Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Side 52

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Side 52
244 vott um það, að höfundr hennar hafi verið fremr sögu- fróðr maðr, og þegar hann telr upp þá 4 íslendinga, er fríðastir hafi verið og bezt mentir, þá lýsir það því, að hann hefir þekt sögur bæði um Kjartan 01- afsson, Ingólf þorsteinsson og Höskuld þorgeirsson (Ljósvetningagoða), sem kallaðr er „hinn væni“ í seinni handritum „Landn.“, þótt ekkert sé talað um fríðleik hans í Ljósvetningasögu. En þó að höf. „Fld.“ hefði verið nokkuð kunnugr fornsögunum, þá gat samt vel verið, að hann hefði aldrei séð margar þær sögur, sem vér þekkjum nú, því að á 16. öld voru fornritin í hönd- um svo fárra manna, að þau duldust jafnvel fyrir helztu sagnamönnum þeirra tíma, eins og sést á „Bisk- upa-annálum“ Jóns prests Egilssonar, er sýnist hvorki hafa þekt Páls biskups sögu né Sturlungasögu né Árna biskups sögu. Að halda, að höf. „Fld.“ hafi orðið að tína upp úr skrifuðum fornsögum alt það, er hann vildi satt segja, virðist mér ástæðulaust, því að það er ekki einungis líklegt, heldr jafnvel víst, að ýmsar sögur úr fornöld hafa geymst í manna minni lengi fram eptir öldum, og hafa sumar þeirra að vísu breytst á ýmsan hátt, aflagast og blandast ýkjum og hindrvitnum, en aðrar eru aptr sennilegar og sýnast ekki vera mjög ýktar, og þannig er einmitt mörgum örnefnasögum háttað, að þær virðast stundum hafa varðveitst óbreyttar öld eptir öld á sömu stöðum. Mörg dæmi má finna í „ís- lenzkum J>jóðsögum og Æfintýrum11 upp á alþýðlegar sögusagnir um fornmenn, sem ekki standa í fornsög- unum, og skal hér að eins bent á söguna úr Bol- ungarvík um þuríði sundafylli, sem stuttlega er minst á í „Landn.“, og J>jóðólf bróður hennar, sem „Landn.“ nefnir ekki. Sögusagnir þær, er eigi finnast annar- staðar en í „Fld.“, hafa sjálfsagt flestar lítil söguleg sannindi í sér fólgin, en þó sýnast margar þeirra

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.