Áramót - 01.03.1906, Blaðsíða 20
24
þeir geta æfinlega búizt við, er drottni vilja reynast
trúir. Freisting í þessa átt al.l-sterk getr legið oss nærri
út af hinni svo nefndu “nýju” guðfrœði, sem víða hefir í
seinni tið náð sér niðri í kirkjunni, líka meðal brœðra
vorra sumra úti á íslandi. Og er vér hugsum út þang-
að, þá getum vér ekki annað en fundið til sárrar sorgar
út af þeim stórkostlega villudómi, andatrúnni, sem þar
hefir nú í allra siðustu tíð náð haldi á hugsunum og
hjörtum merkilega stórs brots af þjóðinni. Raunaleg-
ast og háskalegast i því sambandi er þó það, að þetta á
að vera kristindóminum til frábærs og ómissanda stuðn-
ings. En hér er oss þá skýrt til þess bent, á hve marg-
víslegri leið heimsandinn getr rutt sér braut inn í
kirkjuna. Ein nv hvÖt fyrir oss til þess í kirkjufélags-
baráttu vorri að vera jafnan vakandi og eins og á varð-
bergi. Til þess veiti góðr guð oss þá náð sína í Jesú
nafni. Hann blessi kirkjufélagið og allt fólk vort
beggja megin hafsins og kristnina í heild sinni.
Jón Bjarnason.
Skrifari kirkjufélagsins, séra Björn B. Jónsson,
lagði fram ársskýrslu sína.
Féhirðir kirkjufélagsins, Jón J. Vopni, la,gði fram
ársskýrslu sína sem fylgir:
GJAFIR TIL HEIMATRÚBODS.
Systir Jóhanna Hallgrímsdóttir...........$20 00
G. S. Haller, Cuba, Nebr.................. 5 co
E'yrir kirkjuþingstíðindi frá 1904, seld
á kirkjuþ'ngi....................... 2 10
Séra P. Hjálmsson ('ofborgað)............. 1 20
J. V. Thorlaksson, Wpg.................... 6 65
Fyrsti lút. söfn. í Winnipeg..............40 00
Þingvalla-söfn.......... ................ 12 35