Tölvumál - 01.09.1993, Síða 18
September 1993
Úr hugskoti frumherjanna
Viötöl: Guöbjörg Siguröardótti og Dagný Halldórsdóttir
Guðjón Reynisson
heiðursfélagi SÍ rifjar upp minnisstæð atvik
frá fyrstu árum tölvutækninnar á íslandi.
Fyrsti rafeindaheilinn
sem kom til landsins
Það þóttu mikil tíðindi þegar
fyrsta vélin af gerðinni IBM-1401
kom til landsins, árið 1964. Um
það leyti birtist í Morgunblaðinu
mynd eftir Sigmund sem hafði
yfirskriftina: "Fyrsti rafeinda-
heilinn kominn til landsins" og
sýnirþað vel hvað þetta vartalinn
mikill viðburður. Þessa mynd
hef ég geymt og þykir svolítið
vænt um hana. Ræstingakonan
hjá Skýrr var hins vegar ekki
ánægð með myndbirtinguna því
hún hundskammaði mig eftir að
myndin birtist af því að hún hélt
að ég hefði látið einhver orð um
hana falla við blaðamenn Morg-
unblaðsins.
"Á hverju á ég að
lifa?"
Starfsmenn þeirra fyrirtækja sem
skiptu við SKÝRR kenndu oft
tölvunum og starfsfólki SKÝRR
um ýmis óþægileg mál sem upp
komu og losnuðu þannig við að
rífast við fólk. Ég þurfti oft að
tala við fólk sem var mjög æst
yl'ir því hversu mikið hafði verið
í
Guðjón Reynisson
dregið af launum þeirra í skatta
eða barnsmeðlög. Einu sinni
hringdi til mín maður og heimt-
aði að ég segði sér á hverju hann
ætti að lifa því ég tæki svo mikið
af honum í skatta að hann hefði
ckki neitt eftir. Ég sagði honum
að ég hefði ef til vill getað gefið
honum góð ráð ef hann hefði
hringt í mig í fyrra, áður en hann
eyddi þessum miklu tekjum sem
hann var nú að borga skattana af,
en ég gæti ekkert hjálpað honum
núna. Þá svaraði hann: "Þið
eigið ekki að vera að taka að
ykkur, helvítis fíflin ykkar,
meira en þið getið ráðið við!"
Mér fannst ákaflega leiðinlegt
að svara svona símtölum en eftirá
getur maður séð broslegu hlið-
arnar á þessu.
Vanir að vinna allan
sóiarhringinn
Eitt sinn fór ég, ásamt Jóni
Zophaníassyni, á námskeið til
Noregs til þess að læra á IBM-
1401 vélarnar. Þá voru aðeins
komnar 3 vélar af þeirri tegund til
Noregs og keyrði IBM í Noregi
landbúnaðarskýrslur fyrir norska
landbúnaðarráðuneytið á einni
þeirra. Keyraþurfti þessarkeyrs-
lur á nóttunni því það var eini
tíminn sem var laus í vélinni.
Þegar Norðmennirnir á nám-
18 - Tölvumál