Tölvumál - 01.09.1993, Qupperneq 13
September 1993
heild til sín taka. I ljósi þess
hversu víða tölvu- og upp-
lýsingatækni kemur við sögu er
eðlilegt að menn leiti annars
félagsskapar um ákveðin afmörk-
uð mál um lengri eða skemmri
tíma. Eftir atvikum á félagið
okkar að vera þátttakandi í slíku
starfi eða standa til hliðar.
Ég tel að Skýrslutæknifélagið
hljóti ávallt, vegna samsetningar
sinnar, að líta fremur á heildar-
hagsmuni en hagsmuni einstakra
hópa og sinni því hlutverki best
með fræðslu- og kynningarstarfi
í víðtækustu merkingu. Jafnt
með þeim hætti sem verið hefur
á liðnum árum, að halda ráð-
stefnur og fundi og gefa út
Tölvumál en einnig með því að
stuðla að því að fræðsla og fag-
leg umræða um tölvu- og upp-
lýsingamál eigi sér ávallt stað í
skólum landsins, innan veggja
fyrirtækja og stofnana, hjá
stjórnmálaflokkum, á Alþingi og
í fjölmiðlum. Það er mikilvægt
að félagið hafi virk áhrif á
stjórnvöld og setningu laga og
reglna sem að okkur snúa.
í vaxandi mæli þarf félagið að
beita sér fyrir viðurkenningu
tölvu- og upplýsingatækni sem
fullgilds atvinnuvegar til jafns við
greinar eins og landbúnað, iðnað
og sjávarútveg en láta mun nærri
að velta hennar sé um 10-15
milljarðar á ári og við hana starfi
ífullu starfi meiraen 1000 manns.
Félagið þarf að eiga virkan þátt í
því að móta menntun tölvufólks
á öllum stigum og vinna að
skilgreiningu starfsheita innan
greinarinnar líkt og nú er verið
að gera í Evrópu.
Unnið hefur verið þrekvirki í
íslenskun heita og orða í tölvu-
og upplýsingatækni og má segja
að íslenskt tölvufólk telji það
aðalsmerki að tala íslensku þegar
fjallað er um málefni grein-
arinnar. Þetta er að þakka starfi
fjölmargra manna og kvenna á
þessu sviði og útgáfu orðasafna
jafnt okkar sem annarra.
Þrátt fyrir góða stöðu á þessu
sviði nú má ekki slá slöku við og
það verður eitt af meginverk-
efnum okkar í framtíðinni að
tryggja sess íslenskunnar jafnt hér
á landi sem og fyrir Tyrkjaránum
framtíðarinnar.
Evrópumál hafa eðlilega verið
ofarlega á baugi á liðnu ári vegna
þeirrar umræðu sem átt hefur sér
stað um EES samninginn.
Vissulega er þessi málaflokkur
mikilvægur en við megurn ekki
láta tískusveiflur hvers tíma leiða
okkur af leið. Skýrslutækni-
félagið er íslenskt félag sem
vinnur fyrst og fremst að mál-
efnum greinarinnar hér á landi.
Þegar stór mál eins og EES koma
upp er eðlilegt að við fylgjumst
náið með þeim áhrifum sem
slíkur samningur hefur á okkar
svið og upplýsum félaga okkar
um hvað er að gerast og hvers
má vænta og eftir því sem tilefni
gefast til að við höfum áhrif á
þróun mála. (frh. á nœstu síðu)
Formaður SI ásamt fyrrverandi formönnum. Frá v. Oddur Benediktsson, Jón Þór Þórhallsson,
Sigurjón Pétursson, Páll Jensson og Halldór Kristjánsson. Myndin er tekin í hófi sem einn ágætur
félagsaðili hélt núverndi og fyrrverandi stjórnar- og ritnefndarmönnum í tilefni 25 ára afmœlis
félagsins.
13 - Tölvumál