Tölvumál - 01.10.1996, Page 33
Október 1996
síðar í atvinnulífinu. Enn hef ég þó
ekki kynnt mér neinar niðurstöður
rannsókna, sem styðja þessa trú
mína.
Mér finnst óréttlátt að sumir
nemendur hafi aðgang að góðu og
vel búnu skólasafni, en annars-
staðar er skólasafnið 30 eintök af
sömu skáldsögunni og nokkur
uppsláttarverk á kennarastofunni.
Þetta á ekki við um neitt fram-
haldsskólasafn hér á landi, þau eru
langflest á mjög góðri uppleið, en
ég veit að í nokkrum grunnskólum
er þetta dæmi ekki víðsfjarri, því
miður.
Hvert stefnum við?
í mörg ár hefur verið lögbundið
að í skólum skuli vera skólasöfn,
án þess að lögð hafi verið mikil
áhersla á að samþætta þau kennsl-
unni. Reyndar stendur í nýjum
framhaldsskólalögum, 11. kafla,
36. grein, m.a.:
„í starfsemi skólasafns skal
leggja áherslu á að þjálfa nem-
endur í sjálfstæðri leit upplýsinga
og notkun gagnabanka“.
Satt að segja finnst mér þetta
svo opið og loðið orðalag að hver
getur túlkað næstum að vild, ég
reikna þó með að bókasafnsfræð-
ingar og skólasafnskennarar reyni
að gera sitt besta, eða er ekki átt
við að þeir annist þessa þjálfun?
Þó læðist að mér sá grunur að
stjórnmálamenn viti ekki alveg
hvaða hlutverki þeir hafi ætlað
skólasöfnunum að gegna í mennta-
kerfi framtíðarinnar og er ekki að
furða. Ekki hafa þeir sjálfir vanist
skólasöfnum í eigin skólagöngu og
ekki er hægt að segja að stuðningur
við uppbyggingu skólasafna sé
mjög sýnilegur á vogarskálum
stjómmálanna né augljós leið til að
afla sér vinsælda á landsvísu.
En tillögur menntamálaráðu-
neytisins um menntun, menningu
og upplýsingatækni gera mikið úr
hlutverki skólasafna og mikilvægi
endurmenntunar starfsfólks safn-
anna, svo að við megum áreiðan-
lega vænta skilnings þar á bæ.
Það er óumdeilanlegt að nem-
endur lifa í nokkurs konar upplýs-
ingaheimi. Tölvur em hluti af dag-
legu lífi þeirra, mismikill þó. Við
höfum orðið vör við að vaxandi
munur er á fæmi nemenda í tölvu-
notkun. Sumir nemendur hafa
tölvu heima og hafa mikla æfingu
í að nota hana.
Þessa þróun óttast ég. Mér
finnst alvarlegt umhugsunarefni ef
bilið milli þeirra nemenda sem hafa
aðgang að tölvu heima og þeirra
sem hafa ekki þennan aðgang fer
að koma fram í hæfni þeirra í námi.
Að mínum dómi er grund-
vallaratriði að skólasafnið stefni
að því að verða þjónustumiðstöð
skólans í upplýsingasamfélagi.
Nemendur eiga að svo miklu leyti
sem mögulegt er, að kynnast upp-
lýsingatækninni ískólanum. Nem-
endur eiga að læra að meðhöndla
tölvur, læra samskiptatækni í gegn-
um tölvur og læra að nota gagna-
grunna af öllum gerðum í eðlilegri
og skynsamlegri samþættingu og
þeir eiga líka að vera vakandi fyrir
þeim þjóðfélagslegu afleiðingum
sem stafa af óskaplegu umfangi
upplýsinga í heiminum.
Mér finnst nauðsynlegt að við
setjum kennslu í upplýsingatækni
inn í kennsluskrár og fléttum
bókasafnið meira'inn í námsgrein-
arnar.
Aukin notkun tölvutækni í
kennslu og aukið magn upplýs-
inga, breytir hlutverki kennarans
frá því að vera sá sem miðlar upp-
lýsingum til þess að veita nemend-
um kennslu og stuðning við sjálf-
stæða upplýsingaöflun. Þegar hlut-
verk kennarans breytist, breytist
einnig hlutverk bókasafnsfræð-
ingsins. Samstarf kennara og
bókasafnsfræðinga verður enn
brýnna.
Bókasafnsfræðingurinn tekur í
enn ríkari mæli að sér að leiða
nemendur inn í upplýsingaheiminn
og nauðsynlegt er fyrir kennara og
bókasafnsfræðinga að stilla samah
strengi sína þannig að sem bestur
árangur náist.
Tölvuheimurinn er að verða
nemendum okkar svo eðlilegur og
sjálfsagður að við eigum að kenna
þeim að ferðast um í honum á
auðveldan hátt. Enn koma
nemendur inn í framhaldsskólana
beint úr grunnskóla án mikillar
færni í tölvuvinnslu, en á því verð-
ur líklega mikil breyting á allra
næstu árum.
Kennsla í upplýsingatækni og
upplýsingalæsi (information lit-
eracy) er víðara hugtak en kennsla
íbókasafnstækni.
Kennsla í bókasafnstækni
hjálpar nemendum að finna upp-
lýsingalindir sem eru til á bóka-
safninu. Upplýsingatækni þjálfar
nemendur í að læra í upplýsinga-
heimi.
Kennsla í hefðbundinni bóka-
safnstækni hefur ekki getað stutt
þróun slíkrar færni í upplýsinga-
tækni sem er nauðsynleg í síbreyti-
legum heimi, kennslan hefur oftast
haft í för með sér að nemendur
hafa aðeins kynnst safnkosti eins
safns.
Sá sem hefur tileinkað sér upp-
lýsingalæsi, hefur lært að mennta
sig sjálfur. Hann veit hvernig
upplýsingar eru skipulagðar, hann
kann að bera sig eftir þeim og nota
þá tækni sem þarf til að leysa
verkefnið.
Þegar nemandinn þarf að nýta
fleiri en eina tegund upplýsinga við
lausn verkefnis lærir hann mest.
Við þurfum að kenna nem-
endum okkar að vera vandlátir á
upplýsingarnar, því er mikilvægt
að þeir hafi aðgang að sem flestum
upplýsingaleiðum á skólasafninu.
Almenningsbókasöfnin eru
sum hver farin að bjóða viðskipta-
vinum sínum Internetstengingu og
aðgang að margmiðlunardiskum.
Það er auðvitað ágætt, en á ekki
að koma í stað uppbyggingar
tölvukosts í skólum, heldur sem
viðbót við hann.
Mér finnst mikilvægt að nem-
endur okkar hafi aðgang á skóla-
Tölvumál - 33