Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 24.11.1968, Blaðsíða 27

Verkamaðurinn - 24.11.1968, Blaðsíða 27
FLETT BLOÐUM — astir reseftaskrifarar, effa gefi út flesta lyfseðlana, og Maggi Magnúss verður langhæstur. Hann er með 471 áfengisseðil og 330 af þeim eru yfir 210 grömm. Og Þórður Jón Thor- oddsen er með 224 yfir 200 grömm, en svo eru aðrir niður í lítið sem ekki neitt og nokkrir alls ekkert. Þá er talað um gullnám í Miðdal, og það er sagt þýtt úr þýzku blaði. Það er 14. júlí, sem þetta er skrifað: Gullæð er í björgum Islands. Og það seg- ir, að það hafi fundizt þarna í basaltlagi gullæð, rúm röst á lengd og að meðaltali hér um bil stika á þykkt. Þetta er tal- inn vera geysimikill og ríkuleg- ur gullfundur, talið víst að borgi sig vel að vinna námu í Miðdal, en eitthvað hefur nú komið annað upp á daginn, því að fátt mun vera um gullvinnslu- staði á íslandi. Og gengið á íslenzku 'krón- unni var í september: Pund sterling 24 krónur íslenzkar og dollarinn A.961/^, danskar krón- ur 100 voru 123.08 íslenzkar. — Þetta virðist vera þó nokkuð betra en 1968. Og tóbakið er ódýrara þá en nú. Smásöluverð í október 1925: Rjóltóbak frá Brödrene Braun kr. 21.50 kílóið og munntóbak- ið, Mellem, kr. 23.10 kílóið og Small skroið er 26. 4Q. Mix-reyk tóbakið er 14.95 kílóið. Svo eru dýrari tegundir, eins og Moss Rose 16.10 kílóið. Og Davíð skáld Stefánsson er fluttur til bæjarins og tekinn við bókavarðarstöðunni við bóka- safnið hér í bænum. Og Arni Jónsson frá Múla ný- farinn til Ameríku og verður þar til aðstoðar danska sendi- herranum í Washington við fyrirhugaða samninga um nið- urfærslu tolla á íslenzkri ull. Þá er auglýstur svörður. „Verkamannajélagið á enn eft- ir töluvert að góðum sverði, sem bœjarbúar geta fengið keyptan nú þegar. Sverðinum verður ek- ið heim til kaupenda. Gerið pantanir sem fyrst. Halldór Frið jónsson.“ Kvöldskóli. Þeir ætla að fara að starf- rækja kvöldskóla fyrir unglinga. „Það verður kennd íslenzka, danska, náttúrufrœði, félags- frœði, reikningur, menningar- saga og bókmenntafrœði, enn- fremur enska, þeim er þess œskja. Skólagjaldið er 60 krón- ur og 10 krónur í viðbót fyrir enskuna. Skólinn byrjar 1. nóv- ernber og stendur í 6 mánuði, 18 stundir í viku. Einar Olgeirs- son.“ Utflutningur íslenzkra afurða varð í septembermánuði 9 millj. 400 þúsund og 600 krónur, en samtals það sem af er árinu kr. 50 milljónir. Og samkvæmt skeytum frá Reykjavík hafa útgerðarmenn þar ákveðið verkbann 1. nóvem- ber, ef sjómennirnir ganga ekki að kauplækkun þeirri, er útgerð- armennirnir fara fram á. Al- menningsheill liggur þeim létt á hjarta. Það er ýmislegt að frétta um haustið. Það er nú nýfallinn dómur fyrir óleyfilega bruggun öls. Einn maður fékk 1000 krónu sekt og 30 daga einfalt fangelsi, annar 400 krónu sekt og þriðji 300 krónu sekt. Þá eru Tyrkirnir ekki betri en vant er. Þeir hafa í hefndarskyni við Breta rænt 8000 kristnum manneskjum, strádrepið marga, svívirt konur og sett í kvenna- búr. Það er rólegra uppi á íslandi. Kvöldskólinn hans Einars verð- ur settur á laugardaginn kem- ur, og menn geta enn fengið að- gang, ef þeir vilja. „Ungfrú Gróa Hertervig og Hjörleifur Arnason vélameistari voru gef- in saman í hjónaband á laugar- daginn var.“ Það eru komnar út bækur eft- ir Kristínu Sigfúsdóttur: „Fyrir ári síðan kom út eftir Kristínu Sigfúsdóttur Sögur úr sveitinni, 166 blaðsíðna bók, og nú kemur önnur bókin, 272 blað síður. Höfundur er kona í sveit, sem sinna verður bústörfum allt árið, svo marga mun furða, hvernig hœgt hefur verið að af- kasta svo miklu verki auk dag- legra skyldustarfa. Hún skrifar aðeins um gott fólk konan sú, og það œttu allir að kaupa og lesa þessar bækur.“ Og Ingibjörg Halldórsdóttir og Ingólfur Guðmundsson Seyð- fjörð hafa gengið í hjónaband. Ófeiminn landhelgisbrjótur. Og þá kemur á daginn land- helgisbrot, sem verður að ein- hverju aumasta hneyksli í sögu íslenzkrar löggæzlu. Sökudólg- urinn sleppur frá hlið varðskips- ins í höfn, meðan skipsmenn skemmta sér. Krafizt rannsókn- ar. „Síðastliðið þriðjudagskvöld kom varðskipið Þór að togara, er var að veiðum vestanvert við Flatey á Skjálfanda. Reyndist togari þessi, sem er enskur og heitir Cardina frá Hull, vera þarna innan landhelgi og því að ólöglegum veiðum. Tók Þór skipið og flutti til Akureyrar. A miðvikudaginn síðdegis var dómur kveðinn upp yfir söku- dólgnum og fékk hann 10 þús- und gullkróna sekt og afli og veiðarfœri gert upptœkt. Að rétt arhaldi kom hinn enski skip- stjóri, Kristian Arreskov, dansk- ur að œtt, óvenjulega kurteislega fram og játaði þegar brot sitt og mótmœlti engu. Kvað hann afla skipsins 5 til 600 kassa og vildi fá hann keyptan, en fékk ekki. Þegar dómurinn var uppkveð inn var ákveðið, að afla og veið- arfœrum skyldi skipað á land á fimmtudagsmorgun. Hafði Þór gát á togaranum og œtlaði að flytja hann með morgninum að innri hafnarbryggjunni, en skip- in lágu bœði við Torfunefs- bryggju. Skipstjóri á Þór er Jó- hann P. Jónsson nokkur, sem lœrt hefur til hermennsku hjá Dönum og frœgastur varð hér á landi fyrir áfrek sitt í Reykjavík 23. nóvember 1921, er hann með 200 manna vopnuðu liði tók höndum 13 menn, flest ung- linga um fermingaraldur og hjálpaði til þess að brjóta lög á alsaklausu fólki. En hér fór nú ekki betur en svo, að á miðvikudagskvöldið hjuggu togaramenn á landfest- arnar allar og héldu á fullri ferð fram Poll. Kvöddu þeir hina árvökulu löggœzlumenn með eimpípublæstri. Voru þeir úr augsýn áður en Jóhann vaknaði við þann vonda draum, að veið- in hafði aðeins verið sýnd en eigi gefin. Sat hann að sögn í veizlu hjá kunningjum sínum hér í bœ, en skipsmenn víðsveg- ar í landi, nema tveir menn eða svo, er varðmaður úr landi hitti fyrir, er hann leitaði til Þórs, ■ þegar hann sá, að ekki var allt með felldu með togarann.“ Eitthvað er minnzt á það síð- ar í greininni, að hann eigi að fara, og þykir þetta gott dæmi upp á ríkislögregluna á íslandi. Og 29. desember er jafnaðar- stefnan og landbúnaðurinn á dagskrá. „Framkoma Framsókn arblaðanna dœmir sig sjálf. Meðan ekki verða fœrð rök fyr- ir því, að' verkafóUcið hari of mikið að bíta og brenna verða kaupkröfur þess ekki átaldar. Hitt liggur fyrir að efla og styðja landbúnaðinn, svo að hann geti fœtt og klœtt sœmilega þá, sem hann stunda. Og það er einmitt sá hnúturinn, sem jafn- aðarmenn ætla sér að leysa og munu gera öllum flokkum fram- ar, er þeir fá bolmagn til þess að hafa áhrif á stjórnmálin í land- inu.“ Það er lítið um jólaauglýs- ingar, en það stendur til að vígja nýja samkomuhúsið góð- templaranna og ungmennafélag- anna á nýársdaginn. Það verður fullgert og afhent félögunum þann dag. Einar Jóhannsson múrari hefur byggt húsið fyrir ákvæðisverð, hefur vandað mjög til byggingarinnar, enda er það veglegt þetta hús. Til hátíðabrigða trúlofuðu sig á jólunum Björg Vigfúsdóttir og hr. Sveinn Bj arnason, Brekku götu 3 hér í bænum. ★ 1930 Nú hlaupum við ennþá yfir 5 ár og tökum árganginn 1930 til athugunar. Við gerum það með skjálf- andi höndum, því að nú voru ýmsar blikur á lofti, ekki aðeins fyrir jafnaðarmenn á íslandi heldur og um allan heim. Það fer að nálgast tímabilið, sem er kallað heimskreppan mikla. Nú er einnig komið að því, að það er að ljúka farsælli sam- vinnu vinstri manna hér og giftudrjúgu samstarfi þeirra Einars Olgeirssonar og Erlings Friðjónssonar. Það er í sam- ræmi við þróunina í heiminum, að gjáin milli demókrata og kommúnista brekkar sífellt, þar til úr verður ósiglandi haf. Vegna þess að áramótahugleið ingin er í blaðinu, sem kemur út 31. desember 1929, verðum við að byrja á að líta á það. Það segir þar, að þetta hafi verið sæmilegt atvinnuár. Það hafi ver ið meira að segja í góðu meðal- lagi og jafnvel betur á Suður- og Norðurlandi. Þar sem verka- lýðshreyfingin er annars nokk- uð á veg komin fékkst kauphækk un nokkuð tímanlega á árinu. Sjómenn höfðu þó átt í stappi við útgerðarmenn, en knúið fram lítilsháttar launahækkun, og hér nyrðra hófu útgerðar- menn ofsókn á hendur Einari Olgeirssyni fyrir það, að þeir töldu, að hann hefði stutt sjó- menn hér í kröfum þeirra um bætt launakjör. En nú er því beint til hugs- andi verkalýðssinna að nota ára mótin til að íhuga stöðu sína. „/ tilliti til þessa ber að líta fram á komandi ár. Það ber líka svo vel í veiði, að í fyrsta mánuði ársins bíður verkalýðs kaupstaðanna að lyfta því grett- istaki, er nœst samtökum í kaup- deilum krefst samheldni verka- Steingrímur Aðalsteinsson var lengi óbyrgðarmaður blaðsins og hafði á köflum hönd í bagga með ritstjórn- ino. lýðsins í ríkustum mœli. Það eru bœjarstjórnarkosningar í öllum stærri kaupstöðum lands- ins.---------Hér er því ekki um neinn barnaleik að rœða, sem á einu veltur um hvernig fer, heldur athöfn, sem hefur ör- lagaríkar afleiðingar, ekki ein- ungis fyrir verkalýð kaupstað- anna heldur og alþýðuhreyfing- una í landinu.“ Bæjarstjórnarkosningar Og það eru birtir listar fyrir bæjarstjórnarkosningarnar og eru skipaðir 22 frambjóðend- um. Á lista Alþýðuflokksins er fyrstur Erlingur Friðjónsson, þá er Elísabet Eiríksdóttir, Einar Olgeirsson f ramkvæmdastj óri, Karl Magnússon sjómaður, Steinþór Guðmundsson kennari, Þorsteinn Þorsteinsson verka- maður. Framsókn er með sér lista. Það er Ingimar Eydal, Brynleif- ur Tobíasson, Jón Guðlaugsson, Böðvar Bjarkan o. s. frv. íhaldið er með Sigurð Einars son Hlíðar, Hallgrím Davíðsson, Ólaf Jónsson framkvæmdastj óra, Tómas Björnsson kaupmann o. s. frv. Það eru smáfréttir í þessu síð- asta blaði ársins 1929: „Á að- fangadag fóla varð gömul kona fyrir sleða á götunni og meydd- ist svo, að hún hefur legið síð- an rúmföst.“ Jafnvel þá voru umferðarslysin fyrir hendi. í erlendum fréttum segir m. a.: „Á aðfangadag jóla brann vesturálma forsetabústaðarins, Hvíta hússins, í Washington. Eignatjón mikið af brunanum og talið, að mikilvæg skjöl hafi eyðilagzt.“ Framhald á bls. 35. amaðurinn 50 óra — 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.