Tölvumál - 01.10.1996, Blaðsíða 35
Október 1996
Áhrif upplýsingatækni á námsgreinar
Ierindi sínu á ráðstefnunni greindi Auður Hauksdóttirfrámikilvægi
tölvunnar við tungumálakennslu. Hvernig hægt er að nýta
samskiptamöguleika þá sem bjóðast sem gagnvirk tjáskipti. Hér
fer á eftir greinargerð eftir einn nemanda Auðar um heimasíðugerð
dönskunema við KHI.
Vettvangur
dönskukennara á
vefnum
í þessari grein er ætlunin að
skýra frá og vekja athygli á heima-
síðu sem undirritaður Guðmund-
ur Ingi Jónsson, Elín Einarsdóttir
og Guðrún Jóhannsdóttir unnu.
Við vorum öll nemendur í
dönskuvali KHÍ á síðustu vorönn.
Verkefnið, sem var liður í námi
okkar, fólst í því að gera heimasíðu
fyrir dönskunema Kennarahá-
skólans. Okkur fannst þetta góð
hugmynd þar sem við höfðurn
kynnst heimasíðugerð í öðrum
áfanga. Markmiðið var að búa til
stað á vefnum þar sem dönsku-
kennarar og kennaranemar ættu
auðvelt með að nálgast allskyns
upplýsingar tengdar dönsku-
kennslu. Einnig söfnuðum við fjöl-
mörgum áhugaverðum tengingum
um Danmörku og danska menn-
ingu og settum inn á vefinn. Sumar
þeirra nýtast ekki bara þeim aðil-
um sem láta sig dönskukennslu
varða heldur hverjum þeim sem
vantar einhverjar upplýsingur um
landið. Þess má geta að heimasíð-
an er á dönsku.
Heimasíðan skiptist í fjóra
hluta sem hægt er að tengjast á frá
upphafssíðunni og mun ég stutt-
lega gera grein fyrir þeim hér á
eftir:
1. Upplýsingar um námsgreinina
dönsku í Kennaraháskólanum.
. Kennarar
. Nemendur
. Kennsluskrá KHÍ (danska)
. Þáttur dönskunnar í Aðal-
námskrá grunnskóla
. Endurmenntunamámskeið
fyrir grunnskólakennara
2. Hagnýtt efni tengt dönsku á
bókasafni KHÍ
. Tímarit og blöð
. Bækur
. Upplýsingahandbækur
. Danskar kvikmyndir
. Hljóðbönd
. Tölvuforrit
3. Skólar og menntamál í
Danmörku
. Háskólar
. Önnur framhaldsmenntun
. Menntaskólar
. Grunnskólar
. Annað tengt menntamálum í
Danmörku
. Húsnæði fyrir námsmenn í
Danmörku
4. Almennar upplýsingar tengdar
Danmörku
. Fjölmiðlar
. Bókasöfn í Danmörku
. Ferðalög í Danmörku
. Ymislegt skemmtilegt
. Leitarvélar
. Hagnýtar upplýsingar um
Danmörku
. Atvinna í Danmörku
Út frá upphafssíðunni er svo
hægt að tengjast í þessa fjóra þætti.
Það fyrsta á að gegna því
hlutverki að veita allar upplýsingar
um valgreinina dönsku í KHI og
nöfn nemenda og kennara.
Annar liður á að vera til þess
að auðvelda bæði nemendum KHI
og dönskukennurum leit að bókurn
og öðru efni á danskri tungu á
bókasafni KHÍ. Þar er einnig reynt
að flokka efnið eins og unnt er til
þess að gera leitina enn einfaldari.
Þátturinn um skóla í Danmörku
á að gefa almenningi möguleika á
því að afla sér upplýsinga um
hvers kyns nám í Danmörku og
hina ýmsu skóla.
Að lokum er það sá þáttur sem
er mest almenns eðlis og þjónar
ekki bara kennurum og kennara-
nemum. Þai' má finna margskonar
upplýsingai' eins og nefndai' em hér
að ofan.
Stefnt er að því að þessi heima-
síða sé í stöðugri vinnslu og þá af
kennurum og nemendum í dönsku
í KHÍ.
Þó að megin markmiðið sé að
búa til stað fyrir áhugafólk um
dönskukennslu inn á netinu má sjá
að hér eru einnig fjölbreyttar upp-
lýsingar um Danmörku sem margir
gætu nýtt sér. Fyrir þá sem hafa
áhuga á að skoða þessa síðu er
slóðin:
http://khi.is/~khi3094/
frums.html
Guðmundur Ingi Jóns-
son
Röksemdafærsla ungs
drengs gegn skólaskyldu:
„Af hverju þarf ég að fara
í skóla fyrst ég get borðað
nestið mitt heima?“
Tölvumál - 35