Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Qupperneq 31

Eimreiðin - 01.05.1906, Qupperneq 31
111 föðurskylduna. Hreppstjórinn kom svo eitt sinn með þau tíðindi, að for- eldrum móðurinnar —- jafnvel systkinum hennar — bæri að lögum að annast um barnið. Ur þessu varð þras, síðan mál og dómur, og var foreldrum stúlkunnar dæmt skylt að uppala barn þetta. — K. Kristjáns- son, sá er síðar varð amtmaður norðanlands, mun hafa dæmt mál þetta. Foreldrarnir urðu sárgröm úrskurði þessum. hann þá útslitinn heilsulítill maður, enda voru flestir á því, að dómur þessi væri ósanngjarn og óréttur. Þegar lögtak átti fram að fara hjá foreldrum mínum, til fram- færis barni þessu, þá skárust góðir menn í leikinn og komu á samning- um, en faðir minn beið þess aldrei bætur. Þegar svo veslings móðirin var búin að vinna fyrir barni sínu í io ár, þá datt það af hestbaki í ársprænu og druknaði. Flest það, sem ég hef hér að framan frá sagt af högum okkar og háttum, eru minningar frá fyrri hluta bernsku minnar. Þegar ég var 9 ára, 1866, fluttum við á aðra jörð í sömu sveit. Þar var mikið betur húsað og þar kyntumst við miklu meira háttum annarra manna en í af- dal okkar, enda leið þá ekki á löngu áður en við krakkar gjörðum uppreist móti heimilisstjórninni, brutum venjur ýmsar á bak aftur og inn- leiddum nýja siði, enda var þá efnahagurinn orðinn svo, að hann þoldi vel að dálitlu meiru væri til kostað. Þegar við komum á bæ þennan, hafði baðstofan aldrei verið þvegin, var þó öll þiljuð og sæmileg. Eins höfðum við það nokkur ár, en svo þegar nýjungafárið greip okkur, þá var það eitt með öðru, að við vildum ræsta gólfið. Þann dag man ég, sem það komst á, að hreinsa baðstofuna, og svo sigurgleðina mína um kveldið, hana man ég líka. Á því gólfi voru óhreinindin orðin svo þvkk, að hvergi sá til fjala. Eftir að breytingin fór að komast á hjá okkur, kom það í ljós, hvað móðir mín var hreinlát að náttúrufari. Að svo mjög var áfátt með það áður, kom af venjufestu, fátækt og annríki hennar. í elli sinni þvoði hún iðulega líkama sinn allan og mátti ekki blett á nokkru sjá, svo varla var hægt að gjöra henni til hæfis með það. Eftir það að við krakkar komum stjórnarbyltingunni á hjá okkur, leið ekki á löngu áður en við komumst á álíka menningarstig eins og aðrir kringum okkur; en það stig var að vísu ekki hátt, og minna vissi ég á ferm- ingaraldri, en ég veit dæmi til síðan um fullvita fólk. Með þann undir- búning undir lífsbaráttuna lagði ég áleiðis út í mannlífið, nítján vetra gömul. Ólöf Sigurðardóltir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.