Verkamaðurinn - 24.11.1968, Blaðsíða 45
+******************+***+*+**+++++*+*+*+**‘+**+*+++*+**********++**+********++********A*++**+**+++*+*++*********************
★ ★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
HUSAVIK
★
★
★
★
ir
★
★
★
ír
★
★
★
★
★
♦ *****)f***)f)f)f**)f***)f**)Mof **********************
Allar byggðir á landi hér,
sem og annarsstaðar, eiga sína
sögu, að vísu misjafnlega lit-
ríka af athöfnum og framfara-
þrá íbúanna, en þrátt fyrir það
sögu, sem í flestum tilfellum
hefir nokkurn fróðleik að færa
þeim, sem í hana vilja skyggn-
ast, sögu um líf og lífshætti
horfinna kynslóða, baráttu
þeirra í sorg og gleði hins dag-
lega lífs.
Við nútímafólk, sem lifum á
tímum allsnægta og fullkominna
lífsþæginda, höfum áreiðanlega
gott af því að renna huganum
til baka, skyggnast inn í tilveru
og umhverfi þessa fólks og gera
samanburð á lífsaðstöðu okkar
og þess. Liðnar kynslóðir hafa,
á öllum tímum, skilað hlutverki
sínu, ef til vill misjafnlega vel,
en allar hafa þær rutt einhverja
götu og lagt stein í einhvern
grunn, sem síðar hefir verið
byggt ofan á. íslenzk byggða-
saga hins liðna tíma er ekki fjöl-
breytt, þegar að er gáð. Þar sit-
ur flest í sama farinu um ára-
tugi og jafnvel þó lengri tími sé
bókinni og staðnæmast að þessu
sinni við aldamótaárið 1900.
I þann tíð, eins og nú, náði
Húsavíkursókn yfir Tjörnes og
nyrztu bæi Reykjahverfis. Þá
voru í sókninni allri 102 byggð
býli, þar af 48 á Húsavík. Tala
sóknarbama með lögheimili var
583, og þar af á Húsavík 326.
Flest býli á Húsavík, í þá
daga, voru torfbæir, eins og
tíðkuðust í sveitum, en þó voru
risin þar af grunni nokkur timb
urhús, svo sem verzlunar- og í-
búðarhús Þórðar Guðjohnsens,
verzlunarstjóra, og verzlunar-
hús Kaupfélags Þingeyinga, sem
byggð voru árin 1883 og 1886.
Einnig barnaskólinn elzti (síðar
Blöndals-hús) og nokkur önn-
ur Nú eru allir gömlu torfbæ-
irnir horfnir, og á rústum sumra
þeirra hafa verið byggð nýtízku
steinhús, en yfir grunna hinna
hefur verið jafnað, svo að þar
má ekkert greina lengur.
Flestir þessir bæir voru litlir,
og vafalaust hefir oft verið
þröngt þar innan dyra, enda
sést það á íbúatali, að víða hafa
Þannig var vör
um Húsvíkinga
skipað á land
i „gamla daga
- Þegar Húsavík var lítiö porp -
tekinn. Þar má vafalaust um
kenna íslenzkri örbirgð og alls-
leysi, sem þjóðin átti við að
stríða um aldaraðir.
Það er ekki ætlunin með
stuttri blaðagrein að skrifa sögu
neins byggðarlags. Því fer fjarri.
En það getur verið dálítið
skemmtileg tilbreyting í því að
fletta upp í sögu síns eigin
byggðarlags, í þessu tilfelli sögu
Húsavíkur, og rifja upp nokk-
ur nöfn í því sambandi. Nöfn,
sem nú tilheyra genginni kyn-
slóð, en lifa í hlýrri minningu
okkar, sem hér lifum enn og
störfum.
Það er ekki svo að skilja, að
fyrir liggi nein samfelld saga
Húsavíkur frá upphafi byggðar
hér, enn sem komið er, en þegar
grúskari Húsavíkursíðunnar var
fyrir nokkrum dögum, að fletta
kirkjubókum Húsavíkursóknar,
komst hann að þeirri niður-
stöðu, að þar var allmikinn
fróðleik að finna, sérstaklega um
fólk. f þennan fróðleik eru að
vísu eyður, en eyðurnar tala nú
líka stundum sínu máli, og það
víðar en í kirkjubókum.
Við skulum nú fletta kirkju-
verið tvær fjölskyldur í sama
bænum. Bæimir báru allir sín
nöfn og húsin síðar allt fram á
síðasta áratug.
Nú skulum við líta á skrána,
sem gerð hefur verið yfir býli í
Húsavíkurþorpi og húsfeður
þeirra aldamótaárið 1900.
Hún lítur svona út:
Prestssetrið Húsavík:
séra Jón Arason, sóknar-
prestur.
Höfði
Sigtryggur Pétursson.
Nissaból:
Davíð Kristjánsson.
Betribær:
Jóel Magnússon.
Ólabœr:
Einar Árnason og Sigurjón
Þorbergsson.
Sýslumannshús:
Steingrímur Jónsson, sýslu-
maður.
Naust:
Karl Hallgrímsson.
Prestsholt:
Þorsteinn Ólafsson og Stefán
Stefánsson.
Hátún:
Sigurgeir Björnsson og Marí-
us Pálsson.
Kelda:
Bjöm Björnsson.
Oddi:
Guðni Magnússon.
Hrossaborg:
Óli Jónatansson.
Jaðar:
Bjarni Bjarnarson og Stein-
grímur HaUgrímsson.
Bjarg:
Eiríkur Þorbergsson.
Garðar:
Jón Ármann Jakobsson.
Lœknishús:
Gísli Pétursson, héraðslæknir.
Guð johnsenshús:
Þórður Guðjohnsen, verzlun-
arstjóri.
Veitingahús (Gamli baukur)
Kristjana Sigurðardóttir.
Bakkaborg:
Jónas Sigurðsson.
Písa:
Stefán Guðjohnsen, verzlunar
maður.
Borgarhóll:
Einar Jónsson.
Mór:
Hans Stefánsson.
Árbakki:
Flóvent Sigurðsson.
Grund:
Björn Gíslason.
Foss:
Jón Ármann Árnason.
Árnes:
Ásmundur Bjarnason og Árni
Sigurb j ömsson.
HóU:
Benedikt Björnsson.
Hvammur:
Kristján Friðbjamarson.
Hruni:
Lúðvík Friðriksson og Árni
Sigurðsson.
Stangarbakki:
Maríus Benediktsson.
Ólafsbœr:
Halldóra Halldórsdóttir.
Erlendarbær:
Erlendur Guðlaugsson.
Braut:
Frímann Benediktsson.
Melar:
Björn Bjömsson.
Syðstibœr:
Helgi Árnason og Helgi Fló-
ventsson.
Brautarholt:
Sigríður Jóhannesdóttir og
Jón Jóhannesson.
H jálmarsbær:
Hjálmar Magnússon.
Árholt:
Sigtryggur Sigtryggsson.
Nýja-Róm:
Björn Friðfinnsson. ,
Vilpa:
Guðrún Halldórsdóttir.
Kvíabekkur:
Páll Sigurðsson.
Nýi-bœr:
Halldór Einarsson og Bene-
dikt Sigurgeirsson.
Áræði:
Jakob Guðmundsson.
Holt:
Kristján Sigurgeirsson.
Helgugerði:
Pétur Kristjánsson.
Skólahús:
Aðalsteinn Kristjánsson.
Skógargerði:
Eggert Kristjánsson.
Þorvaldsstaðir:
Þórarinn Jónsson.
Hér á undan hafa ekki verið
taldar upp húsmæður eða börn,
sem voru að alast upp á þessum
tíma, en það mun verða gert síð-
ar í einhverju formi, þegar
grúskari Húsavíkursíðunnar hef-
ir unnið úr þeim gögnum, sem
hann hefir fengið í hendur. Þá
munu líka af og til verða tekn-
ir til meðferðar þættir úr bygg
ingarsögu Húsavíkur á hinum
ýmsu liðnu tímum, eftir því, sem
rúm leyfir. Væntum við, að það
megi verða til nokkurrar tilbreyt
ingar frá hinu stundlega þrasi
dægurmálanna. V. H. H.
Verkamaðurinn 50 ára
47