Tölvumál - 01.10.1996, Side 5
Október 1996
Avarp Jóhanns Gunnarssonar
við setningu ráðstefnunnar
Skólastarf og upplýsingatækni
Menntamálaráðherra, góðir
ráðstefnugestir og fyrirlesarar!
Mér er það mikill heiður að fá
að stýra þessari ráðstefnu um
skólastarf og upplýsingatækni sem
Skýrslutæknifélag Islands stendur
fyrir hér í dag ásamt Félagi tölvu-
kennara og Kennaraháskóla
Islands. í dagskrá segir að þetta
sé þriðja ráðstefnan um notkun
upplýsingatækni í skólastarfi sem
félagið stendur að í nánu samstarfi
við menntastofnanir í landinu.
Þessu ánægjulega samstarfi ber að
fagna. Á 28 ára starfsferli sínum
hefur félagið löngum lagt áherslu
á fræðslu um allar hliðar upp-
lýsingatækninnar. Hefur það verið
gert með fundahaldi og ráðstefnum
þar sem oft hafa komið merkir erl-
endir gestir. Tímaritið Tölvumál,
sem félagið gefur út, hefur til
skamms tíma verið eina íslenska
tímaritið sem reglulega fjallaði um
málefni upplýsingatækni. Þá hefur
félagið beitt sér fyrir stöðlun og
staðið fyrir útgáfu tölvuorðasafns,
sem reyndar er væntanlegt í nýrri
og aukinni útgáfu á næsta ári.
Ekki er fjarri lagi að eitthvað
gerist á vegum félagsins í hverjum
mánuði yfir veturinn.
Verkefni okkar á þessari 4'úð-
stefnu, að tala um upplýsingatækn-
ina og skólann í samhengi hvort
við annað, er vissulega tímabært.
Upplýsingasamfélagið, upplýs-
ingabyltingin er að koma yfir
okkur. Um það fáum við ekki
vélað. Miklar breytingar eru fyrir-
sjáanlegar, reyndar að hluta þegar
orðnai', á því hvemig einstaklingar
og þjóðir heimsins eiga samskipti
sín á milli. Nýjar auðlindir kunna
að verða gjöfulli en þær hefð-
bundnu, til dæmis auður manns-
andans.
Mikilvægt er að við, íslenska
þjóðin, gerum okkur skýra grein
fyrir eðli hins nýja samfélags og
göngum inn í það á okkar eigin
forsendum. Þessi ráðstefna er liður
í því ferli að móta okkur forsendur
við hæfi. Mér þykir því eiga við
að fara í upphafi örstutt yfir þrjú
helstu einkenni upplýsingasam-
félagsins og tímatal, en um hvort
tveggja mætti hafa mörg orð.
Einkenni
1. Hraðvirkar, stafrœnar fjar-
skiptaleiðir (upplýsingahrað-
brautir).
Viðeigandi er að nota hér
fleirtölu. Það er að mínu mati of
fmmstæð heimsmynd að setja jafn-
aðarmerki á milli upplýsingabylt-
ingarinnar og Intemetsins. Fjögur
önnur alþjóðleg tölvunet eru til
dæmis starfrækt hér á Islandi:
SITA (fjarskiptanet flugfélaga og
ferðaskrifstofa), SWIFT (banka-
viðskipti), VISA (greiðslukorta-
viðskipti) og Almenna gagnanetið
(X.25, rekið af Póst- og símamála-
stofnun). Internetið er aðgengi-
legast og útbreiddast þeirra, og síst
vildi ég gera lítið úr þætti þess í
þróun upplýsingasamfélagsins, en
því er vantreyst í viðskiptaheim-
inum vegna takmai'kaðs öryggis og
áreiðanleika.
2. Öflugur, auðtengjandlegur
tölvu- og fjarskiptabúnaður.
Tækniþróun sem enn á sér ekki
merkjanleg endimörk ásamt sí-
stækkandi markaði valda því að
sífellt er ráðist inn á ný notkunar-
Þróun upplýsingasamfélagsins
Myndin sýnir tímabilin fjögur og lielstu einkenni hvers um sig
Tölvumál - 5