Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Page 73

Eimreiðin - 01.05.1906, Page 73
153 annars er ritgerðin aðallega um ritgerð dr. A. Olriks »Om Ragnarok« í »Aarb. f. nord. Oldk. og Historie« (1902), sem Kahle lýkur miklu lofsorði á. Um leið og hann rekur efni þeirrar ritgerðar, kemur hann með margs konar athugasemdir og bendingar, og skýrir jafnframt frá skoðunum annarra vísindamanna, svo að úr því öllu verður handhægt og fróðlegt )dirlit yfir hinar mismunandi kenningar og skoðanir á þessum goðsögnum. V. G. UM HLJÓÐGILDI STAFA í ÍSLENZKUM FRAMBURÐI (»Det moderna is- lándska ljudsystemet«) hefir dr. H. Buergel Goodwin skrifað mjög fróðlega ritgerð á sænsku í tímaritið »Svenska landsm.« 1905. En hún er svo lærð, að ekki þýðir að rekja neitt úr henni fyrir íslenzka alþýðu, enda er hún útlendingum ætluð aðallega. Tvær villur höfum vér rekið oss á í henni í tilvitnunum, og er önnur sú, að Svein- bjóm, kennari Sveinbjörnsson í Arósum er þar nefndur Sveinn, en hin, að sagt er, að vísan: ^í^ér er lagin þögnin ein« sé eftir Hannes Hafstein, en hún er, eins og kunnugt er, eftir Porstein Erlingsson. Eitt vísuorðið er heldur ekki alveg rétt: »horft yfir æginn efst á grein« í staðinn fyrir: »og horft á æginn efst af grein«. V. G. LÝSING Á ÞlNGVÖLLUM og sveitunum þar umhverfis hefir M. phil. Carl Kúchler skrifað í þýzka tímaritið »Úberall« (Nr. 5), og fylgja henni nokkrar myndir til skýringar. Þar er og þýðing á kvæði Stgr. Thorsteinssons »Nú roðar á Pingvalla fjöllin fríð« (eftir C. K.) og á »Guð vors lands« og byrjuninni á »ísland farsælda frón« (eftir Poestion). — Af tilvitnun í ritgerð þessari má sjá, að verið er að prenta fullkomna ferðasögu eftir herra Kiichler (með 100 myndum og 1 uppdrætti), sem á að heita: »Unter der Mitternachtssonne durch die Vulkan- og Gletscherwelt Is- lands«. V. G. MÁLFRÆÐI í NÚTÍÐAR-ÍSLENZKU (»Omrids af det islandske sprogs form- lære i nutiden«) hefir prófessor Finnur Jónsson samið á dönsku. — Bókin, sem er aðeins rúmar 40 bls., er prentuð síðastl. ár, 1905. (Gad). Eftir formála bókarinnar að dæma hefir brýn þörf rekið höf. til að gefa út málfræði íslenzkrar tungu, eins og hún er nú (töluð og skrifuð). Ef málfræðisskorturinn einn hefir hindrað Dani í að leggja stund á »ný«-íslenzkuna, skyldi maður ætla, að nú yrrði handagangur í öskjunni; öðrum en dönskumælandi lýð getur hún sem sé vart komið að haldi. Hún virðist að miklu leyti vera samtíningur þeirra nýlegu orðmynda, sem finna má í skýringum málfræði Wimmers, og er eigi sagt með því, að hún sé verri fyrir það. En gallalaus mun bók þessi ekki vera, enda þótt það sé hyggja Dana ýmsra, sem ekkert skilja í íslenzku (»Politiken« kvað ekki hægt að finna neitt að málfræðinni, meður því að höf. væri »óskeikull« í þessum efnum). Af handahófi skal hér getið um nokkuð af því, er fyrir mér varð athugavert við fljótan lestur. Höf. segir h fyrir framan v oftast borið fram eins og k; efamál, hvort það er rétt. Telur einkabarn heita »einbemi«, en svo er ekki, því að nú á tímum segja allir einbimi. Hann fræðir Dani á því (í gr. um tillíking), að þorleifur sé framborið þolleifur, en getur þess ekki, að þar eigi við íM-hljóðið, og munu þeir því eftir þessa tilsögn bera 11-in í þolleifi ffam eins og í »núll«. Nefnir ekki, þar sem hann skýrir frá, að í orðinu sjór sé z/-inu alstaðar slept, — að eint. myndin sœr er og alltíð (hjá skáldum), og þar er eignarf. scevar, án þess að v-ið megi úr fella. Honum hefir einnig láðst að taka það fram, að frú (með eignarf. frúar) er óbeygil. í eint., þegar það er með nafninu, sem það á við. Óskiljanlegt er, hvaða gagn útlendingar

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.