Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Blaðsíða 54
246
nota hana með varkárni, þvf að hætt er við, að hinn
upphaflegi kjarni sé víða orðinn torkennilegr og sum-
staðar því nær horfinn fyrir áhrifum seinni alda, enda
má sjá merki til þess, að höfundinum verðr einatt á að
heimfæra siði og hlutföll sinnar aldar til fornaldarinnar.
En þótt eigi væri mikið að græða á „Fld.“ í
tilliti til fornaldar vorrar, þá verðr hún samt ætið merki-
leg að því leyti, sem hún lýsir öldinni, er hún var rit-
uð á, og þar er hún einstök í sinni röð, því að vér
þekkjum nú enga aðra sögu af fornmönnum á sögu-
öldinni, sem líklegt er að samin sé á fyrri hluta 16.
aldar. Mér virðist því Dr. Kálund eiga miklar þakk-
ir skilið fyrir að hafa gefið söguna út með þeirri ná-
kvæmni, sem hann hefir gjört, og greitt veg fyrir síð-
ari rannsóknum með formála sínum, sem er í marga
staði fróðlegr, þótt eg geti eigi fallist á ýmsar þær
skoðanir, sem þar koma fram, eins og eg hefi nú
gjört grein fyrir.
markvert heitið, sem „Fld.“ segir frá einstökum mönnum eða viðburð'
um, og hvorki eru vísur í henni né nein ættartala, sem teljandi sé.