Tölvumál


Tölvumál - 01.10.1996, Side 36

Tölvumál - 01.10.1996, Side 36
Október 1996 Verðlauna verkefnin Kolbrún Hjaltadóttir og Sigrún Jóhannsdóttir: Myndrún A ráðstefnunni Tölvur og nám'94 tók Skýrslutœknifélag Islands upp þá nýbreytni að veita viðurkenningufyrir starf tengt tölvunotkun í námi. Viðurkenning var veitt hópi sem kallar sig Tölvuvina- félagiðfyrir að koma á og efla víðtœkt og langvarandi sam- starfkennara um skoðun, þýð- ingar, gerð, prófun og notkun hugbúnaðar. I tengslum við ráðstefiiuna Skólastarf og upplýsinga- tœkni, 31. ágúst 1996, var efnt til samkeppni og veittar tvenns konar viðurkenningar. Annars vegarfyrir hugbúnað tilbúinn til notkunar eða á þróunarstigi og hinsvegar var um að rœða viðurkenningu fyrir kennsluferli þar sem upplýsingatœkni er mjög vel og hyggilega nýtt. Dómnefnd um kennslu- forrit skipuðu Guðjbörg Sig- urðardóttir, tölvunarfrceðing- ur, Birgir Edwald, kerfisfrœð- ingur TVI og kennari og Sal- vör Gissurardóttir, iektor. Viðurkenningu hlutu þœr Kolbrún Hjaltadóttir og Sigrún Jóhannsdóttir fyrir forritið Myndrúnu. Dómnefnd um kennsluferli skipuðu: Anna Kristjánsdóttir, prófessor, Lára Stefánsdóttir, kerfisfrœðingur TVI og kenn- ari og Valgeir Gestsson, kenn- ari. Viðurkenningu var skipt í tvennt, Georg Douglas hlaut viðurkenningu fyrir áfanga í stjörnufrœði og Harpa Hreinsdóttir, fyrir verkefnið Fornfrœði á Vesturlandi. Ritstjóri bað verðiauna- hafana að segjafrá verkefnum sínum og fylgja frásagnir þeirra hér á eftir. Aðdragandi Vinna við forritið hófst á norr- ænu hönnunarnámskeiði í Versl- unarskóla Islands sumarið 1989. Námskeiðið var haldið á vegum tölvuhóps norrænu ráðherranefnd- arinnar. Markmiðið var að hanna hugbúnað sem auðvelt væri að nota og læra á. Myndir og skjá- myndir væru einfaldar og allar að- gerðir augljósar þannig að hann hentaði sem stærstum notenda- hópi. Aðalmarkmið með forritinu er síðan að örva notandann til að skrifa og tjá sig í rituðu máli og efla þannig málskilning hans og orðaforða. Forritið er ætlað nem- endum á forskóla- og grunnskóla- aldri. Vinnan við forritið hefur verið styrkt af Verkefna- og náms- styrkjasjóði Kennarasambands Islands og Einari J. Skúlasyni hf. sem styrkti okkur bæði fjárhags- lega og lánaði okkur tæki til að skanna inn allar myndir sem eru í gagnasafninu. Námsgagnastofnun kostaði forritun að mestu og sá um útgáfu. Lýsing á Myndrúnu Myndrún er myndasöguforrit sem leyfir notandanum að búa til sínar eigin sögur. Hægt er að velja um tvö verkefni sem nefnast ann- ars vegar Myndraðir og hins vegar Myndhlutar. í Myndröðum eru 40 myndraðir með mismunandi við- fangsefnum. Notandinn getur skrifað texta inn á þær í texta- blöðrur eða inn á textasvæði. Þar semur notandinn texta sem er í samræmi við atburðarás og inni- hald myndraðanna. Að sjálfsögðu er enginn texti „hinn eini rétti“, ímyndunarafl notandans ræður þar um. Síðan má hugsa sér að hinar mismunandi útgáfur á sömu myndaröð séu góður grundvöllur til umræðna um fjölbreytileika málsins. Verkefninu er einnig ætlað að sýna hvernig myndasaga getur byggst upp. í Myndhlutum eru stakar myndir sem hægt er að raða á mismunandi bakgrunn. Þar getur notandi búið til eigin myndraðir og skrifað texta. Meginmarkmið með forritinu er að þjálfa notandann í móðurmálinu, auka orðaforða, efla málskilning og málþroska. Forritið er ætlað til kennslu í grunnskóla, bæði í almennri kennslu og sérkennslu en getur einnig hentað yngri og eldri notendum. Hægt er að prenta annað hvort eina mynd eða mynd- röð (fjórar myndir). Hægt er að tengja forritið við önnur Windows- forrit t.d. teikniforrit eða rit- vinnsluforrit. Þannig getur notand- inn annaðhvort teiknað sjálfur inn á myndirnar eða skrifað texta. Velja má að prenta í lit eða svart- hvítu (útlínur) og er þá hægt að lita myndina eftir prentun. Myndrúnu er einnig hægt að nota við kennslu í erlendum tungu- málum. Tœknilegar kröfur: PC-tölvur með Windows 3.1 eða nýrra (Win- dows 95), 8 Mb á hörðum diski, VGA-skjár eða nýrri. 36 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.