Áramót - 01.03.1906, Qupperneq 58
É2
um kristindómsvini. Séra H. B. Thorgrímsen lagöi tii,
að séra Birni B. Jónssyni sé falið að flytja hinum ó-
nefnda gefanda hjartans þakklæti kirkjuþingsins, og
var það samþykt í einu hljóði.
Þá var haldið áfram að ræða heimatrúboðsmálið,
sem ólokið var frá síðasta fundi.
Fyrsti liður nefndarálitsins samþ. í einu h.ljóði.
Annar liður sömuleiðis.
Um þriðja lið urðu miklar umræður, og var hann
svo samþyktur með öllum þorra atkvæða.
Var svo nefndarálitið í heild sinni samþykt.
Næst var tekið fyrir skólamálið. Fyrir hönd nefnd-
arinnar i því máli lagði Jón J. Bíldfell fram nefndarálit
svohljóðandi:
Herra forseti.
Nefndin sem sett var til þess að íhuga skýrslur stand-
andi neíndar í skólamálinu, og skólamálið, leyfir sér að
leggja fram svo hljóðandi álit:
1. Nefndin leyfir sér að benda á, að í fjárhagsskýrslu
Wesley College nefndarinnar eru færðir til inntekta, fyrir
sölu „Aldamóta“ $50.00, sem samkvæmt ályktan áttu að
ganga í hinn sameiginlega skólasjóð; leggur nefndin til að
þessu sé breytt þannig, að þessir $50.00 sé dregnir frá
tekjuafgang Wesley College sjóðsins, sem samkvæmt reikn-
ingi nefndarinnar er $192.55, og lagt í hinn sameiginlega
skólasjóð;og verður þá í sjóði Wesley College deildarinnar
$142-55-
2. CBskilegt væri í framtíðinni, að mentamálaskýrsla
norðan nefndarinnar sé nákvæmari, en hún nú er, og viljum
vér i því sambandi benda á 6 lið þingsáliktarinnar í fyrra
í skólamálinu, sem svo hljóðar: „Að skýrslur frá skóla-