Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Blaðsíða 39
231
en Ölviðr í „Fld.“, og eru það ekki Hk nöfn, enda er
öll frásögnin önnur í „Brandkr.11 en í „Fld.“, því ept-
ir henni eignast Ásbjörn, faðir Helga, Oddsstaði í
sektarfé eptir Ölvið, en eptir „Brandkr.“ eignast Helgi
þá, eptir að hann er kominn úr utanför sinni, og er
staðfestulaus áðr en hann fær þá1. Ekkert erí„Fld.“
getið um veizlu þá, er „Brandkr.“ segir að Oddr hafi
gefið Frey, eða ummæli hans, er urðu að áhrínsorðum,
þá er Helgi misti konu sína, og er þó mjög ólíklegt,
að höf. „Fld.“ hefði ekki notað svo merkilegt atriði,
ef „Brandkr.“ hefði verið honum kunnugr. f>egar als
þessa er gætt, og ennfremr mismunarins á frásögn
„Brandkr.“ og „Fld.“ um ætt Droplaugar, þá virðist
mér flest mæla á móti því, að höf. „Fld.“ hafi þekt
„Brandkr.“, en fátt eða ekkert með því, því að það
sannar ekkert, þótt hvortveggja sagan sé að nokkru
leyti viðauki við „Dropl.“, og hljóði því að mestu um
sömu menn, og ekki heldr þótt í báðum sögunum sé
nefndr Oddr og Geitir jötunn, því að bæði nöfn þessi
eru tengd við örnefni og gátu lengi geymst í minni;
miklu fremr virðist það að benda á, að sögurnar um
þá séu gömul munnmæli eða æfintýri, sem hver hefir
sagt á sinn hátt, en frásögnin í „Brandkr.“ virðist
vera eldri og upphaflegri en frásögnin í „Fld.“, sem
ber enn meiri keim af æfintýrum seinni alda, er full
eru af sögum um jötna, er námu til sín konungadætr,
og kappa, sem frelsuðu þær. En þótt „Brandkr.“ sé
eldri og betri saga en „Fld.“, þá mun það samt
skakt, er stendr í honum um kvonfang Helga Ásbjarn-
arsonar, að hann hafi átt systur Spak-Bessa, þvi að
fyrri kona hans mun hafa verið dóttir Bessa, en systir
Hólmsteins, eins og segir í „Dropl.“ og „Fld.“, en
I) í „Brandkr." segir, að Ásbjörn yrði eigi gamall, en eptir sögn
,Fld,“ lifir hann, þegar Helgi kvongast og setr bú á Oddsstöðum.