Áramót - 01.03.1906, Blaðsíða 34
38
Þar næst safnaði eg í Winnipeg-bæ $225.00. Og að
síðustu leitaði eg til Argyle-bygðar og safnaði þar $270.00.
SafnaSist á þann hátt nálægt $600.00 alls. Hvarvetna var
máli þessu sérlega vel tekið og kann eg öllum, sem eg hefi
leitað til í þessu efni, beztu þakkir fyrir góðar viðtökur og
greiða úrlausn.
Betur og betur virðist mér fólk vort skilja, hve mikla
þýðingu mentan æskulýðsins hefir og mjög alment er yfir
því fagnað, hve góðan orðstír nemendur vorir við Wesley
College geta sér. Og eitt er víst og það er að fólk safnaða
vorra alment lætur sér mjög ant um að tilvonandi presta-
efni fái sem rækilegastan undirbúning á æðri skólurn undir
prestsstöðuna.
Síðastliðið ár voru 25 nemendur innritaðir við Wesley-
College. Fylgir listi yfir nöfn þeirra skýrslu þessari.
Sumir þeirra urðu frá að hverfa eftir stutta stund, sakir
vanheilsu, eða þá af öðrum ástæðum. Munu 15 þeirra hafa
tekið þátt í íslenzku-kenslunni. Af þeim 10, sem ekki gjörðu
það, voru 5 í tveim efstu bekkjunum, þar sem íslenzka
ekki er kend. En hinir 5 voru af ýmsum ástæðum bundnir
við einhver courses, þar sem íslenzku-kenslan kemur í bága
við aðrar námsgreinar, og gátu því ekki af þeim ástæðum
tekið þátt í henni.
Tveir íslendingar útskrifuðust við April-prófin með á-
gætum vitnisburði. Þorbergur Þorvaldsson, með silfur-
medalíu að verðlaunum úr náttúrufræðisdeildinni, og jung-
frú Emily Anderson úr almennu deildinni. Hjörtur Leó
■öðlaðist $100.00 verðlaun í stærðfræði og Guttormur Gutt-
ormsson $100.00 verðlaun í gömlu málunum, báðir í þriðja
bekk, en Jón H. Christopherson $40.00 fyrir próf í þýzku.
Kenslunni í íslenzku hefir hagað verið á sama hátt og
áður, nema hvað Grettis saga var lesin í stað Egils sögu.
Meiri og meiri áhugi finst mér fram koma hjá nemendun-
um á að læra móðurmál sitt og gleggri skilningur þess, að
eins mikið geti verið upp úr því að hafa i mentalegu tilliti
og nokkru námi öðru.