Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Side 46
238
er eptir sögn porvalds, sonarsonarsonar Gríms Drop-
laugarsonar, sé áreiðanlpgri en „Fld.“, sem rituð er
löngu seinna eptir margskonar munnmælasögum, mis-
jöfnum að gæðum og hverri úr sinni áttinni. En hefði
höf. „Fld.“ haft „Dropl.“ undir höndum, þá er nærri
óhugsandi, að hann hefði eigi farið meira eptir henni
en hann hefir gjört, þótt hann hefði hinsvegar haft
einhver munnmæli við að styðjast, þvi að i „Dropl.“
er meðal annars svo eðlilega og sennilega sagt frá
því, hvernig missætti þeirra Helganna reis fyrst af
vígi þorgríms tordýfils, og óx svo jafnt og stöðugt,
svo að þeir voru orðnir fullkomnir óvinir, þá er víg
Hallsteins gaf Helga Ásbjarnarsyni færi til hefnda.
En eptir „Fld.“ hefir þeim ekki borið annað á milli
en það, að Helgi Ásbjarnarson fékk þeirrar konu, sem
Helgi Droplaugarson á að hafa haft hug á, sem er ó-
trúleg saga, eptir aldri Helga Droplaugarsonar, og
það annað, að Helgi Ásbjarnarson hélt Gunnar f>iðr-
andabana, sem í raun réttri var ekki fyr en eptir fall
Helga Droplaugarsonar. En þótt það sé mjög ólík-
legt, að höf. „Fld.“ hafi verið gagnkunnugr „Dropl.“,
og notað sér samt svo lítið úr henni, en fylgt heldr
óáreiðanlegum munnmælasögum, þar sem hann hins
vegar hefir tekið „Hrk.“ því nær óbreytta upp í verk
sitt, þá er hitt enn fjarstæðara öllum Hkindum, að
hann hafi engar aðrar frásögur haft fyrir sér um upp-
vöxt og athafnir Droplaugarsona o. s. frv. en þær,
sem standa í „Dropl.“, og að hitt sé alt heimildarlaus
samsetningr og tilbúningr hans, eins og Dr. Kálund
virðist ætla. Og þótt hugsa mætti, að honum hefði
kaupa land handa Ormari á vorþingi, eða þar sem faðir Yngvildar,
konu þiðranda, er kallaðr Hávarr (fyrir Ævarr), og sagðr Spak-Bessa-
son (fyrir þorgeirsson), enda mun Bessunum vera ruglað saman f
„Dropl.“, þvi að bæði Bessi Hávarsson og Bessi Össurarson eiga Ingi-
björgu fyrir konu, og sýnast reyndar vera einn og sami maðr.