Áramót - 01.03.1906, Side 68
72
Var það nefndarálit samþjdct óbreytt.
Þá var tekið fyrir málið um trúmálafundi, og
lagði séra Björn B. Jónsson fram svohljóðandi nefnd-
arálit:
Nefndin leggur t'l, að hvar sem því verður viðkomið,
sé haldnir trúmálafundir í söfnuðunum. Hún álítur heppi-
leg að söfnuðirnir sjálfir gangist fyrir þvi að koma fund-
unum á, og fái til sín til slíkra fundahalda þá presta, sem
þeir vilja og geta. Nefndin álítur það alls ekki nauðsyn-
legt að margir prestar séu viðstaddir á fundunum. Hún á-
lítur að söfnuðir geti haft mjög uppbyggilega samtalsfundi
enda þó engir aðkomnir prestar séu viðstaddir, þótt það
sé sérlega æskilegt að fle’ri prestar gætu sótt fundina. Þar
sem engir prestar eru í söfnuðunum væri æskilegt að prest-
ar kirkjufélagsins gætu heimsótt söfnuðina og haldið með
þeim samtalsfundi.
Björn B. Jónsson, Guðmundur Eiríksson,
H. T. Hjaltalín, Björn Skagfjörd,
Jóhannes J. Thordarson.
Var það í einu hljóði samþykt.
Þá var tckið fyrir málið um 25 ára afmæli kirkju-
félagsins, og lagði séra Fr. Hallgrimsson frarn svo-
liljóðandi nefndarálit:
Vér undirritaðir, sem kvaddir vorum til þess að gjöra
tillögur um það, með hverju móti kirkjufélagið ætti að
halda upp á aldarfjórðungs afmæli sitt að þrem árum liðn-
um, höfum íhugað það mál eins rækilega og tækifæri var
til, og höfum komist að þeirri niðurstöðu, að ekki sé unt
að fastákveða neitt í því efni á þessu þingi, en rétt væri
að kjósa nú briggja manna nefnd til þess að hafa það
mál til meðferðar til næsta þings.
Hinni væntanlegu nefnd til íhugunar viljum vér benda
á að vér álítum það vel til fallið, að kirkjuþing verði það