nú farið yfir fyrsta starfsár þessa blaðs, reynt að bregða upp myndum af kjör- um stéttanna og svip samtíðar- innar. Þessi fletting hefur tekið alllangan tíma, og þar sem all- ir hinir árgangarnir bíða óhreyfðir, verðum við að fara hraðar yfir sögu í framtíðinni, enda eru breytingar á kjörum fólks ■ekki svo ýkjamiklar fram- undan. Rafveita ó Húsavík. Argangnum 1919 er að ljúka. Við skulum aðeins líta á viðtal. „Rafveita Húsavíkur. Nú á Framhald á bls. 23. I 38 ór vor Verkomaðurinn settur og prentaður í Prentverki Odds Björns- sonar á Akureyri. Lengstan hluta þess tima annaðist Þorkell Ottesen setninguna að mestu og réði löngum miklu um niðurröðun efnis og útlit blaðsins. Og það segir alla sögu um hug hans til Verkamannsins, að hann nefndi hann ætið „Blaðið," þótt hann nefndi önnur blöð alltaf skírnar- nöfnum. Verkamaðurinn 50 óra — 21

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.