Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Blaðsíða 36

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Blaðsíða 36
228 úr þeim samfasta heild. Værifþessi skoðun rétt, þá hlyti það, sem saga þessi hefir umfram hinar, að vera einskis virði í sögulegu tilliti, þ. e. í tilliti til þeirrar aldar, sem viðburðirnir eiga að hafa farið fram á ept- ir orðum sögunnar. En mér virðist ýmislegt mæla á móti þessu, og það er ætlan mín, að sagan sé fremr sprottin af fornum munnmælum (sem auðvitað hafa verið misjafnlega áreiðanleg), heldr en hitt, að hún sé samin eptir skrifuðum fornsögum, og höfundrinn hafi sjálfr búið til það, sem aukið er við þær, og breytt þeim eptir hugþótta sínum, þar sem henni ber ekki saman við þær, eins og Dr. Kálund virðist halda. Vil eg nú reyna að færa nokkur rök fyrir þessari ætlun minni. Að höfundr „Fljótsdælu hinnar meiri“ hafi haft Hrafn- kelssögu skrifaða fyrir sér, sýnist vafalaust, því að „Fld.“ er beinlínis áframhald af Hrafnkels sögu og svo nátengd henni að efni, að þær verða eigi sundrgreind- ar, nema svo að upphafið vanti á „Fld.“ Kálund hefir líka tekið það fram, að þær séu samföst heild í hinu elzta handriti af „Fld.“, og ekki meira bil á milli þeirra en við vanaleg greinaskipti (kapítulaskipti) í því hand- riti, og að „Hrk.“ sé þar að mestu samhljóða hinni prentuðu Kaupmannahafnar-útgáfu frá árinu 1847, sem gefin er út eptir beztu handritum sögunn- ar. fó er nokkuð einkennileg meðferð „Hrk.“ i hand- riti þessu, og dregr hún að ýmsu leyti dámaf„Fld.“. þar eru nokkrir viðaukar, sem virðast eiga rót sína í munnmælum, svo sem þegar sagt er, að þingmanna- sveit Hrafnkels hafi náð út til Selfljóts, og að hann hafi eigi orðið gamall maðr, og ýmsar smágreinir til skýringar eða skilningsauka, t. d. þar sem sagt er frá ferð Eyvindar Bjarnasonar til Hrafnkelsdals. Enn eru þar fleiri tilbreytingar, sem sýnast sverja sig í ætt við Fljótsdælu-höfundinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.