Eimreiðin - 01.05.1906, Page 35
"5
brotnar, eða gengið í berhögg við tízkuna. Pessi vísa er til
dæmis um það:
Ýtar mega lotning ljá karlinn Jón er kominn á
langri sultar beygju: korta móðins treyju.
Sá Jón — uppi um miðja s. 1. öld — lagði vísusmiðinn á snögga
blettinn, og var því þann veg háttað, að hann, eða kona hans,
hafði fengið blett á mannorð sitt:
Máttir þegja, meiðir fleins legðir feginn aðra eins
minn, um treyju laka; yfir beygju saka.
Par með var því máli lokið.
Pá var það algengt að yrkja um alla nýbreytni og þá atburði
gjörvalla, sem tíðindum þóttu sæta, eða einstakir vóru, ýmist
stökur eða langa bragi. Einu sinni fengu bændur í Reykjadal
leyfi Grenjaðarstaðarprests til að leita trjáviðar í rekunum innan-
vert við Skjálfanda, og áttu þeir von á trjánum niðri í sandinum.
Petta var á vetri. En þegar þangað kom, gengu verkfærin hvergi
niður — fyrir frosti í sandinum. Mikið gaman var að þessu hent
og kveðinn bragur um förina. Par í er þessi vísa:
Par um skrafar þjóð í bland, þeir eru að grafa sjóarsand,
þykir tafar vinna; svo að hafið gangi á landll
Vísan er eftir bónda, sem Benedikt hét, á Stórulaugum. Hann
var fljúgandi hagmæltur og stóð aldrei í honum, en kunni ekki
málið vel. En hver getur neitað því með rökum, að þar hafi
kunnað að vera maður, viðlíka vel gefinn til formfegurðar, sem
Guðmundur Guðmundsson?
Víst er það, að þessi framliðnu alþýðuskáld hér í sýslunni
vóru stórum gáfuð. Hugsunin var fleyg og fær um þau lönd og
leiðir, sem þau höfðu kannað og minnið og næmið alveg ótrúlegt.
— Eg er ekki einn þeirra manna, sem hafa þá trú, að heiminum
fari hnignandi og öllu því, sem í honum er. En minni manna
er í afturför, það er víst, og orsakirnar eru eðlilegar. Nú er
fleira lesið og heyrt, meiri hraði á lifinu. Einn atburðurinn þurkar
annan burt. Dagblöð og sögur koma eitt af öðru. Nú er lesið,
en ekki lært. Pá var svo fátt um að velja, að þetta fáa var fast
í minninu, miklu betur en nú gerist.
Pað er til dæmis um minnisgáfu gamalla manna, að þegar
amma mín (föðurmóðir) Hólmfríður Indriðadóttir var ungfrú tvítug
8*