Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Blaðsíða 44
236
manna minni, þangað til þær voru ritaðar upp, og hafa
eðlilega aukist og breytst með tímalengdinni. Likleg-
ast þykir mér, að höf. „Fld.“ hafi als ekki þekt „Dropl.“
þá, er vér nú höfum, en verið getr, að einhver af sögu-
mönnum hans hafi lesið hana eða heyrt, og sagt hon-
um úr henni, og þó þarf það ekki að vera, því að
hin munnlega sögusögn gat líka geymtþau fáu atriði,
sem „Fld.“ og „Dropl “ ber saman um. Afþví að svo
mikið vantar aptan af „Fld.“, er ekki hægt að segja,
hvað mikið af söguefni „Dropl.“ hefir staðið í henni,
en þó virðist mega ráða það af samanhenginu og niðr-
röðun viðburðanna í „Fld.“, að i henni hafi aldrei ver-
ið frásögurnar um þau þrjú misklíðarefni milli Helg-
anna, sem voru gengin á undan vígi Hallsteins, þvi
að þar sem „Fld.“ hættir nú, virðist svo á efninu, sem
vígs Hallsteins sé skamt að biða. En hugsast gæti
reyndar, að eitthvað svipað þeim hafi komið á eptir,
þegar Helgi Droplaugarson var fallinn i sekt, en fór
þó um alt hérað til þinga og mannfunda. pó hefir
víst aldrei staðið neitt í „Fld.“ um deilur þeirra frænda,
Hrafnkels þórissonar og Helga Ásbjarnarsonar, þvi
að „Fld.“ lætr Hrafnkel vera eldri en Helga, og taka
fyr við mannaforráði, og segir frá því síðar, að Helgi
hafi (eptir kvonfang sitt) tekið „allt mannaforráð að
helmingi við Hrafnkel frænda sinn fyrir austan vatn“,
og þegar farið er að segja frá Hallsteini og sonum
hans, er þess getið, að Hallsteinssynir „höfðu mikið
traust undir Hrafnkatli; var þá höfðingsskapr hans
sem mestr i það mund“. þ>að er því í alla staði ó-
liklegt, að höf. „Fld.“ hafi látið hann leita liðs hjá
Helga Droplaugarsyni móti frænda sinum eptir víg
Hallsteins. — Einnig er það ólíklegt, að nokkuð hafi
staðið í „Fld.“ um þorstein bónda á Desjarmýri, er
„Dropl.“ segir að hafi átt þórdísi, frændkonu Drop-
laugarsona, því að „Fld.“ nefnir Gunnstein á Dysjar-