Áramót - 01.03.1906, Page 56

Áramót - 01.03.1906, Page 56
6o Swan River, Furudals, Mouse River, Pipestone og Brand- on söfnuðum fyrir prestsþjónustu, auk prestslausu safnað- anna í Nýja Islandi. Til þess aö vinna verk þetta er nú eigi á öðrum völ, en prestum kirkjufélagsins og guöfræSisnemanda Runólfi Fjeldsted, þar sem Jóhann Bjarnason, guöfræöisnemandi cr fyrir fram ákveöinn til þess að þjóna prestslausu söfn- uðunum í Nýja íslandi. Nefndin leggur það til, aö kosin sé þ-riggja manna nefnd á þessu þingi til aö reka alla heimatrúboðsstarfsem- ina og henni veitt umboð til að ávísa á féhirði kirkjufélags- ins eftir þörfum með samþykki forseta. Skal einn nefndar- manna kosinn til þriggja ára, annar til tveggja og hinn þriöji til eins. Skal nefndin leggja nákvæma skýrslu fyr- ir hvert kirkjuþing. Enn fremur leggur nefndin þaö til, að leitást sé við aö fá unga menn, sem langt eru komnir með undirbúnings mentan sína til að starfa að trúboði á sumrum. Hún leyfir sér að benda á Karl Olson frá Gustavus Adolphus College, sem ef til vill mætti fá þegar á þessu sumri til þeirra starfa. Að öðru leyti ræður nefndin eindregið frá því, að nokkurum sé ráðið til þess öldungis undirbúningslaust að byrja guðfræðisnám, nema alveg sérstök skilyrði séu fyrir liendi. Á kirkjuþingi 22. Júní 1906, F. J. Bergmann, N. Stgr. Thorlaksson, Friðb. Frederickson, George Freeman, Carl J. Olson. Samþykt að taka nefndarálitið fyrir lið fyrir lið. En með því aö matarmálstími var kominn,var fundi s,litið k!. 12, eftir að sungið hafði verið seinasta versið í sálmabókinni.

x

Áramót

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Áramót
https://timarit.is/publication/247

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.