Áramót - 01.03.1906, Síða 67
teinsson þá breytingartillögu, að viö oröin „ráðsmaður
Sameiningarinnar“ bætist: „og Barnanna", og var hún
samþykt.
Séra Björn B. Jónsson gjörði þá viðaukatillögu, að
við iiðinn sé bætt orðunum: „og séu honum goldnir ido
dollarar fyrir starf sitt“. Samþykt.
Annar liður, með áorðnum breytingum, síðan sam-
þyktur. Voru þá fallnir liðirnir 4, 5 og 6. Nefndarálit-
ið, með áorðnum breytingum, samþykt.
Séra R. Marteinsson lagði til, að séra N. S. Thor-
laksson sé kosinn ritstjóri „Barnanna“. Samþykt.
Albert Jónsson lagði til, að séra N. S. Thorlakssyni
séu bergaðir 150 dollars úr kirkjufélagssjóði fyrir ýms
aukastörf hans. Samþykt í einu hljóði.
Þá var tekið fyrir málið um fjársöfnun í kirkju-
legar þarfir, og lagði séra Björn B. Jónsson fram svo-
hljóðandi nefndarálit:
Nefndin ræður þinginu til að beina eftirfylgjandi
bendingum til safnaða kirkjufélagsins:
1. Þingið álítur mjög varhugavert að safna fé til
kirkjulegra þarfa með nokkrum þeim aðferðum sem ó-
samboðnar eru virðingu kirkjunnar. Það varar fólk safn-
aðanna við því, að taka það eftir sumum hérlendum kirkju-
flokkum að afla sér fjár með ýmsum óviðeigandi meðul-
um.
2. Þingið álítur þá aðferð bezta og samkvæmasta guðs
orði og eðli k'rkjulegs félagsskapar.að hver maður greiði til
kirkjulegra þarfa fé af fúsum vilja, eftir því sem efni
leyfa, og beri þær gjafir fram eins og offur til handa
heilögum guði, án þess nokkrir krókavegir séu farnir í
þeim fjárframlögum.
Björn B. Jónsson, E. H. Bergman, Guðjón ísfefd,
A. Oliver, Freysteinn Jónsson.