Tölvumál


Tölvumál - 01.10.1996, Qupperneq 16

Tölvumál - 01.10.1996, Qupperneq 16
Október 1996 Upplýsingatækni í kennaramenntun Stefnumótunarstarf Kennaraháskóla íslands Eftir Önnu Kristjánsdóttur I desember 1995 skipaði skóla- ráð Kennaraháskóla Islands starfs- hóp um upplýsingatækni í kenn- aramenntun og skyldi hann leggja fram tillögur að stefnumótun. Þegar þetta var gert var vinna menntamálaráðuneytisins við ritið I krafti upplýsinga langt komin og var KHÍ ein fyrsta stofnunin til þess að hefja vinnu sem fylgdi eftir þeirri stefnumörkun. Á vormánuðum 1996 var Kennaraháskóla íslands falið að taka við rekstri Islenska mennta- netsins og jafnframt var ljóst að áhersla yrði lögð á að stórefla sam- virka kennslumiðstöð til þess að hún gæti þjónað skólum í auknum mæli, bæði í nálægð og um net. Hvort tveggja hafði þetta áhrif á stefnumótunarvinnuna. Til grundvallar skrifum sínum lagði starfshópurinn, auk ákvæða laga og reglugerða, þau markmið og leiðir sem þegar voru fram komin í ritinu I krafti upplýsinga og í skýrslunni Ein samvirk kennslumiðstöð. Snemma var einnig ákveðið að leita eftir við- tölum við alla fastráðna kennara og að fá skýrslur um nýtingu upp- lýsingatækni og framtíðarsýn á þeim vettvangi frá öllum stofnun- um innan KHÍ. Einnig var leitað eftir umsögnum kennarasamtaka og samtaka skólastjórnenda. Þótt hér væri um umfangsmikið starf að ræða hefur kornið skýrt í ljós að með þessu fengust mikilvægar upplýsingar sem munu skipta meginmáli við endanlega ákvörðun um stefnu og framkvæmdir allar á komandi árum. Starfshópurinn skilaði skýrslu sinni og tillögum til skólaráðs Kennaraháskóla íslands í septem- ber 1996 og var gerð nokkur grein fyrir vinnunni og áherslum í henni á ráðstefnunni Skólastarf og upp- lýsingatækni. Tillögurnar varða almennt kennaranám nær og fjær, endurmenntun og símenntun staif- andi kennara, framhaldsnám og rannsóknir og síðast en ekki síst alla stoðþjónustu sem KHI veitir innan sinna veggja sem og aðilum utan skólans. Mikil áhersla er lögð á samhæfingu, samstarf og frum- kvæði á þessu sviði. Meðan til- lögur eru til umræðu í skólaráði Kennaraháskóla íslands er ekki tímabært að segja frekar frá þeim en Tölvumál hafa falast eftir grein um þessa stefnumótun KHÍ er umræðum og afgreiðslu verður lokið. Anna Kristjánsdóttir er prófessor við Kennara- háskóla Islands og veitirforystu starfshópi skólans um stefnumót- un varðandi upplýs- ingatœkni. Heimildir: - I krafti upplýsinga. Tillögur menntamálaráðuneytisins um menntun, menningu og upplýs- ingatœkni 1996-1999. Rv., Menntamálaráðuneytið, 1996. - Ein samvirk kennslumiðstöð. Lokaskýrsla starfshóps um hús- rýmisþörf vegna bókasafns, gagnasmiðju, kennslumiðstöðvar og fjarkennslu í KHÍ (&UHÍ). Sigurjón Mýrdal o.fl. Kennara- háskóla Islands í júní 1995. Heimasíða tölvuorðasafns Eins og allir vita er nú unnið hörðum höndum að undirbúningi næstu útgáfu tölvuorðasafns og er fólki bent á að líta á heimasíðuna: htt p ://w w w. i s m a I. h i. i s/to Drengur í hafnfirskum skóla var spurður að því í kristinfræðsitíma, hvort hann vissi hvað gerst hefði á páskunum. „Nei, það veit ég ekki,“ svaraði strákur, „því þá var ég á ferðalagi úti á landi með mömmu og pabba.“ 16 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.