Áramót - 01.03.1906, Page 43
47
Ensku nemendurnir héldu ekki áfram viö íslenzkuna
seinni árshelminginn, af þeirri ástæöu að þeir gátu ekki
fengið eins mörg „credits“ fyrir hana og þeir vildu. Þeir
þurftu 3 „credits" en fengu að eins 2 fyrir íslenzkuna.
Hér ber aö geta þess, að Sigtryggur ísfeld varð að fara
frá skólanum hér um bil tveim mánuðum fyrir uppsögn
skóla vegna annríkis á heimilinu, svo að hann gat ekki
gengið undir próf. Öll hin luku viðunanlega við prófið.
Þar eð þetta ár var síðasta ár Guðnýjar Hofteig við
skólann, og sú regla gildir að ‘seniors’, eða ‘dimittentar’,
■eiga að semja frumlegt rit um eitthvert efni; kaus hún að
semja ritgjörð um ‘renaissance íslenzkunnar’ á íslenzku og
var sú ritgjörð viðtekin.
Þvi miður hefir kenslan ekki verið eins fullkomin og
eg hefði viljað; kenni eg þar um meðal annars því, að
engar íslenzkar bækur aðrar en þær sem hafa verið við-
hafðar við kensluna, og Cleasby’s orðabók, sem eg fékk
skólann til að kaupa, finnast í bókasafni skólans. Til þess
að kenslan geti orðið sem fjölbreyttust og um leið unaðsleg
fyrir nemendurna, þarf maður að hafa gott bókasafn; og
til þess að sögukensla sérílagi geti komið að nokkru gagni,
er alveg nauðsynlegt að útvega gott landabréf af fslandi, og
jafnvel af Noregi líka. Eg þarf ekki að orðlengja þetta
meir, því eg þykist vita, að allir séu mér samdóma í því
máli. Þess vegna vil eg skjóta því til kenslumálanefndar
kirkjuþingsins hvort hún sjái sér ekki fært að flytja suður
til G. A. College eitthvað af bókasafni kirkjufélagsins.
Virðingarfylst ,
Magnús Magnússon.
Skýrsla yfir tekjur og gjöld kenslufyrirtækisins við
■Gustavus Adolphus College í St. Peter, Minn.
T ekjur.
Frá St. Páls-söfnuði .. .. $ 51 31
Frá Vesturheims-söfn........ 21 50