Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Page 63

Eimreiðin - 01.05.1906, Page 63
143 Neðar í hömrunum liggur Gotthard-járnbrautin, mestmegnis í jarðgöngum, en kemur þó sumstaðar fram úr berginu. Undir miðjum hömrunum er Tellskapella, sem er bygð á klöppinni, sem Tell stökk upp á, þegar hann flúði úr bát landstjórans í storminum; eru þar málaðar á veggina myndir af atburðum úr sögu Tells. Skamt inni í dalnum frá vatnsendanum liggur Altdorf, þar sem »kraftaverkið« skeði, þegar Tell skaut eplið af höfði sveinsins. Á miðtorgi þorpsins stendur standmynd af Tell með boga sinn og örvar, og leikbús heíir verið bygt þar, því nær eingöngu fyrir hið fræga skáldverk Schillers, sem þorpsbúar leika sjálflr — og lifa í alla sína æfi. Eimskipið lagði að bryggjunni í Fliielen; þar komu ferðamenn sunnan af ítalíu á móti okkur og tóku sér far með okkur aftur norður eftir. Á leiðinni til baka var tækifæri til að renna augunum aftur og enn þá einu sinni yfir þessar frægu og fögru stöðvar. En þegar kom norður fyrir Brunnen, lagði þunn árdegisþoka sig yfir vatnið og byrgði alla útsýn. Tjaldið var fallið. Náttúran hafði ekki meira til að sýna mér að þessu sinni. Nú átti allur sá ríkdómur, sem ég liafði séð síðustu klukkustundirnur af fögrum og þráðum myndum, að búa sér ógleymanlegan bústað í huga mín- um. Eg gekk ofan í salinn undir þiljum niðri, lagði minn elskulega eigin-líkama upp á flauelssófa, lokaði augunum og reyndi að seiða fram í huga mínum myndir alls þess, sem ég hafði séð, en tókst það ekki þá eins vel og oft síðan. — — í héraði þessu sameinast þrent merkilegt. Það er náttúrufeg- urðin, mannvirkin og fortíðarminningarnar. Náttúrufegurðin er altaf söm við sig. Hún er sameiginleg eign allra, sem vilja opna augun til að njóta hennar. Mannvirkin lúta aðallega að samgöngum og það eru torfærurnar og samgönguþörfin, sem liefir knúð þau fram. Gotthard- brautin er eitthvert merkilegasta samgöngumannvirki heimsins, öll í heild sinni, en þó einkum göngin í gegn um St. Gotthard-fjallið sjálft, sem eru fullar tvær danskar mílur á lengd, en liggja langt fyrir sunnan þessar stöðvar. Brautin er að vísu eign fleiri þjóða; en það eru Svisslendingar sem mest hafa til hennar lagt og mest að henni unnið, svo hún má með réttu kallast þjóðareign og þjóðarsómi. Fortíðarminningarnar eru þar á móti upprunaleg og arfgeng eign þjóðarinnar einnar, og það er fyrir sérstakar ástæður að þær eru orðnar fleiri manna eign, eða réttara sagt, alþjóðaeign. Svisslendingar hafa einkis í mist fyrir það. Útlendingar geta að eins notið þeirra með þeim. en aldrei tekið þær frá þeim. En ekki er það furða, þótt þeir haldi í heiðri minningu þess manns, sem hefir opnað augu þeirra og alls heimsins fyrir því kærasta og dýrmætasta, sem þeir áttu til. 7. STANDMYND AF TELL.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.