Áramót - 01.03.1906, Síða 70

Áramót - 01.03.1906, Síða 70
74 öllum söfnuöum vorum jafn-mögulegt aö sækja kirkjuþing, hvort sem þeir eru nær eða fjær, ef hægt væri að koma því í framkvæmd. Á hinn bóginn getum vér ekki gengið fram hjá því, að kirkjuþingiS hefir leitt blessun yfir alla þá söfnuSi, sem hafa notiS nærveru þess, og aS æskilegt væri, að sem flestir gætu á þann hátt haft not af þvi. ÁstæSur á móti því, aö binda kirkjuþingið viS einn stað eru til svo mikilvægar aS vér hljótum aS taka þær til greina. Ein er sú, að eftir aS standandi nefndin i þessu máli frá síðasta kirkjuþingi hafSi leitaS álits allra safnaða kirkjufélagsins, svöruðu 19 þeirra, að þeir væru mótfallnir hugmyndinni um fastan þingstað. AS eins 5 voru hugmyndinni hlyntir. Hinir 14 svöruSu alls ekki og sýndu meS því, að þetta væri þeim ekkert áhugamál. Önnur ástæSa, sem hlýtur að takast til greina, er sú, aS báSir söfnuSirnir í Winnipeg, sem líklega er sjálfsagður staður, ef um fastan þingstaS væri að ræSa, hafa í einu hljóSi samþykt að vera mótfallnir hugmyndinni um fastan þingstaS. Að neyða kirkjuþing upp á þá, er óhugsanlegt. Af ofangreindum ástæSum ráSum vér kirkjuþinginu til að samþykkja svohljóðandi tillögur: 1. —AS kirkjuþingiS sé fyrst um sinn færanlegt eins og áSur, þó meS því skilyrði, að það sé tiltölulega oftar í Winnipeg en annars staðar, og aS þessu leyti sé álit hinnar standandi nefndar í þessu máli samþykt. 2. —AS kosin sé þriggja manna standandi nefnd til að íhuga fram aS næsta kirkjuþingi, hvort ekki sé hægt aS borga járnbrautarfar allra kirkjuþingsmanna úr kirkjufé- lagssjóði, eða á einhvern æskilegan hátt greiSa úr örSug- leikum fátækra og fjarlægra safnaSa með að senda erinds- reka á kirkjuþing. Á kirkjuþingi að Mountain, 23. Júní 1906. Rúnólfur Marteinsson, Magnús Markússon, Jóhannes Einarsson, Sigfús Anderson, Thomas Halldórsson. NefndarálitiS var samþykt.

x

Áramót

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Áramót
https://timarit.is/publication/247

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.