Tölvumál - 01.10.1996, Síða 38
Október 1996
Georg Douglas:
Sjálfstæður kennslutími með margmiðlun og Interneti
Inngangur
Astæðan fyrir þróun þessa
verkefnis má segja að sé reynsla
mín af notkun Internetsins og
stórum forritum (á CD-ROM) við
raunvísindakennslu í M.H. á und-
anförnum árum. Þó að kostirnir
við þennan kennsluhátt yfirgnæfi
gallana, getur þetta verið mjög
tímafrekt og sumum nemendum
yfirsést kjami málsins og drukkna
í tölvuvinnunni á meðan aðrir eiga
erfitt við að velja úr, eða komast
yfir þetta ofurmagn af upplýsing-
um sem er í boði. Með þessu verk-
efni er reynt að halda utan um þetta
upplýsingaflóð og gera notkun
Internets markvissari.
Skipulag
Hugmyndin var að hanna kerfi
eða tölvuumhverfi þar sem nem-
andinn getur ferðast á auðveldan
og fljótlegan hátt á milli margmiðl-
unarupplýsinga af mörgum gerð-
um en um leið fylgt ákveðnu ferli
eða þema sem kennarinn getur
ákveðið. Kerfið byggir annars-
vegar á MultiMedia Lab forritinu
sem Námsgagnastofnun gefur út á
íslensku og hinsvegar á HTML
síðum. Efnið er geymt á staðameti
og hjá miðlurum (server), en
jaðartæki, eins og CD spil-
arar og fl., eru líka notuð.
Með því að hafa HTML
síðurnar á staðarnetinu er
hægt að auka vinnsluhrað-
ann. Tilvísanir (links) eru
merktar til að sýna hvort þær
eru þegar innbyrðis eða
hvort þarf að sækja þær á
Intemetinu.
Nemandinn vinnur innan
ákveðins ramma en hefur
líka frelsi til að leita að upp-
lýsingum sjálfur. Þegar hann
ræsir kerfið birtast leiðbein-
ingar um hvað á að gera
næst. Stundum er hann einfaldlega
að horfa á og stjómar ekki því sem
er að gerast á skjánum, en í öðrum
tilfellum velur hann hvaða upplýs-
ingar eða ferli hann skoðar næst.
Dæmið sem var kynnt, var
kennslustund í plánetufræði.
Tíminn hefst með stuttu yfirliti þar
sem áhersla er lögð á aðalatriðin.
Myndir af Tunglinu, Mars og Ve-
nus birtast á skjánum með áhrifa-
mikilli tónlist. Nemandinn horfir
bara á og hlustar. Að því loknu
birtast valmyndir með tökkum sem
hver fyrir sig setur af stað ákveðið
ferli, þar sem yfirborðseinkenni
plánetanna eru tekin fyrir. Öll
forrit eru ræst sjálfkrafa og í lok
notkunar er nemandinn staddur á
upphafsstað hverrar aðgerðar og
tilbúinn að halda áfram eða fara
til baka. Þannig ferðast nemandinn
á milli texta frá kennaranum,
myndefna, myndbanda, stórra
forrita og Intemets, en alltaf undir
einhverri leiðsögn. Tónlist er mikið
notuð og hlutverk hennar má ekki
vanmeta. Hún ákveður hraðann og
skapar andrúmsloft.
A ýmsum stigum fær nemand-
inn tækifæri til að gera verkefni
tengd því sem er á skjánum. Verk-
efnin eru unnin í teikniforritum eða
HTML eyðublöðum (forms) sem
ræsast sjálfkrafa. Lausnir verkefn-
anna fara beint til kennarans í
gegnum netið með því að ýta á þar
til gerðan takka.
Helstu kostir
Með þessu kerfi er auðvelt að
sameina mjög fjölbreytt margmiðl-
unarefni en nota eins mikið eða
lítið af því og þarf. Þannig er hægt
að leiða nemandann í gegnum
ákveðið ferli, á ákveðnum hraða,
en samt gefa honum frelsi til að
fylgja eftir áhugaverðu efni. Allar
brey tingar eru þægilegar þannig að
upplýsingarnar úreldast ekki.
Notandinn þarf ekki að vera
sérstaklega tölvulæs og getur
jafnvel yfirunnið tölvufælni í svona
vingjarnlegu umhverfi. Fyrst og
fremst þó, heldur kerfið mjög vel
utan um hið mikla upplýsingaflóð
m.a. á Internetinu og tryggir að
notkun verði markviss.
Ég þakka Hildigunni Halldórs-
dótturog Sveini Kjartanssyni fyrir
hjálp þeirra.
ODODDD-
myndirf CD tónlist
Val
Internet
C§taðarne|>
mynA+texti [~| mynÆbsmjTj—{mynd+texti
CD fbrrit
Maí
-senda
Einfölduð mynd til að sýna helstu tengileiðii:
38 - Tölvumál