Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Blaðsíða 30

Eimreiðin - 01.05.1906, Blaðsíða 30
IIO Yxi hár manna langt niður á hálsinn, var það auðsældarvottur, einnig það að vera »skítsæll«. Væri löng í manni tungan, varð maður skáld. Ef lukkuhnoðri hékk yfir höfði manns, varð maður lánssamur, Sliti maður dordinguls-vef, varð maður auðnulítill. Hossaði maður hendinni undir dordingul, sem hékk í þræði sínum og segði um leið: »upp með þig dordingull, upp með þig dordingull«, og hann þá fór að fika sig upp, þá átti maður hamingjuna vísa, en héldi hann áfram niður, þá var gæfuvon lítil. Væri manni kalt á vinstri fæti, en heitt á þeim hægri, þá var í manni giftingarhugur. Væri manni kalt á hægri fæti, en heitt á vinstri, þá var það af því, að andskotinn var að öfunda mann. Ráð þessi kunnum við til varnar húsdýrasjúkdómum: Ef hestur fékk hrossasótt, átti ungfrú að ríða honum berbakt, þrjá hringa kringum bæinn. — það var ég eitt sinn látin gera, og mun hafa verið minn fyrsti frami. Ef kýr beiddi upp, átti að bíta fast í hrygginn á henni, þegar búið var að halda henni, þá hélt hún. Til varnar við fjárpest var óyggjandi ráð að láta róðukross úr tré undir taðhnaus fyrir innan þröskuldinn á fjárhúsum. Dræpist kind úr pest eftir að það var gjört, var það annaðhvort af því, að pestin hafði kom- ist inn í húsið á undan róðukrossinum, eða þá að hann var ekki nógu breiður í dyrnar, svo að hún komst inn hjá honum, gat smeygt sér ann- ars vegar við hann. Tjörukross á hurð var og vörn nokkur, en ekki eins óyggjandi eins og róðukrossinn undir taðhnausnum. Heilsufar móður minnar var óbilandi. Varð aldrei misdægurt nema lítið eitt um leið og hún ól börnin. Söng hún og kvað sífelt við vinnu sína, grét bara stöku sinnum við rokkinn sinn og söng iðrunar- sálma, var þá að iðrast synda sinna. Aldrei bilaði liana kjark né dug, fyr en uppáhaldssonur hennar fór til Ameríku. Hún fékst lítið um það, grét heldur ekki; en þegar hann var ferðbúinn, sótti hún hestinn hans upp í brekkur. Kom hún þá húfu- og svuntulaus heim, hafði týnt hvoru- tveggju, vissi ekkert af því. Upp frá því gekk hún ávalt lotin, áður var hún keiprétt. Askinn hans geymdi hún til dauðadags. Faðir minn var oft kránkur. Hafði sætt svo harðri meðferð í æsku, að hann varð aldrei að manni. Fyrirbænir móður minnar, blóðtökur. baun í fæti og kamfórubrennivín var honum til lækninga haft. — Það ráð vissum við bezt við heimakomu: sjúklingurinn átti að sitja yfir heitri keytu, hlaupa síðan upp bratta fjallshlíð, þá var þeim sjúkdómi lokið. Börnin öll heilsuhraust, urðu ágæta vel vinnandi, öll nema ég. Þau, sem dóu, dóu nýlega fædd, og voru öll af fyrra hjónabandi; faðir þeirra var vanheill. Einungis 3 af 9 börnum hans lifðu. Ung var ég einatt útsteypt í kýlum og krefðu, fleiðrum og flatsæri, fann því sjaldan æsku- fjör né gleði. Réttarfarssögu einnar minnist ég, sem hafði svo ill áhrif á föður minn, að hann varð aldrei jafngóður af. Systir mín, sú er ekki ólst upp heima, átti barn 15 vetra með íjölskyldumanni, sem þáði af sveit. Hún vann fyrir barninu að sínum parti, en hreppurinn varð að taka að sér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.