Verkamaðurinn - 24.11.1968, Blaðsíða 57
tneriik rái
Lygtandi.
Blómin eru bros guðs á jörðu
vorri; þau bera til okkar ilm
eins og úr æðri heimi sem breyt-
ir því daglega loftslagi, sem
fylgir rykinu samfara vorum
daglegu störfum. Blómilmurinn
er eins og hressandi lyf og setur
einnig fínan blæ á allt það, sem
nálægt er.
Hér á eftir fara nokkrar upp-
'skriftir af algengum lygtanda,
sem hver og einn getur búið til.
Lygtandi má aldrei standa op-
ffln, því með því móti fer ilm-
'urinn upp og eyðist.
Hvernig pressa skal lygtanda
úr blómum.
Florence-olía. — Glycerin,
Blómin eru tínd og blöðin
tekin af kvistunum og bómullar-
stykki er klippt í kringlótt
stykki, sem passa þeirri krukku
eða íláti, sem blómin eiga að
pressast í. Þá er tekið svolítið af
Florence-olíunni (eða Glyeerín-
inu, hvort heldur ætlað er að
'hagnýta við aðferðina), og hellt
á undirskál og bómullarklúta-
'stykkjunum er dyfið þar í einu
í senn, og svo er þetta lagt á víxl
með blómblöðunum í krukk-
una. Blöðin eru lögð í röð á
bómullarkringlima, svo þau
fylli yfir hvern blett á henni,
ekki hvert ofan á öðru, heldur
við hliðina 'hvort á öðru, og svo-
litlu salti er stráð á blöðin; þá
er annarri kringlu dyfið í olí-
una, og þessi kringla lögð ofan á
blöðin; þá eru aftur blöð lögð
þar ofan á og svolitlu salti stráð
á blöðin; þannig er haldið
áfram þar til krukkan er full. —
Vott skinn er bundið yfir háls-
inn á krukkunni og gat er stung-
tð á skinnið með höfuðprjón.
Krukkan er látin standa þar semi
sólin skín á hana í tvær vikur.
Eftir þann tíma má opna krukk-
una, og vinda olíuna úr hrúg-
unni. Svo má þynna olíuna út
nieð spritti og hrista vel. Spritt-
ið er haft mikið eða lítið, eftir
því, hve sterkur ilmur er af olí-
Unni.
Kalium Phosporicum.
(Fyrir taugabilaða og ímynd-
unarveika.)
Agætt meðal við alls konar
taugaveiklun. Það er ávallt not-
að af þeim sjúklingum, sem hafa
taugaþreytu í höfðinu og magn-
leysi, svefnleysi, þrot af lífshvöt-
inni, viðkvæmni, bilun á trausti
til manna, skuggalegar hugsjón-
ir, sjúklegan ótta, móðursýki,
ímyndunarveiki, þunglyndi o. s.
frv.
Ágætt meðal fyrir útslitið
fólk, læknar það á sál og líkama
og tekur burt svefnleysi þess,
þrautsýni og kvíða.
íslenzkur lygtandi.
Reyr er tekinn og látinn á
flösku, svo hún sé hálffull. Nú
er hún fyllt með Glyceríni og
þéttur tappi settur í. Flaskan er
látin standa á hlýjum stað í mán
uð. Flaskan er hrist einu sinni á
dag. Eftir þann tíma má hella
Glyceríninu af á aðra flösku
með góðum tappa í. 2 lóð af
reyr-glyceríni og 2 lóð spritt er
góður lygtandi.
Að útrýma flóm.
1 matskeið rauður pipar.
2 pelar brennsluspritt.
Þessu er hrært vel saman og
sprautað í hverja holu, og eins
yfir gólfið. Herberginu er lokað
3—4 tíma. En þó að öllum flón-
um verði ekki útrýmt í fyrsta
sinn, þá er ekki annað en að
reyna aftur, þar eð þetta er ágætt
meðal til að útrýma þeim með.
Magnesia Phosporica.
(Krampameðal.)
Meðal sérstaklega fyrir sjúk-
dóma af krampakenndri nátt-
úru. 011 veikindi með áköfum
verkjum, þjótandi samdragandi
krampadráttum.
Ágætt meðal þar sem eru
vöðvateygjur, magaverkur með
uppþembing, krampakenndur
hósti, krampi, taugaverkir, hjart
sláttur, tannpína, skrifarakrampi
o. s. frv. Einnig gott við maga-
verk og uppþembing í börnum.
Prentsmiðja Björns Jónssonar
Hafnarstræti 67 (Skjaldborg) . Sími 1-10-24 . Pósthólf 218 . Akureyri
KYNNIÐ YKKUR ÞJÓNUSTU OKKAR
Prentsmiðja Björns Jónssonar
Hafnarstræti 67 (Skjaldborg) . Sími 1-10-24 . Pósthólf 218 . Akureyri
SARDÍNUR í olíu og tómat
SMJÖRSÍLD í olíu og tómat
GAFFALBITAR í vínsósu
KRYDDSÍLDARFLÖK ■ víns
REYKT SÍLDARFLÖK
KABARETT-SILD
FISKBOLLUR
SÚPUBOLLUR
FISKBÚÐINGUR
GRÆNAR BAUNIR
SVIÐ
A HVERS MANNS DISK!
i
N IÐURSUÐUVERKSMIÐJA — AKUREYRI
Arnum Verkamanninum, lieilla
á fimmtugsafmælinu.
K. JÓNSSON & CO H.F.
Verkamaðurinn 50 óra — 59