Eimreiðin - 01.05.1906, Side 78
Eimreiðin
Nýir kaupendur að 12. árg. Eimreiðarinnar, er þess óska,
geta fengið í kaupbæti ókeypis eitt af þessuþrennu:
1. REYKJAVÍK UM ALDAMÓTIN 1900 (með 17 myndum)
eftir Ben. Gröndal.
2. EIMREIÐINA, II. árg., sem í er meðal annars hin ágæta
skáldsaga Einars Hjörleifssonar »Brúin«, »Hafnarlíf« eftir
Jón Jónsson sagnfræðing o. m. fl.
3. EIMREIÐINA, III. árg.; í þeim árg. er m. a. skáldsaga Jón-
asar Jónassonar »Eiðurinn«, ferðasaga dr. V. G. »Frá
Vesturheimi« o. s. frv.
Nýir kaupendur geta og fengið alla 10 fyrstu árganga
Eimreiðarinnar, sem kosta með bókhlöðuverði 29 kr. (í Ameríku
8 11, 60) með 14 kr. afslætti eða fyrir einar 15 kr. (í Ameríku
8 6,00). — í 10 fyrstu árgöngunum eru 222 myndir og í n.árg.
50 myndir (í hinum út komnu 11 árgöngum þannig alls 272 myndir).
ÚR RITDÓMUM um 1. hefti af XII. árg. skal hér tilfært:
»Að öllu samtöldu mun »Eimreiðin« haía fullnægt köllun sinni bezt af þeim
tímaritum, sem íslenzkri alþýðu hafa boðist til þessa. Hún hefir nú í ellefu ár flutt
margt, fróðlegt og skemtilegt, sumt af því prýðisvel ritað. Frágangurinn allur hefir
jafnan verið vandaður, og myndir hennar hafa flestar verið til prýðis (nema ómynd
sú af eimreið, er til skamms tíma var prentuð framan á kápuna). Auðvitað hefir
efni og ritháttur verið misjafn að gæðum, en varla mun neitt, er hún hefir flutt,
hafa venð svo lélegt, að ekki hafi mátt heita fullboðlegt; og ruslaskrína hefir hún
aldrei verið. Hún hefir vissulega haft góð áhrif á íslenzka alþýðu yfirhöfuð.
í þessu fyrsta hefti af tólfta árgangi hennar er lengsta og helzta ritgerðin:
^Þingeyjarsýsla fyrir og um aldamótin«, eftir Guðmund Friðjónsson. Hún er fjör-
lega rituð og frá mörgu er þar hnittilega sagt .... höf. sýnir margar skýrar
myndir af þjóðfélagi sýslu sinnar og segir skemtilega frá því, er hann vill lýsa.«
(»VÍNLAND« V, 1).
»1 nýkomnu Eimreiðarhefti (XII, 1) eru tvær ritgjörðir hvor annarri betri
í sinni röð. — Önnur þeirra er um íringeyjarsýslu fyrir og eftir aldamótin, eftir
Guðm. Friðjónsson .... Frá þessari ritgjörð er snilldarlega gengið. Vér ætlum
það ekki á færi nokkurs annars íslendings að lýsa lífinu í sinni sýslu jafn-skemti-
lega......Hin ritgjörðin, sem vér viljum sérstaklega benda á, er »Stjórnin og
embættisgjöldin« eftir ritstjóra Eimreiðarinnar. Dr. V. G. hafði bent á það í Eimr.
áður, að embættisgjöld hér væru afarhá í samanburði við sams konar útgjöld Dana.
Þeirri grein svaraði prófessor Björn M. Ólsen í Andvara. Nú svarar Dr. V. G.
aftur, og verður ekki annað séð, en að prófessorinn sé beinlínis aumkunarverður eftir
þá útreið.« (»FJALLKONAN« XXIII, 15).
Útsölumenn Eimreiðarinnnar áminnast um að gera skilagrein
við hver árslok og endursenda það, sem vonlaust er um að seljist,
einkum þeir útsölumenn á íslandi (utan Reykjavíkur), er nokkuð
hafa til muna af eldri árgöngum.
LnnhPrn stærsta Vikublað á íslenzku, gefið út í Winnipeg, Man. (P. O.
yj Box 136). Flytur nákvæmar fréttir frá íslendingum bæði á ís-
landi og í Ameríku, enn fremur ritgerðir sögur og kvæði. Verð í Ameríku 2 doll.
árg., en á íslandi 6 kr.