Tölvumál - 01.09.1993, Page 37
September 1993
í þessu sambandi er rétt að nefna
starfsemi SURÍS, Samtök um
upplýsinganet rannsóknaaðila á
Islandi. Reglulegutölvusambandi
við útlönd var fyrst komið á
með brautryðjendastarfsemi
innan Hafrannsóknastofnunar.
SURÍS var stofnað í febrúar 1987,
til þess að taka þátt í norrænu
samstarfi á sviði reksturs rann-
sóknaneta. Samkomulag vargert
um að færa tilheyrandi rekstur til
Reiknistofnunar 1989 og er sá
rekstur nú umfangsmikill og
ómissandi fyrir vísinda- og fræði-
starf í landinu með yfir 800 tölvur
tengdarnetinu af hálfu 45 stofnana
og fyrirtækja.
Meðal þeirra nýrri verkefna sem
Reiknistofnun hefur tekið að sér
að undanförnu er að hýsa og
keyra kerl'i Lands- og Háskóla-
bókasafna, "Gegnir". Það sam-
starf hefur einkennst af farsælu
samstarfi milli kerfisbókavarða
bókasafnanna og tæknisér-
fræðinga Reiknistofnunar.
Ýmsar spennandi nýjungar og
brautryðjandi þróunarverkefni
eru í athugun eða undirbúningi
hjá Reiknistofnun og væntanlega
mun afrakstur þeirrar starfsemi
birtast félögum Skýrslutæknifél-
agsins í framtíðinni, annað hvort
á vettvangi ráðstefna félagsins
eða á síðum Tölvumála.
Lokaorð
Hvorki hefur gefist hér pláss né
tími til að ljalla um starfslið
stofnunarinnar né stjórn hennar
og stefnumörkun og er það
miður. Þessir málaflokkar verða
að bíða betri tíma.
Við undirbúning þessarar stuttu
greinar hef ég fengið ómetanlega
hjálp, fúslega veitta af Helga
Þórssyni, Jóhanni Gunnarssyni,
Jóni Þór Þórhallssyni og Oddi
Benediktssyni og kann ég þeirn
öllum bestu þakkir fyrir. Rang-
færslur eða missagnir sem kunna
að leynast í innihaldinu eru að
sjálfsögðu alfarið á ábyrgð höf-
undar. Sá tími sem var til ráð-
stöfunar til að skrifa greinina var
af ytri ástæðum af mjög skornum
skammti og í reynd ekki tíundi
hluti af því sem efnið á skilið.
Ég vona að lesendur fyrirgefi
glappaskot sem kunna að vera af
þessumsökum. Efnið á sem sagt
betra skilið en þessi íatæku orð
og ég vona að tækifæri gefist
bráðlega til að taka saman al-
mennilega sögu Reiknistofnunar
Háskólans sem er svo nátengd
sögu tölvumála hér á landi.
Douglas Brotchie er
forstöðumaður Reikni-
stofnunar Háskólans.
og nú...
er einn fremsti
gagnagrunnsmiölari
heims fáanlegur fyrir
Windows NT
□RACLE'
OIIACLE ísland Borgartúni 24 105 Reykjavík Sími 91-618131 Fax 91-628131