Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Side 42
234
að hann hafi verið kvongaðr. Aptr á móti segir í
„Fld.“, að Hrafnkell hafi átt eina systur, að nafni Ey-
vöru, og hafi hún verið gefin Hákoni á Hákonarstöð-
um, er nam Jökuldal, en það getr með engu móti
komist heim við tímatal og er Hkt öðrum öfgum í
„Fld.“, þar sem frásögnin er svo víða aflöguð af því
að ganga lengi manna á milli. — Ekkert er getið um
það 1 „Dropl.“, að Spak-Bessi hafi fóstrað Droplaug-
arsyni, og mun það vera bygt á fornri sögusögn, og
sömuleiðis frásagan um óbeit Helga Droplaugarsonar
á goðunum og lýsingin á goðahúsi Bessa, enda getr
„Fld.“ um komu þeirra bræðra þangað í alt öðru sam-
bandi en „Dropl“. — Frá eptirmælinu um víg J>or-
gríms tordýfils er alt öðruvísi sagt í „Dropl.“ en i
„Fld.“, þar sem J>órir í Mýnesi sættist á málið við
Gróu, en Helgi Ásbjarnarson skiptir sér ekkert af
því. Nollar, bróðir Tordýfils, er ekki nefndr í „Dropl.“
en sagan um hann mun hafa verið tengd við örnefni,
því að enn er til Nollarhaugr, þótt enginn bær heiti
nú Nollarstaðir. Ekki getr „Dropl.“ um Gunnar bónda,
frænda Njarðvíkinga, né Rannveigu, konu hans, en
„Fld.“ segir, að forvaldr hafi druknað, er hann fór
til brúðkaups þeirra, og nefnir tvö börn þeirra, f>orkel
trana og J>órdísi „besting“, og segir þar, að þau komi
seinna við söguna. „Dropl.“ nefnir að visu J>orkel
trana, en kallar hann fóstbróður Gríms Droplaugar-
sonar, og getr eigi um frændsemi þeirra, en frænd-
konur þeirra Droplaugarsona telr hún systrnar : J>ór-
dísi, er þorsteinn á Desjarmýri átti, og Rannveigu
bresting, er |>orgrímr skinnhúfa átti, og er auðséð, að
hér er ruglað nöfnum í „Fld.“, eins og títt er í munn-
mælasögum. Synir Hallsteins á Víðivöllum, seinna
manns Droplaugar1, eru taldir 3 í „Dropl.“ og nefndir
I) Sonr Hallsteins og Droplaugar er í „Dropl.“ nefndr Herjólfr, en